Heima er bezt - 01.12.1958, Blaðsíða 10

Heima er bezt - 01.12.1958, Blaðsíða 10
spýtur, naglapakki, pakki með sauðfjárbaði, tvær eða þrjár taupjötlur og teygjubönd, kaffiskjóðan og nokk- ur pund af strásykri og síðan ekki söguna meir. Rúsínur höfðu ekki fengizt, sveskjur því síður, já, það hafði verið með fátæklegra móti í kaupstaðnum, segir faðir hans, — ekki hægt að fá svo mikið sem halgdabrauðsbita að stinga upp í krakka. Meðan á þessu stóð, hefur hann staðið í orðlausri eftirvæntingu. Loks hefur allt verið tínt fram, en ekki hefur griffill- inn komið í ljós. Nú stenzt hann ekki lengur mátið. Aður en hann veit af, hefur hann varpað fram þeirri spurningu, sem brunnið hefur á vörum hans, undanfarin dægur. — Griffillinn — mundirðu ekki eftir að kaupa griffilinn. Faðir hans lítur upp, seinlega. — Já, það var rétt. Þú varst að biðja mig að kaupa fyrir þig griffil, nei, — grifflar fengust ekki. Grifflar fengust ekki. Honum bregður hastarlega. Hafði hann heyrt rétt. Já, auðvitað hafði hann heyrt rétt. Faðir hans gerir ekki svona að gamni sínu. Grifflar fengust ekki. Hann verður gripinn ónotalegri, þrúgandi tómleikakennd. Honum verður innanbrjósts líkt og manni, sem með erfiðismunum hefur brotizt langa, örðuga leið, en farið villur vegar og komið aftur á sína eigin slóð. — Héma er peningurinn þinn, segir faðir hans og réttir honum tuttuguogfimmeyringinn. Hann tekur við peningnum, tómlátlega og stingur honum í vasa sinn, án þess að líta á hann og hefur eng- in orð um. Það er ekki siður hér á bæ, að fjargviðrast útaf smámunum. Síðan fer fólk að taka á sig náðir og brátt eru allir í baðstofunni sofnaðir, utan lítill drengur, sem brynnir músum, hljóðlega, stundarkorn, áður en hann sofnar. Nú stendur hann hér, miðaldra maður, á þessari stund og hugleiðir þessa fátæklegu bernskuminningu, sem líklega hefur verið upphaf þeirrar reynslu, sem hefur opnað augu hans fyrir fánýti peninga og kennt honum að óskhyggjan er veikur grundvöllur að byggja á og eftirvæntingin tvíeggjað sverð, sem varast skyldi. Hann minnist þess, hvernig öll bernska hans leið, án þess hann eignaðist nokkurn tíma nokkuð af því, sem hann langaði í og dreymdi um að eignast. Þama í búðarglugganum liggur fjöldi vasahnífa, af margs konar stærðum og gerðum. Það minnir hann á að það var lengi óskadraumur hans, að eignast vasahníf, sem hann hafði séð á mynd í útlendum verðlista. Þetta var enginn venjulegur kuti. Hann var með skel- plötuskafti, tvíblaðaður með tappatogara, al, dósahníf, þjöl og sög. Honum fannst þá að fögnuðurinn yfir slíkum kjör- grip, hlyti að endast ævilangt. En draumurinn um þenn- an glæsilega grip var vitanlega allt of stórfenglegur til þess að geta orðið að veruleika. Þannig var það lengi fram eftir aldri, að bilið milli óskanna og raunveruleikans, virtist óræð farlægð. Með árum og aldri hafði hann að vísu sigrazt á þess- ari fjarlægð, en jafnótt hafði verðgildi hinna þráðu djásna fallið að sama skapi og fjarlægðin styttist. Hann hafði fljótlega brynjazt gegn löngun í fánýta hluti, og jafnframt glatað hæfileikanum til að gleðjast við smá- muni. En einmitt vegna þess, var sem hann fyndi til ein- hvers konar tómleikakenndar, eins og hann hefði týnt úr eigu sinni einhverju verðmæti, sem aldrei var hægt að eignast aftur. Áður en hann veit af, hefur hann gengið inn í verzl- unina og staðnæmst við afgreiðsluborðið. — Eigið þið ekki til fallegan vasahníf, með skel- plötuskafti, tvíblaðaðan með tappatogara, al, dósahníf, þjöl og sög, spyr'hann afgreiðslustúlkuna. Stúlkan kemur með nokkra vasahnífa og sýnir hon- um. — Hérna er einn, með skelplötuskafti, al og dósa- hníf. — Já, þetta lítur út fvrir að vera góður hnífur. En eigið þið engan með þjöl og sög að auki. — Nei, því miður, þannig vasahnífa höfum við ekki fengið. — Jæja, það er þá réttast að ég biðji um einn af þess- um. Nei, það er óþarfi að pakka hann inn. Ég læt hann bara svona í vasa minn. Þakka yður fyrir. Hann greiðir andvirðið og hverfur út úr búðinni. Enn streymir regnið úr loftinu og fólkið eftir göt- unni. Hann heldur rakleitt heimleiðis og lítur hvorki til hægri eða vinstri. Hann nemur ekki staðar, fyrr en hann er kominn heim í herbergið sitt. Þar sezt hann í vandaðan hægindastól, undir glæsi- legum standlampa. Síðan dregur hann hinn nýfengna hníf upp úr vasa sínum, handleikur hann og athugar á ýmsa vegu. Víst var þetta snotur gripur og eigulegur. Hann leitast við að hverfa til baka, um langt árabil og skoða þennan grip með augum lítils drengs, sem hefur séð ósk sína rætast. Hann virðir nákvæmlega fyrir sér hin margvíslegu litbrigði, sem myndast í skaftinu, eftir því hvernig ljós- birtan fellur á það. Hann opnar bæði blöðin, sitt á hvað, stafar verksmiðjuheitið á stærra blaðinu og speglar sig og ýmsa hluti í gljáandi fleti stálsins. Já, loksins — loksins, hafði hann eingazt þennan lang- þráða kjörgrip. Hví skyldi hann ekki, af heilum huga, fagna svo stórum sigri. Hann hafði séð einn æskudraum sinn rætast bókstaf- lega. Og þó — þjölina og sögina vantaði að vísu, því varð ekki neitað. En glæstustu draumar æskunnar rættust heldur aldrei bókstaflega. 41 2 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.