Heima er bezt - 01.12.1958, Side 4

Heima er bezt - 01.12.1958, Side 4
Séra Helgi Konráðsson: SÍÐUSTU JÓLIN HEIMA að er einkennilegast við bernskuminningarnar, að þær geymast án alls samhengis sín á milli og án tímaákvörðunar. Þær eru eins og smámynd- ir, sem snöggvast er brugðið upp án alls orsaka- sambands. Þegar fullorðinn maður horfir á þær síðar á ævinni og sér sjálfan sig á miðri myndinni, lítinn dreng, er honum ómögulegt að átta sig á því, hvaðan hann hefur komið þangað og hvernig á því stendur, að hann er þar, nema fylla upp í eyðurnar með þekkingu seinni æviára. Inn í bernskuminningarnar komum við ætíð utan úr einhverju óskiljanlegu myrkri og hverfum inn í það aft- ur. En þessi svipleiftur minninganna eru mjög skýr, mjög tær og fögur í blámóðu fjarlægðarinnar. Þannig eru mér þessi jól. Þó að ég væri þá orðinn 8 ára gamall, eru þau fyrstu jólin, sem ég man greinilega, sennilega af því að birtu þeirra fylgdi skuggi dauðans. Það voru síðustu jólin heima á Syðra-Vatni í gömln baðstofu foreldra minna. Á næstu jólum var móðir mín orðin ekkja og flutt í lítið timburhús niður við sjó, jörðin hennar seld og bú- inu dreift út um sveitina á opinberu uppboði. Þá vorum við aðeins þrjú systkinin hjá henni, önnur þrjú í fjar- lægum stöðum og yngsti bróðir minn og leikfélagi dá- inn. Við þessar miklu breytingar ber síðustu jólin heima í gömlu baðstofunni og þess vegna eru þau svo skýr og minnisstæð. Þó að ég viti það nú eftir á, að ég hafði fæðzt í þess- ari baðstofu og hafzt þar við hvern einasta dag síðan og hverja nótt, finnst mér þetta jólakvöld varpa undar- legum, framandi blæ á þessa baðstofu og allt, sem er þar inni, sperrurnar, súðina, ómáluð rúmin með heimaofn- um ábreiðum og borðið undir glugganum. Baðstofan er full af birtu og hljóðlátri gleði, töfrum, sem ég hef síðar aðeins fundið undir hvelfingum gamalla kirkna. Og birtan inni er enn unaðslegri af því, að fyrir framan dyrnar eru göngin, dimm og löng með skelli- 406 Heima, er bezt

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.