Heima er bezt - 01.09.1958, Side 15

Heima er bezt - 01.09.1958, Side 15
„Hvernig ætti ég svo sem að vita það?“ sagði hann stuttaralega. „Líklega meðfram, og þá ekki síður vegna þess, að flestir verða þeir hvarflandi og staðfestulausir. Nei, hafi mér einhvern tíma dottið í hug að gjöra vísu, þá hef ég reynt að þagga þá hugsun niður með harðri hendi, og það skalt þú líka gera, drengur minn.“ Og nú fór hann að raula vísu fyrir munnýsér: „Yrkja kvæði ólán bjó,“ en ég sat og beið. En þegar hann virtist ekki veita mér lengur nokkra eftirtekt, stóð ég á fætur og bauð góða nótt. Hann anz- aði mér ekki, en leit þó á mig og hristi höfuðið. Og hélt svo áfram að tinda hrífuna. Ég labbaði nú í hægðum mínum niður að sjó. Veðrið var svo yndislegt og sjórinn spegilsléttur. Ég settist flötum beinum á sandinn og fór að hlaða hús — hús úr sandi, með rammgerðum túngarði kringum. Efnið í garðinum var hið sama og í húsinu — sandur. Jæja, svo það var þá ekki einhlítt, þó maður næði með tunguna upp í nefið á sér. Þetta hefði ég raunar átt að geta sagt mér sjálfur fannst mér nú. Ekki hafði ég svo sjaldan séð kýrnar sleikja innan á sér nasirnar, og ekki voru þær skáld, eins og allir vissu, ekki einu sinni talandi nema á Þrettándanótt. Ég hafði oft heyrt nautið bölva, eins og það var nefnt, en aldrei heyrt orðaskil, en eitt- hvað Ijótt hlaut það að segja, því aldrei bölvaði það, nema þegar það var í illu skapi. En var nú karlinn ekki bara að skrökva að mér, svo að ég hætti að nauða í honum um kennsluna. Og það eitt var víst, að ósatt var að allir yrðu ólánsmenn, sem við skáldskap fengust. Var ekki Hallgrímur Pétursson, sem orti Passíusálmana, stórskáld, og þó hann yrði holdsveikur, þá höfðu nú fleiri orðið það, sem ekki voru skáld. Ekki var Vigfús í Hrísnesi skáld, og þó varð hann holdsveikur. Mér flaug í hug, þegar ég sá hann í síðasta sinn, niðurbeygðan og hræðilega afskræmdan í , andliti eftir sjúkdóminn. Ég var þá svolítill snáði, og hann tók í höndina á mér, þegar hann kvaddi, og bað mér blessunar Guðs. En ég hljóp strax burtu, því ég var hræddur við hann. Líldega hefði hann ekkert fyrr orðið svona veikur, þótt hann hefði verið skáld. — Nei, frændi var bara að skrökva þessu. Það þyrfti að rífa gaflinn úr naustinu og lengja það um svo sem 20 álnir. Ég átti spýtukubb, sem ég hafði fyrir bát, og nú fannst mér ég þurfa að geta komið honum undir húsþak fyrir veturinn (þetta var nú raun- ar í maí), og svo voru tvær stóreflis öðuskeljar, sem líka þurfti að lcoma í hús. Öðuskeljamar voru árabátar. Hét annar Dani en hinn Ólafur. Hann var hafður í hákarla- legur og var sexæringur, en hinn ekki nema fjögurra manna far. Nú kallaði ég inn í bæinn: „Eruð þið ekki enn þá komnir á fætur, piltar. Skárri er það nú svefninn. Klukk- an orðin níu og bráðum orðin ellefu. Ég er nú svo al- deilis hissa.“ Út úr bænum þustu vinnumennirnir, tólf að tölu, flestir skinnklæddir, smíðaðir úr lurkum eða þönglum. Allir voru þeir karlmannlega vaxnir með kraftalegan bol og stórt höfuð, en handleggirnir á þeim voru niður með síðunum og sáust ekki. Nú var gamli maðurinn og skáldskapurinn fokinn út í veður og vind, því skipsetn- ingin tók hug minn allan. Húskarlarnir skipuðu sér á borð stórskipsins, sem hét Höfrungur, þeir spyrntu rösklega í, en setningurinn gekk seint, enda var skipið bæði stórt og þungt. Þó tókst um síðir að koma því í naustið með miklum köllum og kröftugum fyrirskip- unum. „Sæli nú!“ var sagt rétt hjá mér. Ég hrökk við, því ég hafði ekki heyrt neinn koma fyrir ákefðinni við skip- setninginn. Ég leit við. Drengur á aldur við mig, Bogi að nafni, frá næsta bæ, stóð hjá mér. „Hvað ert þú eiginlega að bedrífa?“ sagði hann spek- ingslega. „O, svo sem ekki neitt,“ sagði ég, „ég var að setja bát- inn minn,“ en í aðra röndina hálfskammaðist ég mín fyrir, ef hann hefði heyrt, hvað ég talaði við vinnumenn mína, því í þá daga „blótaði“ maður nú bókstaflega á laun, en ekld svo aðrir heyrðu. „Bátinn þinn!“ át hann upp eftir mér og hló ertnis- lega. „Kallar þú spýtudrumbinn þann arna bát?“ „Já,“ sagði ég, og fór nú heldur að síga í mig. „Þetta er svei mér fallegt skip á sjó,“ sagði Bogi, „ótil- höggvinn spýtudrumbur og ekki einu sinni með möstr- um!“ „Hann er að minnsta kosti eins fallegur og kollan þín,“ sagði ég nú öskuvondur og stóð upp. „Hvað ert þú eiginlega að flakka? Viltu bara hypja þig héðan af minni landareign?“ Bogi hló og spýtti einhverju mórauðu út úr sér. „Viltu rullu?“ sagði hann og rétti mér börk utan af skógarhríslu. „Ég er að finna þig, vinur,“ bætti hann við ósköp ísmeygilega. „Jæja, hvað vilt þú mér svo sem? Líklega þó ekki að hrinda um koll bænum mínum, eins og síðast?“ Hann kom til mín, leit flóttalega í kringum sig og hvíslaði: „Viltu koma eftir háttatíma í kvöld út í Hellis- vík og reyna að ná hvönnum úr klettunum þar?“ Ég tókst allur á loft. Hvort ég vildi, ég held nú það. „Hvað verðum við margir?“ spurði ég. Hann svarar: „Fjórir með þér. Við erum búnir að ná í sterkt snæri til að síga í.“ „Og hver á að síga?“ spurði ég. Hann klóraði sér í höfðinu og sagði vandræðalega: „Ja, það er nú eiginlega sigmaðurinn, sem okkar vantar, því náttúrlega þorir þú það ekki, greyið mitt.“ Það kom eins og kökkur í hálsinn á mér og ég átti erfitt með að svara, og í vandræðum mínum réðst ég á Boga og skellti honum flötum á sandinn. Og þegar ég sá, hvað mikill maður ég var, óx mér hugrekki og öskr- aði inn í eyrað á honum: „Líklega verð ég að gera þetta fyrir ykkur. Þið þorið það hvort sem er ekki. Ég held ég þekki ykkur.“ Bogi stóð á fætur og dustaði af sér sandinn: „Þú ræðst að mér að óvörum, meira að segja aftan að mér. Þú ert ragur eins og Hlíðarstrákarnir. Ragur er sá, við rassinn glímir, ó svei þér.“ Heima er bezt 305

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.