Heima er bezt - 01.12.1958, Blaðsíða 27

Heima er bezt - 01.12.1958, Blaðsíða 27
að drekka kaffið og heldur áfram að spjalla við Ástu. Hann segir: — Það kemur hingað á hverju sumri, þetta kaup- mannsdót, og setur hér allt á annan endann. Valur er þá upptekinn í útreiðartúrum með því dag eftir dag, því alltaf þarf það að skoða sig um í sveitinni, hvað oft sem það kemur. Ásta lítur á Svein, og köldu, sársaukafullu brosi bregður fyrir á andliti hennar. Hún segir svo: — Varð Valur ekki glaður við fréttina um gestakom- una hingað? — Ekki sá ég nein merki þess, að fréttin sú gleddi hann sérstaklega. Mér sýnist hann alltaf vera sama prúð- mennið, pilturinn sá. En Hildur var auðsjáanlega glöð yfir gestakomunni. Hún er líka svo fjarska hrifin af þessu fólki. Hún vonast kannske eftir tengdum við það. Að minnsta kosti lætur hún ósköpin öll með þessa Sísí kaupmannsdóttur. Ég heyrði hana einu sinni vera að segja Elínu frá því, að þessi Sísí væri hámenntuð og margbúin að sigla út í lönd, ég held helzt í kringum allan hnöttinn, eða því sem næst. — Það væri þá óskandi, að frú Hildur fengi hana fyrir tengdadóttur, fyrst ættir og auður, menntun og metorð eru á svona svipuðu stigi hjá Val og henni. — Já, ætli það verði ekki líka reynt að stuðla að því frá báðum hliðum. Kaupmannshjónin eru auðsjáanlega mjög hrifin af Val, sem mig undrar ekki, en hvað , honum sjálfum líður í þeim efnum, er mér ókunnugt um. Þórður fer nú bráðum að segja af sér embættinu, og þá tekur Valur við þessu öllu saman. Og Hildur mín kann nú líklega betur við jafnræði, þegar einka- sonurinn velur konu í sætið hennar, ef ég þekki hana rétt. Sveinn hefir nú lokið úr bollanum, og Ásta rennir aftur í hann handa honum. En hönd hennar er óvenju- lega óstyrk, og blóðið hverfur skyndilega úr kinnum hennar. Hún sezt á stól við eldhúsborðið og reynir að sigrast á þessum óþægindum, sem ásækja hana, en það verður henni um megn: Allt verður þokukennt og óljóst umhverfis hana, og máttvana höfuð hennar hallast fram á eldhúsborðið, og hún fellur í yfirlið. Sveini verður skyndilega litið á Ástu og bregður ónotalega við. Hvað gengur að stúlkunni? Hann sprett- ur upp af stólnum og þýtur fram úr eldhúsinu til þess að ná í hjálp. í forstofunni mætir hann Þórði sýslu- manni og Val, og Sveinn segir í flýti: — Valur, komdu með mér til aðstoðar, Ásta er fall- in í öngvit inni í eldhúsinu. — Valur lítur snöggt og spyrjandi á Svein og spyr: — Hvað hefir komið fyrir hana? — Ég veit enga orsök til þess, svarar Sveinn. Valur spyr ekki um fleira, hann þýtur eins og örskot inn í eldhúsið og nemur staðar hjá Ástu. Með sterkum örmum lyftir hann henni upp í faðm sinn og þrýstir henni mjúldega að sér. í annað sinn hvílir hún ósjálf- bjarga við brjóst hans, og nú meðvitundarlaus. Hann sezt með hana á stólinn, þar sem hún sat áður, og hjartað byltist í barmi hans heitt og spyrjandi. Hvað hefir komið fyrir stúlkuna, sem hann ætlar alltaf að vemda? Sveinn kemur aftur inn í eldhúsið á eftir Val og nær í kalt vatn fyrir hann. Svo hjálpast þeir að þvx að vekja Ástu til meðvitundar á ný. Þórður sýslumaður hefir gengið inn að eldhússdyrunum og staðnæmzt þar. Hann sér að hans muni engin hjálpar þörf þar inni, og fer því ekki lengra, en stendur kyrr um stund og fylgist af athygli með því, sem fram fer inni í eldhúsinu. Frítt og barnslegt stúlkuandlitið, sem hvílir náfölt við brjóst Vals sonar hans, og bærir ekki á sér, veltur hjá honum hlýjar og viðkvæmar tilfinningar, sem gagntaka huga hans og gera hann ldökkvan. Sýslumanninum er nú nokkurnveginn kunnugt um hagi Ástu, en fátækt og umkomuleysi eru engin lýti að hans dómi, heldur aðeins köld og miskunnarlaus örlög, sem svo margar mannperlur hljóta í vöggugjöf, og fá jafnvel aldrei umflúið, og þessi unga stúlka er ein þeirra. Hún hefir einu sinni vakið hjá honum traust og virðingu, og því verður ekki breytt. Þórður sýslumaður fylgist með hverri hreyfingu son- ar síns, og honum er það fyllilega ljóst, hver sá aflgjafi er, sem stjórnar höndum hans á þessari stundu. Hlýtt og góðmannlegt bros líður yfir andlit sýslumannsins og endurspeglar göfugt hugarfar hans. Ekki skal hann á neinn hátt varpa skugga á hamingju sonar síns. Valur er fullkomlega frjáls gerða sinna fyrir honum. Ásta bærir nú varirnar og opnar hálflukt augun. Hún er að vakna til lífsins á ný. Valur lítur til föður síns, og augu feðganna mætast. Þeir brosa báðir, og bros þeirra hvísla í þögninni hinu helga leyndarmáli, sem engin orð hafa sagt ennþá. En þeir skilja hvor annan. (Framhald). * • VILLI •••••• \

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.