Heima er bezt - 01.12.1958, Qupperneq 12

Heima er bezt - 01.12.1958, Qupperneq 12
mitt brotnaði. Það var þverbrotið um miðjuna, og steig ég, bókstaflega talað, niður úr því. Skildi þar með okkur félögum, þeir héldu áfram, en ég varð að taka skíðin á öxlina og kafa í slóð þeirra. Fór nú heldur að draga úr ferðinni, því að svo lítil, sem hún hafði áður verið, versnaði nú um allan helming, enda mátti heita umbrotafæri. Eins og kunnugir vita, er þarna mikið skóglendi. Liggur vegurinn ofan Egilsstaðaháls í allmörgum krók- um, sem á þeim árum voru fleiri og krappari en nú. Ég hafði oft farið þetta að sumarlagi, og þekkti því vel leiðina. Datt mér nú í hug að taka af mér stærstu krókana, ef að ske kynni að ég yrði þá heldur fljótari. Þeir, sem kunnugir eru skóglendi, vita bezt, þvílíkt óráð þetta var, en ekkert hugsaði ég um það þá, enda alveg óvanur svona landi og gat því ekki gert mér grein fyrir afleiðingunum. Það fór líka öðruvísi en ég ætlaði og varð síður en svo flýtisauki að þessu flani mínu, enda sökk ég öðru hverju á kaf og átti erfitt með að hafa mig upp aftur. Brauzt ég þannig áfram æði tíma, unz mér tókst að komast á veginn aftur. Svo þreyttur var ég orðinn eftir allt þetta erfiði, að óvíst er að ég hefði haft mig heim af sjálfsdáðum, ef ekki hefði viljað svo vel til, að ég rakst á slóð beitarhúsasmalans á Egils- stöðum, en henni fylgdi ég til bæjar. Var þá klukkan 5, og tólf tímar liðnir síðan við fórum úr Sæluhúsi. En fjóra tíma hafði ég verið að fara leið, sem vanalega var gengin á klukkutíma. Kristján póstur stóð úti á hlaði, er ég kom, albúinn að fara á stað að leita að mér. Viðtökur voru ágætar hjá þeim heiðurshjónum, Jóni Bergssyni og Margréti Pétursdóttur konu hans, en heldur gerði ég matnum lítil skil, að mig minnir, enda mátti ég heita alveg uppgefinn. Síðar um kvöldið var okkur boðið inn til hjónanna, til þess að taka þátt í jólafagnaðinum, ásamt heimilisfólkinu. Mátti því með sanni segja að þessi erfiði dagur endaði vel. Síðast um kvöldið, á 12. tímanum, fórum við Kristján fram í smíðahús, og þar hjálpaði hann mér að klambra saman skíðið. Morguninn eftir var frost og hreinviðri. Fór ég þá frá Egilsstöðum beint yfir Lagarfljót og sem leið ligg- ur yfir Fellnaheiði. Gekk sú ferð vel og kom ég í Hjarðarhaga í rökkurbyrjun. ÖRLÖG ORÐ ANNA Forráðamenn BÓKAFORI.AGS ODDS BJÖRNSSONAR vænta þess, að bók þessi megi verða öll- um áhugamönnum um íslenzkt mál og unnendum íslenzkrar tungu góður fengur. Eftir dr. Halldór Halldórsson, prófessor í þessari skemmtilegu bók má fræðast um ýmis orðtök, sem við tökum okkur nær daglega í munn, en gerum okkur þó litla sem enga grein fyrir, hvaðan komin séu eða hver uppruninn sé. Hvað merkir t. d. upphaflega að tala undir rós að deila um keisarans skegg eitthvað kemur spánskt fyrir sjónir Og hvers vegna tölum við um keisaraskurð er kona getur ekki fætt með eðlilegum hætti? Bókin er 200 blaðsíður. Verð kr. 150,00 BÓKAFORLAG ODDS BJÖRNSSONAR

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.