Heima er bezt - 01.09.1958, Page 20
Leiáin til þroskans
Eg nefni nafnih h
ennar
r Á þ v í að sögur hófust, hafa verið til menn
gæddir óvenjulegum skynjanagáfum. Flest trú-
arbrögð eiga rætur sínar að rekja til slíkra dul-
vísra manna. Þar koma spámenn og sjáendur
mjög við sögu, en auk þess hafa á öllum öldum verið
svo að segja í hverju byggðarlagi ófreskir menn, sem
séð hafa það, sem öðrum er hulið. Þeir hafa átt sér
víðar veraldir, byggðar álfum og öndum eða englum.
Ganga um þetta ótölulegar sagnir.
Flestir verða einhvern tíma varir skynjana, sem þeir
geta ekki samræmt hversdagsreynslu sinni. Er því senni-
iegt, að allir hafi vísi að þeim skiiningarvitum, sem dul-
vísum mönnum eru gefin í ríkara mæli en öðrum. Til
þess benda draumar, sem náskyldir eru annarri reynslu.
I þessum mánuði kemur út mjög óvenjuleg bók um
þessi efni, og nefnist hún „Leiðin til þroskans“.
Miðillinn, sem þessi bók er rituð eftir, heitir Guðrún
Sigwðardóttir. Hún er fædd að Torfufelli í Eyjafirði
og komin af góðu og ráðvöndu fólki í báðar ættir.
Guðrún telur, að fyrst hafi farið að bera á veruleg-
um miðilshæfileikum hjá sér árið 1952, en síðan hefur
hún haft reglulega fundi að minnsta kosti einu sinni í
mánuði með litlum hópi samstarfsmanna. Þessir fundir.
standa stundum yfir á þriðju klukkustund, og er mið-
illinn í transi allan tímann. Það lesmál, sem þessi bók
flytur, hefur verið hljóðritað á segulband á árunum
‘1954-1957.
Lýsingarnar eru teknar af segulbandinu óbreyttar
með öllu, eins og þær komu af vörum miðilsins. Enda
þótt hér sé að mestu leyti um skyggnilýsingar að ræða,
er miðillinn þó í svo djúpum transi meðan hún lýsir því,
sem fyrir hana ber, að ekki man hún neitt af því, er hún
vaknar.
I bók þessari eru meðal annars eftirfarandi lýsingar:
Maður deyr. Endurfæðingarlaug í öðrum heimi. Konan
og bjarti maðurinn. Umhyggja kærleikans. Hvíta húsið.
Ljósin tólf. Takmörkin milli lífs og dauða. Hringmynd-
aði salurinn. Bláklæddu mennirnir þrír. Ókennileg áhöld.
Skeyti, er fara milli manna. Sveit manna send eftir deyj-
andi barni. Farið í geimfari. Sjúkravitjun í stórborg.
Silfurstrengurinn slitnar. Börur úr rósum. Hvítklæddi
maðurinn og fræðsla hans. Hérna megin við brúna.
Dauðinn er líknandi kærleikshönd. Farið til jarðarinnar.
Maður við útför sjálfs sín. Annarlegt fólk. Leiðin til
þroskans.
Útsöluverð bókarinnar „Leiðin til þroskans“ er kr.
140.00, en skuldlausir áskrifendur „Heima er bezt“, sem
kynnu að vilja eignast bókina, geta fengið hana hjá af-
greiðslu blaðsins.
Starir stjarna í rofi,
starir beint til mín.
Mér finnst hún brosa og blika
sem brúnu augun þín.
En nú er hún að hverfa
bak við himinsins lín.
Veit hún hvað því veldur
ég var að hugsa um þig?
Veit hún það, að veröldin
er vítiskvöl án þín?
Veit hún, að mín hjartaslög
og hugsun hver er þín?
Stjarna, bláa stjarna
á stirndum himingeim!
Brostu yfir bænum
á bak við fjöllin hvít.
Sendu geisla á gluggann
og græddu hennar mein.
Nóttin er svo nöpur,
nóttin er svo löng. •
Súgar út frá sundum,
syrtir él á tind.
Segðu mér hún sofi
og sé ei voða þreytt.
Ég nefni nafnið hennar
út í nóttina til þín.
Már Snædal.
310 Heima er bezt