Heima er bezt - 01.12.1958, Blaðsíða 39

Heima er bezt - 01.12.1958, Blaðsíða 39
270. Nikulás herðir nú á mér að ég skuli sigla tafarlaust í land og auglýsa eftir hundinum. Ég skuli fá lánaðan seglbátinn hans, og bráðsnemma næsta morgun sigldi ég af stað til lands frá eynni okkar. 271. Þegar ég loksins náði landi, átti ég all-langan spöl fyrir höndum til póst- hússins. A leiðinni þykknaði í lofti og leit ískyggilega út. Ég var því ekki enn kominn á leiðarenda, þegar hræðilegt illviðri skall á. 272. Þegar ég var búinn að skila aug- lýsingunum á pósthúsinu, lagði ég aftur af stað í roki og hellirigningu þangað, sem ég hafði skilið bátinn eftir. En ég sá óðara, að stormurinn var meiri en bátskelin mín litla gæti þolað. 273. Þegar ég stend ráðalaus á bryggj- unni og horfi út á stormæstan sjóinn, kemur til mín þrekinn og herðabreiður fiskimaður og spyr mig vingjarnlega, hvers vegna ég standi hérna í þessu hrakviðri. 274. Ég segi honum frá vandræðum mínum, og þá býðst hann óðara til að flytja mig til eyjarinnar f báti sínum. „Ég ætla í þá átt hvort sem er. Við get- um tekið þinn bát aftan í. Það gengur allt vel, vertu viss!“ 275. Síðan förum við þangað, sem hann hefur trausta vélbátinn sinn bund- inn í skjóli við bryggjuna. Og nú verð ég alveg furðu sleginn við að sjá, hví- líkur kraftakarl þessi nýi vinur minn er, þegar hann fer að bera ofan í bátinn. 276. Svo höldum við af stað á vélbátn- um með seglbát minn aftan í. Þetta varð afar erfið ferð móti stormi og sjó í úr- hellisrigningu. En ég er nú samt meir en glaður yfir hjálpsemi fiskimannsins. 277. Þegar við loks komum til eyjarinn- ar, reyni ég að telja fiskimanninn á að koma heim með mér og drekka góðan kaffibolla, en hann hafði sagt mér að hann héti Olafur. Hann afþakkaði það. 278. Síðan kvaddi ég Ólaf og flýtti mér heim. Ég var ekki fyrr kominn í kofa- dyrnar en ég hrökk við: Þarna voru þá svallbræður Nikulásar og voru að halda að honum brennivíni!

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.