Heima er bezt - 01.12.1958, Page 30

Heima er bezt - 01.12.1958, Page 30
„Sízt var það furða,“ sagði frúin. „Það er bezt að ég líti á litla manninn, fyrst ég er hingað komin.“ „Það er bara allt á öðrum endanum hjá mér,“ sagði Rósa, en fylgdi þó gestinum inn. Hún varð að þola svo margt þegar góðkunningjar móður hennar komu á heimilið og sáu, hvernig það var og hugsuðu um það, sem áður hafði verið. Fá og illa útlítandi hjú, lítilfjör- Iega húsfreyju og núna hjónahúsið, eins og það leit út. Drengurinn svaf vært í hreinu rúmi. „Hann sefur vanalega svona vært fyrri part dagsins. Þá er ég að vona að honum fari að batna, en sú von svíkur mig alltaf. Ég er orðin alveg hjartveik yfir hon- um,“ sagði Rósa. Hún sá, að frúin gaf hjónarúminu auga. Það var líka hjákátlegt að sjá ein sængurföt í tvíbreiðu rúminu. „Sefur maðurinn þinn ekki hér inni?“ spurði frúin með lítilsvirðingu í rómnum. „Hann flutti sig fram í stofu, þegar drengurinn var svona óvær. Það er ekki heppilegt fyrir þá, sem vinna á daginn, að geta ekki sofið á nóttunni,“ sagði Rósa og þóttist nú hafa talað skynsamlega. En frúin leit ekki á þetta mál nema frá einni hlið, þeirri sem sneri að Rósu: „Svo að þú ert hér alein með veikt barnið þitt. Þú hefðir átt að senda til mín. Ég hefði getað látið þig hafa dropa handa honum,“ sagði hún með samúð. „Ég kann víst heldur lítið með hann að fara, bless- aðan drenginn minn,“ sagði Rósa með kjökurhljóði. „Viltu ekki koma með mér út eftir með hann og vera hjá mér meðan hann er að frískast?“ spurði frúin. „Þú hefur svo góða stúlku til að hugsa um heimilið." Rósa fékk svima af gleði. Helzt hefði hún viljað hlaupa upp um hálsinn á þessari góðu, gráhærðu konu og kjökra við vanga hennar, en hún var nú ekkert bam lengur, og hún sagði aðeins: „Þakka þér fyrir þín miklu gæði við mig, frú Helga. Náttúrlega verð ég guðs- fegin.“ „Heldurðu að þú treystir þér til að ganga út eftir núna, eða ætlarðu að bíða eftir því, að maðurinn þinn flytji þig á hesti?“ spurði frúin. Svo bætti hún við: „En það verður kannske enginn tími til þess, frekar en að ná í meðul handa baminu.“ „Ég get vel gengið og borið hann alla leið. Það verður víst ekki erfiðara en að vaka yfir honum vonlaus og ráðalaus,“ sagði Rósa. Geirlaug kom nú inn og sagði, að kaffið væri komið á könnuna. Það væri lílca gestur á leiðinni hér sunnan túnið. Rósa leit út um gluggann og sá, að það var Lauga í Þúfum. „Þá skulum við flýta okkur að drelcka kaffið, svo að við getum lagt af stað með litla manninn meðan hann sefur,“ sagði frúin. Rósa gaf sér tíma til að fara út á móti Laugu. Hún var jafn hlý og góð og hún var vön að vera. „Mér var ekki sama þegar ég frétti, að drengurinn þinn væri lasinn. Mamma er nú orðin svo hress, að hún getur hugsað um pabba, svo að ég hljóp hingað,“ sagði hún. Rósa sagði henni í fáum orðum hvað til stæði fyrir sér. Guð hefði sent sér hjálp, og hún væri að fara með barnið burtu núna samstundis. Kannske alfarin. „Það er ómögulegt að þú gerir það, Rósa, en ef þú treystir þér til að ganga út eftir, þá skal ég fara með þér og bera drenginn. Það er ekki svo langt,“ sagði Lauga. Þegar búið var að drelcka lcaffið, lagði allur lcvenna- skarinn af stað. Geirlaug fór með þeim þó nokkuð langt út á melana og bar reifastrangann. Hún gat vel snert á honum sofandi. „Bölvað dund er í kerlingunni,“ sagði Kristján, þegar hann lcorn heim um náttmál og sá, að Geirlaug var enn- þá við hlóðirnar. „Rær hún elcki þarna yfir ullinni enn og lætur kýrnar standa í túninu.“ Hann sendi Boggu eftir lcúnum en skálmaði sjálfur heim að hlóðum til Geirlaugar. „Mér þylcir þú vera heldur seinvirk við ullarþvottinn. Ertu ekki búin með þessi fáu reyfi enn?“ sagði hann. „Það hefur verið gestagangur í dag,“ svaraði hún. „Það er nýtt að gestagangur tefur fyrir, enda eru eklci þeir tímar, að fólk sé að leilca sér,“ sagði Kristján. „Hvaða gestir voru að finna þig? “ „Það var náttúrlega enginn að finna mig,“ sagði Geir- laug. „Það var læknisfrúin og frúin í Þúfum,“ bætti hún við háðsleg á svip. „Læknisfrúin?“ sagði Kristján hissa. „Hvað var hún . eiginlega að fara? Hún er ekki vön að koma hingað nema til kirkju.“ „Hún var að vitja um hann son þinn,“ svaraði Geir- laug, ánægð yfir að geta auðmýkt þennan kaldlynda húsbónda ofurlítið. „Hún hefur sjálfsagt verið búin að heyra eitthvað um það, að þeim Iiði ekki sem ákjósan- legast, mæðginunum. Þau fóru með henni út að Hvals- eyri. Þar ætla þau að vera þangað til hann er orðinn frískur, svo nú er hljóður bær á Hofi.“ Kristján var orðinn sótrauður af vonzku: „Það hefur náttúrlega verið Sigurlaug í Þúfum, sem fylgdi frúnni hingað heim,“.sagði hann. Geirlaug var fljót til svars: „Nei, hún lcorn heiman að frá sér á mjög svo heppilegri stundu til að bera bless- aðan litla kroppinn út eftir. Ég var þó svo manneskjuleg að bera hann út fyrir merkin.“ „Fóru þær gangandi allar saman?“ spurði Kristján. Hún játti því. „Það verður saga til næsta bæjar, þetta og annað eins. Náttúrlega er þetta allt úr Þúfnahyskinu, til að gera mér skömm og vanvirðu. Það hefði mátt vera einkennileg tilviljun, að Lauga skyldi koma einmitt í dag, ef hún hefði ekki vitað eitthvað um ferðir frúarinnar,“ þusaði Kristján. „Ég skal náttúrlega ekkert um það segja,“ svaraði Geirlaug. „Ég er bara innilega þakklát hverjum þeim, sem hefur talað við frúna. Þetta var ekki forsvaranlegt, að láta manneskjuna sitja þarna aleina yfir veiku barn- 432 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.