Heima er bezt - 01.12.1958, Síða 16

Heima er bezt - 01.12.1958, Síða 16
Við vorum á ferðinni allan daginn og klifum fram og aftur um fjöllin í leit að þessum torfundnu dýrum. Hvarvetna um skóginn fundum við troðningana eftir þau, við fundum aldinsteina, sem þau höfðu nýlega kroppað utan af, hrúgur af vallgangi þeirra, en dýrin sjálf sáum við aldrei, eltki einu sinni í svip. Hinsvegar vissum við orðið út í æsar, á hverju þau lifðu, en fæða þeirra var eingöngu aldin, annarsvegar brún, hnöttótt aldin með þykku hýði, á stærð við aprikósu, en hins- vegar rauð, lauklaga ber, sem uxu á skriðulum runn- um, voru þau súr á bragðið, með mörgum kjörnum. Svertingjarnir færðu mér einnig bláleit aldin, sem líkt- ust aldinum þyrniheggs, en voru ekki eins barkandi á bragðið. Öll þau aldini, sem simpansarnir átu, virtust okkur bragðgóð, og seinna reyndist okkur það harla mikilvægt, að kunna skil á aldinum þessum. A fjórða degi leitarinnar vorum við nær sannfærðir um, að örlögin hefðu ætlað okkur einungis að heyra til simpansanna, en aldrei að líta þá augum. Það var augljóst, að þeir urðu okkar varir, löngu áður en við fengjum nálgast þá, og auðvitað skutust þeir þá um leið á brott. í raun réttri er því þannig farið, að hægt er að fara um frumskógana vikum saman, án þess að sjá nokkurt hinna stærri villidýra. Vér heyrum til þeirra köll, hróp, öskur og umbrot, allt umhverfis oss, en sjá- um ekki. Þau virðast forðast manninn eins og pestina. Þannig var t. d. auk simpansanna mergð af rófulöng- um, stórvöxnum öpum í skóginum, þar sem við fórum. En við sáum þá aðeins einu sinni, er við vorum á ferð í ljósaskiptunum snemma morguns. Þá gátum við eygt hópa þeirra í trjátoppunum og fylgzt með þeim, þar sem þeir hoppuðu grein af grein, eða sveifluðu sér í löngum loftköstum milli trjánna. Loks var það að kvöldi hins fjórða dags, að það gerðist, er ég var önnum kafinn að virða fyrir mér hatt- laga mauraþúfu, risavaxna að stærð, að Mikael fór einn síns liðs að kanna skógargeira, þar sem við höfðum oft- sinnis heyrt til simpansanna. Að þessu sinni hafði hann aðeins eina litla myndavél meðferðis, ólíkt því sem venja okkar var. Tveimur stundum seinna kom hann aftur mjög æstur í skapi, og gat varla skipt um filmur í vél sinni vegna handaskjálfta. Hann sagðist hafa heyrt í simpönsum, þegar er hann kom inn í skóginn, og hefði hann gengið á hljóðið, og eftir að hafa farið alllanga leið, vissi hann ekki fyrri til, en hann stóð augliti til auglitis við stóran simpansa, sem ruggaði sér á trjágrein í fárra feta fjarlægð. Mikael nam staðar sem þrumu lostinn. Apinn virtist líka verða hissa. Hann renndi sér niður eftir stoðrót trésins, horfði á Mikael nokkur augnablik, eins og hann vildi ganga úr skugga um, hvaða skepna þetta væri, og hvarf síðan inn í skógar- þykknið, allt án þess að gefa hið minnsta hljóð frá sér. Hann fór þó ekki lengra burtu en svo, að Afikael vissi, hvar hann var. En nú fór hann að gá betur í kringum sig, sá hann þá nokkra fleiri apa uppi í trjánum í kring. Þeir klifruðu einnig þegjandi niður úr trjánum og horfðu þegjandi á hann. Einn þeirra var kvendýr, með unga í fanginu. Andlit apabarnsins var hvítt og stakk mjög í stúf við fullorðnu apana, sem allir eru dökkir ásýndum. Smám saman hurfu þeir hljóðlega á brott, en þegar þeir voru komnir inn í skógarþykknið, gerð- ust þeir háværir og virtust vera í æstu skapi. Mikael hélt nú að fyrsta apatrénu og skar í það merki með hníf sínum. Meðan hann var að þessu, olli hann nokkru þruski. Allt í einu heyrði hann brak í greinum að baki sér. Hann leit við, en skauzt um leið bak við tréð, sem hann stóð hjá. í minna en 4 metra fjarlægð sá hann nú gamla apynju, sem bar unga, á að gizka þriggja ára gamlan, á bakinu. Apynjan sá ekki mann- inn, en unginn starði undrandi á hann. Þegar þau voru að hverfa, gat Mikael ekki á sér setið, en hrópaði há- stöfum „hú, hú“, og líkti eftir viðvörunarópi simpans- anna. Apynjan nam staðar, horfði snöggvast á Mikael, en skauzt síðan inn í kjarrið eftir næsta troðningi, án þess að gefa nokkurt hljóð frá sér. í stundarfjórðung stóð Mikael þarna á sama blett- inum. Allt umhverfis sig heyrði hann rausið í öpunum og smellina í greinum, er þeir gripu og slepptu. Alls hugði hann þá vera sjö talsins, og þeir virtust vera með öllu ótruflaðir af návist hans. Honum var svo mikið niðri fyrir að hann steingleymdi að taka mynd, en það gerði lítið til, því að hann hafði aðeins eina mynd ónot- aða í vélinni. Þótt svona tækist til, varð þessi uppgötvun hans ómetanleg, því að nú gátum við gert fullkomna áætlun um, hversu við skyldum kanna þenna hluta skógarins. Daginn eftir fundum við náttból hópsins, og reyndust þau vera sjö, eins og Mikael hugði. Náttbólin eru gerð líkt og hreiður í trjátoppunum úr beygðum og brotnum greinum og fóðruð innan með trjálaufi. Hæð þeirra yfir skógsvörðinn reyndist 10—25 metra, en oft voru greinarnar, sem báru hreiðrin, ótrúlega grannar. Mikael ldifraði upp í topp á einu trénu, þar sem hann gat tekið myndir af hreiðrunum ofan frá. Lauf vafningsviðanna, sem þau voru klædd með, var hálf- visnað, af því réðum við, að hreiðrin væru 2-3 daga gömul. Að minnsta kosti höfðu þau ekki verið notuð undanfarna nótt, en simpansarnir gera sér ný náttból á hverju kveldi. Eitt af mörgu, sem vakið hafði undrun okkar í fram- ferði simpansanna, var sérkennilegt hljóð, er frá þeim kom, og líktist mest því, er slegin er trumba. Þá gátu fengum við leyst, er við fundum nokkra hola trjábúta, sem báru þess ótvíræð merki, að aparnir höfðu barið þá utan, en þá kom fram þetta sérkennilega hljóð, sem líktist mest dimmum trumbuslætti. Við könnuðum skóginn nokkra næstu daga. Við fundum staðinn, þar sem aparnir höfðu safnazt saman og ræðst við á sínu apamáli og barið trjábumbur sínar. Arið einn slíkan stað völdum við okkur blett, þar sem engir maurar voru til að ónáða okkur, hreinsuðum síðan burtu greinar og flækjuplöntur, svo að við höfð- um óhindraða sýn yfir svæðið. Síðan tókum við okkur stöðu, settum upp myndavélar okkar og biðum átekta. Þjón okkar sendum við heim, því að honum var ekki gefin sú gáfa að geta verið þögull eða kyrr stundinni 418 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.