Heima er bezt - 01.09.1958, Side 26

Heima er bezt - 01.09.1958, Side 26
Vinningashrá: Takið fjátt í hinni nýju V erálaunagetraun „HEIMA ER BEZT“ og vinnih fullkomna svissnezka handprjónavél me& snúningsstykki, ah verhmœti kr. 2.815.oo I.verðlaun: Hin fullkomna svissneska handprjónavél PASSAP M 201. 2. verðlaun: Fjórar nýjar bækur, sem koma á bóka- markaðinn í haust: örlög orðanna eftir dr. Halld. Halldórsson Vígðir meistarar eftir Edouard Schuré, í þýðingu próf. Björns Magnússonar Leyndardómur kínversku gullkeranna, ung- lingasaga eftir P. Westerman. Strákur á kúskinnsskóm, sögur fyrir börn. eftir Gest Hannson. 3. verðlaun: Ein bók: Örlög orðanna eftir dr. Halldór ' Halldórsson. f ÞESSUM MÁNUÐI byrjum við á nýrri verðlaunagetraun, sem við vonum, að lesendur „Heima er bezt“ muni hafa gaman af að spreyta sig á. Hér fara á eftir nöfn á tíu frumsömdum, íslenzkum skáldsög- um eftir þekkta íslenzka rithöfunda. Aftan við nöfn skáldsagn- anna eru nöfn höfundanna. En nú hefur tekizt svo til, að línurn- ar með nöfnuin höfundanna hafa brenglazt meira og minna. Nú Getraun: I. Eiríkur Hansson ( ) Davíð Stefánsson 2. Jón Arason ( ) J. Magnús Bjamason 3. Sólon Islandns ( ) Guðm. G. Hagalín 4. Kristrún i Hamravík ( ) Torfhildur Þ. Hóhn 5. Brynjólfur Sveinsson ( ) Jón Bjömsson 6. Jón Gerreksson ( ) Halldór Kiljan Laxness 7. Símon í Norðurhlíð ( ) Þórbergur Þórðarson 8. Salka Valka ( ) Guðm. Friðjónsson 9. Indriði miðill ( ) Gunnar Gunnarsson 10. ólöl í Ási. ( ) Elinhorg Lámsdóttir er þrautin í því fólgin, að raða saman í réttri röð nöfnum bók- anna og nöfnum höfundanna, þannig að nafn rithöfundarins komi á eftir nafni þeirrar bókar, sem hann hefur samið. Skrifið ráðninguna á sérstakt blað og geymið hana síðan þar til i desember. Getraunin verður í þrem heftum (september, októ- ber og nóvember), og að því búnu á að senda svör við öllum þrern hlutum getraunarinnar í lokuðu umslagi merktu .Verðlaunaget- raun“, til „Heima er bezt", pósthólf 45, Akureyri. Síhustu forvöh Eins og áskrifendur vita, hefur áskriftargjald „Heima er bezt“ ekki hækkað síðastliðin þrjú ár, þrátt fvrir sí- fellda hækkun á útgáfukostnaði. Einn kostnaðarliður útgáfunnar, sem fer hækkandi með hverju ári, eru póst- gjöld. Allflestir áskrifendur „Heima er bezt“ hafa nú þegar greitt hið væga áskriftargjald (kr. 80.00) fyrir yfirstand- andi árgang. Ennþá eru samt nokkrir, sem ekki hafa sent blaðinu árgjald sitt (1958). — Ef þú, lesandi góður, ert einn þeirra, eru það vinsamleg tilmæli útgefanda, að þú bregðist vel við og sendir áskriftargjald þitt sem fyrst. Það sparar þér póstkröfukostnað og okkur ærna fyrir- liöfn. Við vonum, að þú hafir haft ánægju af að fá „Heima er bezt“ sent til þín það sem af er þessu ári, og að þú eigir eftir að vera traustur vinur blaðsins á ókomnum árum. En nú eru að verða síðustu forvöð að senda árgjald þitt fyrir yfirstandi ár, ef þú vilt losa sjálfan þig og okkur við allt leiðinda póstkröfustúss. Með beztu kveðju Utgefandi.

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.