Heima er bezt - 01.12.1958, Síða 14

Heima er bezt - 01.12.1958, Síða 14
legan fótaferðartíma í laugardagsmorgun, 26. okt., þótti það einkennilegt, að engin sást dagsbrún er litið var út um glugga. Þegar út var komið sást hvað í efni var. Öskufall var þá svo mikið að rykið fyllti vit manns, en brátt tók veðrið að lægja, með hækkandi degi. En er rofaði til birti fyrst í vestri, en „allt austurloftið var sem moldarveggur“ til að sjá. Ekki sá þó mikla ösku á gróinni jörð, en á stéttum og troðnu hlaði mátti sópa saman öskudreifum, og þar höfðu smádreifar sezt að í skjóli. Öskufallinu linnti um „skatttíma“, þ. e. kl. 9—10 árdegis. Gekk vindur þá meira til vesturáttar, og fylgdu snjóél seinnipart dagsins. Þessa nótt var mesta ösku- fallið, sem kom á þessum slóðum. Á sunnudagskveldið 27. okt. var enn lítilsháttar öskufall, og var þó stormur af suðvestri. Næstu daga var hægviðri. Varð ekki vart neins ösku- falls eða óvanalegs misturs fyrr en miðvikudaginn 30. okt. Þá var brennisteinsfýla mikil og lítilsháttar ösku- fall, þrátt fyrir hægviðri. Því létti aftur en á fimmtu- dagskvöld var komin sunnangola og fylgdi henni nokk- urt öskufall, sem hélt áfram aðfaranótt föstudagsins 1. nóv. Var það síðasta öskufallið, sem vart varð hér, enda er talið að gosinu linnti 4. nóvember. Undanfarandi er tekið upp úr minnisgreinum sem skrifaðar voru samtímis. Ekkert er um það rætt, hvernig þessi tíðindi orkuðu á hugi manna, en þess minnist ég, að mikill óhugur var í fólki og margir óttuðust, að svo mikil aska kynni að falla, að hagar spilltust, og kviðu menn því að vonum, er vetur gekk í garð, en hey lítil og léleg eftir eitt hið versta grasleysissumar, er komið hafði þá lengi. Ekki bar þó mjög á því, að öskufall spillti högum. Þó kvörtuðu margir um, að hestar, sem úti gengu um haustið og fram eftir vetri, særðust svo á flipum, að þeir ættu erfitt með að ganga á beit. jMinn- ist ég þess af eigin sýn, að ég sá allmörg hross, einkum ungviði, með sár og hrúðurskorpur á flipunum. Ekld gætti þess á hestum, sem hafðir voru við hús, þótt þeim væri beitt daglega, og engan heyrði ég tala um að sauð- fé hefði sakað. Mátti þannig segja, að gosið hefði lítt sakað sveitir hér nyrðra. 31. október 1958. St. Std. ÞETTA MERKI TRYGGIR YÐUR GÓÐA BÓK IIIlllll11 ll ll II Lesið um Launhelgar Egyptalands, musterið í Delfi, Regluna og kenningar hennar. Lesið meistaralega sagðar ævisögur hinna vígðu meistara. Eftir Edouard Schuré Þessi stórmerka bók er áreiðanlega fær um að beina huga lesandans í hamingju- átt. P>j (irn Magnússon prófessor þýddi bókina Bókin er 436 blaðsíður. Verð kr. 198.00. VIGÐIR MEISTARAR BÓKAEORLAG ODDS BJÖRNSSONAR

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.