Heima er bezt - 01.01.1959, Page 8

Heima er bezt - 01.01.1959, Page 8
Árni Árnason frá Grund: Vertíáarspjall og aflakóngur í Eyjum 1958 Vetrarvertíð í Vestmannaeyjum er lokið fyrir árið 1958. Lokadagurinn er í dag. Sú var tíðin, að sá dagur var margt og mikið í senn. Hann var vertíðarlok, allsherjar greiðsludagur, land- frægur gleðidagur, en um leið mörgum skilnaðarstund skemmtilegrar samveru í Eyjum. Nú er þetta mjög á annan máta. Að vísu lýkur vertíð þennan dag samkvæmt gamalli venju, en allt frá síðustu mánaðamótum, þ. e. apríl—maí, hefur margt vertíðarfólk verið að halda lokin. Það hefur verið að fá endanlegt uppgjör hjá útgerðarmönnum og fiskvinnsluhúsunum, stigið síðan upp í flugvélina og farið upp til meginlands- ins í hundraðatali. Einnig fara kaupgreiðslur víðast fram mánaðarlega eða jafnvel vikulega, svo að það fer nú orð- ið ekki svo mikið fyrir lokadeginum að því leyti. Allar fyrrum sjálfsagðar lokadagsathafnir dreifast nú til dags á eina viku eða jafnvel tíu daga. Þó er ávallt einhver sér- stakur blær yfir þessum fornfræga degi. Þegar engin ó- höpp hafa komið fyrir og vel hefur aflazt á vertiðinni, er lundin kát og hress þennan dag. Góðir vinir gleðjast saman, þakka samverustundirnar, óska hver öðrum góðr- ar ferðar og heimkomu og gleðilegs sumars. Já, það er glatt á hjalla á lokadaginn eða um lokin, eins og vera ber. Það er skálað og drukkin minni manna og kvenna, skálað fyrir vaxandi velgengni, fyrir góðra vina sam- fundum í Eyjum á næstu vertíð o. fl. Lokin eru líka tímamót þrungin af alvarlegum hugs- unum. Marga vertíðina hafa orðið hér stór slys á mönn- um og bátum. Margur hefur oft átt um sárt að binda, og einmitt um lokin rifjast hinir hryggilegu atburðir helzt upp fyrir fólki. Máske voru það atburðir, sem ollu straumhvörfum í lífi þess, í lífi Eyjabúa eða einhverra landsbúa. Þó sjómönnum sé mjög á móti skapi að hugsa eða tala um hætturnar á sjónum, sem ávallt eru við bæði borð farkostsins, hryggjast þeir með hryggum og syrgj- andi og taka innilega þátt í sorg þeirra og erfiðleikum. En þeir gleðjast líka innilega með Eyverjum yfir hverri þeirri vertíð, sem lýkur farsællega og án slysa. Auðvitað er skálað fyrir því og minni Eyjanna óspart drukkin. Vertíðin í Eyjum er liðin. Þessu þýðingarmesta tíma- bili í árlegri velferðarsögu þeirra er lokið. Þó fast væri sótt á fjarlæg mið og oft væri „þungur róður“ eftir þeim gula, sem ýmist var sóttur vestur á Selvogsbanka eða austur að Ingólfshöfða, þó veður væru hörð og yggldur sjór, komu allir heilir í höfn. Enginn bátur týndist og eklcert mannslíf misstist í þessum hörðu átökum við út- hafið. Er það mikið gleðiefni og þakkarverð forsjá þess, er öllu stjórnar, fyrir lífi og limum skipshafna þeirra 130 vélbáta, sem stunduðu veiðar frá Eyjum í vetur auk fjölda trillubáta. Fyrir þessu er sjálfsagt að skála á loka- daginn. Mjög eykur það og á gleði almennings, að fjárhagsleg afkoma hans er í flestum tilfellum mjög góð eftir ver- tíðina og hjá sumum góð með eindæmum. Margur ver- maðurinn fer þess vegna með miklar og verðskuldaðar fjárhæðir, mikil vinnulaun fyrir þrotlaust erfiði og vök- ur við mikil og góð störf í þágu Eyjanna, lands og þjóð- ar. Þeir eru líka glaðir og reifir í anda og athöfnum, líta björtum augum til náinnar framtíðar, hlakka til nokk- urra daga hvíldar heima hjá ástvinum sínum og að gleðj- ast með þeim yfir góðum feng og farsælli vertíð í Eyj- unum. Að sjálfsögðu er hlutur manna nokkuð misjafn, þótt góður sé. Afli 130 báta getur vart orðið jafn að magni. Hann mun t. d. í ár vera allt frá 320 til 1200 smál. á bát. Ávallt eru einhverjir óheppnir eða kannske allt að því hálfgerðar „fiskifælur“ og aðrir, sem skara fram úr með aflabrögð, t. d. beztu bátarnir, beztu fiskimennimir og úrvals skipshafnimar. Þannig er það í hverri verstöð. Fiskimannshæfileikar em eftirsóttir eiginleikar sjó- mannastéttarinnar, sem mönnum era misjafnlega gefnir. Hér í Eyjum em þessir kostir tengdir við stéttina í rík- um mæli, og er á engan hallað, þó svo sé sagt. Verstöðin er þannig í sveit sett, að hún krefst þeirra afdráttarlaust ásamt úrvals farkosti, ef vel á að fara. Afburða fiskimenn og sjómenn hafa verið hér margir síðan vélbátaútvegur- Skipshöfn mb. Gullborgar 1958 (vantar tvo á myndina).

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.