Heima er bezt - 01.12.1958, Side 38

Heima er bezt - 01.12.1958, Side 38
1. hluti (desemher 1958) FLESTALLÍR KRAKKAR á íslandi þekkja Árna-bækurnar hans Ármanns Kr. Einarssonar. Það ætti því ekki að vera mikill vandi fyrir ykkur að svara fyrstu spurningunni í barnagetrauninni okkar að þessu sinni. Eins og þið vitið, var Árni strákur úr Reykjavík, sem fór upp í sveit til að vinna fyrir sér. Þar dvaldist hann á koti í Heklusveit og lenti í ótal ævintýrum. Og hér kemur svo fyrsta spurningin: Hvað hét bærinn, sem Árni dvaldist á? ALLIR KRAKKAR, 16 ára og yngri, geta tekið þátt í verð- launagetrauninni og hafa þá um leið möguleika á að eignast einhvern af hinum glæsilegu vinningum, sem sagt er frá á baksíðu þessa heftis. SVARIÐ við spurningunni á ekki að senda strax til blaðsins, heldur þegar getrauninni lýkur, í febrúar, og verður ykkur skýrt nánar frá því, þegar þar að kemur. Ný verSIaunagetraun Iiefst í janúarblaáinu ÞRENN GLÆSILEG VERÐLAUN: FERGUSON heykló FERGUSON reimskífa FERGUSO N dráttarkrókur, sj álfvirkur Að verðmæti samanlagt kr. 5.645.00 þann fjórða eitt geigvænlegasta eldfjall landsins með hinum ofsafengnu jökulhlaupum í meira en 200 ár. Hefur mér því þótt viðeigandi að saga jarðarinnar væri færð í letur eftir því sem heimildir ná til, þar sem ekki eru líkur til að þar verði aftur búið í nálægri fram- tíð, hvað sem síðar kann að verða. Nú hafa bændurnir í Fagradal tekið Höfðann á leigu og nota hann fyrir upprekstrarland. Hús í Hjörleifshöfða eru nú engin uppistandandi önnur en skipbrotsmannaskýli, sem Slysavarnafélagið hefur látið reisa neðan undir Höfðanum. Þegar síðasta Kötlugos dundi yfir 1918, var Höfða- bóndinn, Hallgrímur Bjarnason, staddur í Vík í verzl- unarerindum. Var hann tilbúinn til heimferðar þegar gosið og vatnsflóðið dundi yfir. Varð hann tepptur þar í þrjár vikur, en allan þann tíma var með öllu ófært yfir sandinn vegna vatnsflóða og íshranna. Ekkert vissi hann um afdrif fólks síns og fénaðar allan þann tíma, og eins gat verið að hann hefði lent í vatnsflóðinu á sandinum. Um það vissi heimafólk hans ekkert, fyrr en hann kem- ur öllum að óvörum heill á húfi eftir þessa löngu úti- vist, og munu þar hafa orðið miklir fagnaðarfundir. 440 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.