Heima er bezt - 01.12.1958, Blaðsíða 28

Heima er bezt - 01.12.1958, Blaðsíða 28
GUÐRÚN FRÁ LUNDI TÓLFTI HLUTI „Það er eðlilegt að hún sé föl,“ sagði Geirlaug. „Hún er nýlega stigin af sæng. Eignaðist fallegan dreng. Svo skaltu nú fara að drekka kaffið, áður en það verður kalt.“ „Nú jæja, voru þau að eignast dreng, og það er fyrsta barn þeirra. Líklega kemur þar Jón.“ Hann talaði eins og Rósa væri hvergi nærri. „Þetta er að verða stór- bóndi, Kristján ráðsmaður. En er hann ekki hálfgerður lubbi við hana? Lítinn orðstír fær hann hjá fólkinu, sem vinnur hjá honum og býr í nágrenni við hann. Því finnst vera skipt um húsbændur á Hofi, þó að ekki sé hægt að segja að það sé kominn köttur í ból bjarnar þar sem hann er ólíkt stærri en blessaður séra Jón.“ Rósa hörfaði burt úr maskínuhúsinu án þess að fá kaffið. — Gat það átt sér stað, að í þessu drykkjurausi væri svar við því, sem hún hafði svo oft brotið heilann um en aldrei skilið, hvers vegna móðir hennar yfirgaf Hof. Rósa lagði sig undir sæng, því hún var svefnþurfi, en nú gat hún ekki sofnað. — Gat þetta hafa átt sér stað? Eitthvað hafði áreiðanlega komið fyrir á milli Kristjáns og móður hennar. Það var hún viss um. Eitt- hvað, sem enginn vildi tala um við hana. Rétt fyrir háttatíma um kvöldið, þegar Rósa reyndi að róa drenginn með því að ganga um gólf með hann fram og aftur, eins og Geirlaug hafði ráðlagt henni, kom Kristján inn. „Eitthvað heyrist í þessu barni ennþá. Ég skil nú bara ekkert í þessu. Litla telpan á Sléttu, sem fæddist um líkt leyti og hann, sefur bæði nótt og dag sagði hún móðir hennar mér. Ég kom þar í dag og drakk kaffi. Hún er líka mikið stærri en hann,“ sagði hann. „Er það nokkuð undarlegt, þó að heilbrigt barn þríf- ist betur en veikt?“ sagði Rósa. „Þetta er nú heldur engin skynsemi, að koma barn- inu upp á að ganga með hann um gólf. Náttúrlega vill hann hafa það alltaf, þegar hann er vakandi, og útkom- an verður svo sú, að þú getur aldrei gert neitt annað en að vera með hann í fanginu. Konan á Sléttu sagðist 430 Heima er bezt aldrei taka dóttur sína upp, nema þegar hún skipti á henni,“ rausaði hann. Rósu langaði helzt til að gráta af gremju. Það var engu líkara en að maður hennar reyndi að særa hana með hverju orði sem hann sagði. „Því skyldi hún þurfa að taka hana upp, alheilbrigt barnið. Það myndi ég áreiðanlega ekki gera, ef ég væri ekki að reyna að láta honum líða betur, ef hægt væri, þessa fáu daga sem hann verður hjá mér. Þegar hann er dáin fer ég héðan alfarin,“ sagði hún skjálfrödduð. „Jæja, ekki get ég gert að því, þó að barnið sé lasið. Veikt getur það varla talizt, og engin hætta er á að það fari í garðinn. Vertu bara róleg, því að ekki sé ég, hvert þú ættir að fara. Varla býst ég við að þín mikla móðir muni breiða faðm sinn á móti þér ef þú flýrð til henn- ar, fyrst hún hefur aldrei tíma eða löngun til að skrifa þér línu,“ sagði Kristján nú kaldranalega. „Hvers vegna þurfti hún að fara frá Hofi og yfir- gefa allt, sem henni var kærast?“ sagði Rósa. „Hvers vegna forðast hún mig og allt, sem minnir hana á átt- hagana? Ég hef reynt að fá svör við þessum spurning- um. Nú dettur mér í hug að það munir vera þú, sem getur svarað þeim.“ „Alltaf dettur þessu kvenfólki eitthvað í hug,“ sagði Kristján. „Það er sjálfsagt Þúfnahyskið, sem kemur svona löguðu inn í kollinn á þér. Þú ert eða hefur verið ólöt að brokka suður eftir til að hlusta á óhróðursruglið í því.“ „Það er hvorki þvaður eða bakmælgi sem það fólk segir, og aldrei hallar það á þig einu orði, en þú ert hins vegar alltaf að baktala það. Þér finnst það víst of gott fyrir mig að fara á bæi frá þessu heimili, eins og það er orðið, samsafn af halfgerðum fávitum og aumingjum. Það var eitthvað annað, þegar foreldrar mínir voru hér húsbændur.“ ' „Þú gætir áreiðanlega haft það skemmtilegra, ef þú værir bara nokkur húsmóðir.“ Svo skall hurðin á hæla honum. Rósa stundi þunglega. Þetta var svo sem ekki í fyrsta skipti sem hann gaf það í skyn, að hún stæði illa í stöðu sinni, og hún sá, að það var ekki ofsagt, ef hún var \

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.