Heima er bezt - 01.12.1958, Qupperneq 6

Heima er bezt - 01.12.1958, Qupperneq 6
MAGNÚS V. FINNBOGASON frá Reynisdal: HJÖRLEIFSHÖFÐI (Niðnrlag) Með Lofti Guðmundssyni og Þórdísi má segja að hefjist nýtt tímabil í búskaparsögu Höfðans. Frá því að bærinn var endurreistur og fluttur upp á fjallið og þangað til þau komu þangað, rnunu hafa verið alltíð á- búendaskipti og fáir eða engir fest þar verulega rætur. Synir þeirra Lofts voru: 1. Markús, fæddur að Holti í Mýrdal 28. maí 1828 (dáinn 20. nóvember 1906, eins og áður getur). 2. Gísli, fæddur í Hjörleifshöfða 1831. Hann var ó- kvæntur og átti ekki afkomendur. Hann drukknaði í Vestmannaeyjaferð 10. febrúar 1857, 25 ára gamall. Fórst skip það, sem hann var á, með allri áhöfn, 19 manns, allt ungir menn og einvalalið. Þar á meðal var ein kona, einnig úr Hjörleifshöfða, Signý Níelsdóttir að nafni. Eru nú liðin 100 ár frá þessum sorglega atburði. 3. Jón, fæddur í Hjörleifshöfða 24. sept. 1832. Dó 29. apríl 1895 á Ketilsstöðum, 65 ára gamall. Hann bjó þar allan sinn búskap. Hann var lengi formaður í Dyr- hólahöfn og farnaðist jafnan vel. 4. Guðmundur, fæddur í Hjörleifshöfða 22. júní 1837. Dó á Söndum í Meðallandi 27. marz 1892, 55 ára gamall. Hann bjó á Söndum allan sinn búskap. 5. Sigurður; hann fæddist í Hjörleifshöfða 28. maí 1838 og dó í Hjörleifshöfða 26. febrúar 1919, áttatíu og eins árs að aldri. Hann bjó lengi á Rauðhálsi, en er hann lét af búskap fluttist hann á æskustöðvar sínar til Markúsar bróður síns í Hjörleifshöfða og dvaldist þar öll síðustu ár ævi sinnar og lézt þar í hárri elli, eins og áður getur. Allir voru þeir Höfðabræður hinir mestu atgjörvis- menn. Sumir þeirra risar að vexti og rammir af afli, greindir, og kunnu vel að koma fyrir sig orði og höfðu stundum til að vera nokkuð stórorðir og vönduðu ekki alltaf kveðjurnar, en þó með fullum drengskap, svo að engum þurfti undan að svíða. Markús var fágaðastur þeirra bræðra í framkomu, enda bezt að sér og víðlesnastur og aldrei óviðbúinn að svara fyrir sig. Hann átti allgott bókasafn, eftir því sem gerðist á þeim tíma, enda var hann sílesandi, þegar stundir gáfust til. Allmikil listagáfa hefur verið og er enn ríkjandi í þessari ætt. Páll Markússon lærði trésmíði og þótti lista- smiður. Hann kvæntist Karitas Bjarnadóttur frá Efriey í Meðallandi. Þau fluttust austur til Norðfjarðar. Sonur þeirra er Helgi Pálsson tónskáld. Páll var einstakur lista- skrifari. Einn af sonum Guðmundar á Söndum var Eggert ljósmyndasmiður. Þótti hann með færustu mönnum í þeirri iðn á sínum tíma. Einn af sonum Jóhannesar Guðmundssonar á Herj- ólfsstöðum er Guðmundur bústjóri á Hvanneyri, hinn mesti hagleiks- og uppfinningamaður. Orðlagðir voru synir Guðmundar á Söndum, þeir Jóhannes á Herjólfsstöðum og Loftur á Strönd, fyrir ferðamennsku og kunnáttu sína í glímunni við jökul- vötnin, enda voru þeir fæddir og uppaldir á bökkum Kúðafljóts. Sonur Skærings Markússonar er Ulfar, skíða- og íþróttakappi. Guðrún Markúsdóttir giftist Birni Markússyni frá Gafli í Flóa. Sonur þeirra er Friðgeir, fulltrúi hjá jarða- kaupasjóði ríkisins. — Svona mætti lengi telja, þó að hér verði staðar að nema. Húsakynni í Hjörleifshöfða voru einhver hin allra þrengstu og lágreistustu, sem þá þekktust, og er þá langt til jafnað. Þó var betri aðstaða þar en víða annars staðar til að færa það til betra vegar vegna góðrar rekafjöru. En það var ekki verið að fást um það. Hugsunin um, að ekki þryti brýnustu lífsnauðsynjar, var látin sitja í fyrirrúmi fyrir öllu öðru. Þeim var það ljóst, Höfða- mönnum, að ekki var í annað hús að venda, ef hey eða mat þryti á þessum afskekkta og einangraða stað. Þetta voru sjónarmið þessa greinda og sterka ættstofns frá því að hann settist jaar að árið 1831, og má sjá þess merki enn þann dag í dag, þótt með öðrum hætti sé vegna breyttra þjóðhátta og ættin víða dreifð. Enda munu þess engin dæmi, að hey eða mat hafi þrotið í Hjörleifs- höfða hin hart nær 100 ár, sem þessi merka ætt sat þar að völdum, heldur voru Höfðamenn þráfaldlega bjarg- vættir annarra. Þessi ófrávíkjanlega ráðdeildar- og spar- semistefna leiddi frá stóru fátæku barnaheimili til batn- andi efnahags og að síðustu til góðra efna. Þegar kom fram að aldamótum má fullyrða, að ekki hafi mörg heimili í Mýrdal staðið framar efnahags- og menning- arlega, þótt meira hefðu umleikis. Áður en ég skil við Markús, leyfi ég mér að taka upp kafla úr æviminningu, sem birtist um hann í 59. árgangi Þjóðólfs 1907. Þar segir svo: „Búskap sinn byrjaði Markús með litlum efnum, en brátt græddist honum svo fé, að hann varð vel sjálf- bjarga maður, og var það ætíð síðan, allt til dauðadags. Aldrei bjó Markús stóru búi sem kallað er, en var skuld- laus og átti alltaf heyfymingar, jafnvel þó að jörðin 408 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.