Heima er bezt - 01.09.1958, Side 24

Heima er bezt - 01.09.1958, Side 24
bærinn, sem er í byggð á Látraströnd. Hundurinn á bænum spangólar ámátlega, þegar við förum fram hjá. Þetta er víst morgunkveðja hans til okkar. Mér finnst hálfleiðinlegt, að það skuli ekki spangóla hundar líka á hinum bæjunum, sem nú eru í eyði. Þar bjó einu sinni fóik, en bæimir voru afskekktir, svo að bændurnir flutt- ust burtu. Þegar hér er komið förum við fram hjá Grímsnesi, og nú sjáum við Innri- og Ytri-Vík. Þar eigum við kolanet, sem við tökum á heimleiðinni, þegar við höf- um lokið við að draga línuna. Nú tekur Venni við stjórninni. Við erum að nálgast syðri endann á línunni. Ég fer að svipast um eftir bauj- unni og kem fljótlega auga á hana. Flaggið lafir mátt- leysislega á baujunni og hreyfist ekki í logninu. Það er mikill straumur. Línan togar fast í baujustöngina, svo að hún stendur beint upp í loftið. Nú fer ég að búa okkur undir að draga línuna. Ég brýni aðeins gogginn og tek fram blóðgunarhnífinn. Nú leggur Venni að baujunni, en ég tek fimhm og bý mig undir að krækja í línuendann. Nú er tækifærið komið, og ég reyni að hitta lykkjuna. — Mér sýndist Venni glotta við tönn. Hann setur vélina í „afturgang“, og ég kræki í lykkjuna og innbyrði baujuna. Síðan leysi ég línubelginn og baujuna af línunni og hendi hvoru tveggja aftur í til Venna. Nú fer ég að draga línuna og reyni að hringa hana vel niður í bátinn, annars verð- ur Fía h'nustúlka reið, þegar hún fer að stokka línuna upp. Ljótur er nú fyrsti drátturinn. Það er fýlungi, sem hefur ætlað að gæða sér á beitunni, þegar við lögðum línuna, en fest sig á önglinum, dregizt í botn og drukkn- að.------- Ég er nú búinn að draga tíu stokka af línunni, og allt- af fáum við eintóma ýsu. Þessi róður ætlar víst að verða góður. Ennþá helzt þetta blíðalogn. Það þarf ekki að andæfa á línunni, svo að Venni situr aftur í og fægir byssuna. „Hvað er þetta?“ hugsa ég. Línan þyngist allt í einu, og ég sé glitta í eitthvað hvítt langt niðri í sjónum. Hingað til höfum við fengið eingöngu ýsu. Þetta er fvrsti þorskurinn, og það er þorskur, sem um munar. Hann hafði vafið að minnsta kosti einum stokk af línu utan um sig. „Einn sá stærsti, sem ég hef séð,“ segir Venni. Það er orðið þröngt í bátnum. Við erum komnir að línubelgnum, sem er á miðri línunni. Venni er nú byrj- aður að draga, en ég andæfi á línunni, því að kominn er dálítill straumur. Klukkan er að verða hálftíu, og nú fara bátarnir að koma í Ijós einn og einn fyrir höfðann. Þeir ætla að leggja sínar lóðir úti á Grímseyjarsundi. Við eigum nú eftir þrjá stokka af Iínunni, og báturinn rúmar naumast línuna og fiskinn. Venni segir, að þetta séu svona þrjú tonn. Við ljúkum við að draga línuna, fáum okkur að borða og höldum svo heilm á leið. Báturinn er sökkhlaðinn og ristir djúpt. Stefnið sker sjóinn eins og plógur, og hann streymir í stórum boðum út frá kinnungunum. \Tenni stýrir. — Ég er að þvo bátinn og verka línuhjólið. Það er alltaf Ieiðinlegt að sjá sloruga og óhreina báta. Það er bezt að þvo þetta slor af strax, annars storknar það og festist á bátnum. Við veðum að skilja kolanetin eftir, því að báturinn er svo hlaðinn. Þessi fiskur, sem við erum með, er ein- tóm ýsa. Aðeins þrír þorskar. Nú er ég búinn að þvo bátinn og sezt upp á stefnið á bátnum og læt fætuma lafa niður í sjóinn til að svala mér á fótunum. Mér er alveg ógurlega heitt. Venni situr aftur í eða réttara sagt liggur og syngur við raust. Við erum að fara fram hjá Steindyrum. Þar uppi á klettinum eiga veiðibjölluhjón hreiður. Ég hef verið að fylgjast með þeim í allt sumar. Eitthvað líkt ketti situr í fjömnni og gónir á okkur. Þetta er víst tófuyrðlingur. Það er fullt af tófum þarna uppi í fjallinu. Nú tek ég eftir einhverju hnöttóttu í sjónum, sem rekur einkennilega hratt. Ég bendi Venna á þetta. En hvað varð af þessu? Ég get ekki bent honum á neitt, nema spegilsléttan sjóinn. Þetta, sem ég sá, er gjörsam- lega horfið. — En þarna kom það upp aftur! Það Iék enginn vafi á því, að þetta var selur. Venni lét mig taka við stjórninni á bátnum, og ég stýrði í stóran hring. Nú fer Venni fram í og tekur sér stöðu frammi við lúkar. Hann bíður þess, að selurinn komi aftur í Ijós. Ég gerist nú mjög æstur og spenntur. Mér finnst, eins og við séum að eiga við einhvern hættulegan hlut, kafbát, tundurdufl eða eitthvað þess háttar. Þarna kom selurinn í þriðja sinni upp á yfirborðið og var nú í sæmilegu skotfæri. Venni miðar byssunni á selinn. Hann syndir hægt og forvitnislega nær, vaggar hausnum til og teygir hann langt upp úr sjónum. Allt í einu fór Venni að blístra, lágt og titrandi. Við það færðist selurinn enn nær bátnum. Mér var farin að leiðast þessi bið og vildi fara að láta eitthvað gerast. Þess var heldur ekki langt að bíða. Allt í einu kvað við ógurlegur hvellur, sem hefði getað fengið dauðan mann tií að rakna við. — Selurinn hvarf, og sjórinn varð aftur spegilsléttur. — Skyldi Venni hafa misst marks? Selur- inn er gjörsamlega horfinn og sást ekki tangur eða tetur af honum. En skyndilega hendist hann upp úr sjónum rétt við borðstokkinn. Þá var Venni ekki seinn á sér, þreif gogginn og færði hann á kaf í hálsinn á selnum. Síðan innbyrti hann selinn og skar hann. Ég hélt við hausinn á selnum á meðan Venni skar, og nú rann glóðvolgt selsblóðið á hendur mínar. Mér varð óglatt og ætlaði alveg að æla. Þetta var alveg eins og manns- blóð, bara aðeins dekkra.-------- Þegar hér var komið, setti Venni vélina aftur í gang, og við héldum hcim á leið. Ég fór nú að virða selinn fvrir mér. Þetta var miðlungsstór hringanóri, með stóra kampa á kjálkunum. Skotið hafði hæft hann ofarlega í hálsinn. Garnirnar úr honum myndu verða góð ýsu- beita, þegar þær hefðu úldnað dálítið. Við hliðina á selnum lá stóri þorskurinn, sem við fengum á línuna. Hann hafði auðsjáanlega lent í kynni við veiðistöng nýlega, því að í hægra munnviki hans hékk stærðar laxaspónn ásamt langri dræsu af girni eða nælongarni. Við vorum nú að verða komnir heim. Fía stóð frammi 314 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.