Heima er bezt - 01.01.1959, Page 12

Heima er bezt - 01.01.1959, Page 12
er Binni frá Gröf,“ sagði fólkið og skálaði fyrir honum á sjómannadaginn. Vertíðin 1958 hófst í Eyjum strax upp úr áramótum. Er jiað einhver sú stærsta í sögu þeirra með tilliti til þess, að 130 vélbátar voru að veiðum þaðan, auk fjölda trillu- báta. Af þessum 130 bátum voru 38 aðkomubátar, stórir og smáir. Gert var út á línu, net og handfæri, og varð vertíðin einhver sú bezta og aflamesta nema hjá hand- færabátunum. Afli þeirra varð yfirleitt mjög rýr og af- koman slæm fjárhagslega. í byrjun vertíðar leit fremur illa út með afla. Þorskur sást helzt ekki, hvar sem leitað var. Þá bjargaði það veið- unum að mjög mikið gekk á miðin af ýsu, keilu og löngu og varð af ágætur afli hjá mörgum bátum. Heldur lag- aðist þetta er á leið, en verulegur þorskafli varð þó ekki. Fyrst í marzmánuði lögðu menn þorskanet vestan Eyja, en afli varð fremur lítill. Þá fluttu menn netin „undir Sand“, og nú skeði það merkilega, að þar varð strax ágætur afli og batnaði stöðugt. Varð mjög góður afli í þeim mánuði, svo að 31. marz eru margir bátar komnir með 450—550 smálestir. Ekki brást apríl fremur venju, því að segja má að allan þann mánuð hafi verið ágætur afli og allt fram undir lokadag. Mjög var spjallað um aflakóng Eyjanna á þessari ver- tíð, og hver hljóta myndi titilinn. Það er nú orðin sú tignarstaða, að menn fylgjast vel með því, hver hreppi hana. Avallt geta breytingar komið til mála. Búizt var við harðari keppni nú en nokkru sinni áður. Austfjarða- bátarnir höfðu sýnt það 1957, að þeir voru hættulegir keppinautar, þar eð þeir urðu fjórir næstir Binna á Gull- borgu, þ. e. Víðir frá Eskifirði með 743 smál., Snœfugl Su. 711 smál., Björg Su. 6)5 smál. og Gullfaxi NK 653 smálestir. Margir urðu því til að spá sigri þeirra á þessari vertíð. Aðrir trúðu á Binna og enn aðrir á ýmsa Eyja- báta, svo sem Stígavda, Freyju, Erling 3., Kristbjörgu, Hannes lóðs o. fl. Formenn í Eyjum Iögðu fátt til þessa mikla áhuga- máls almennings og spáðu engu um. Trú mín er hins vegar sú, að þeir hafi strax í byrjun vertíðar hugsað Binna þegjandi þörfina, stigið á borðstokkinn og strengt þess heit að sýna honum í tvo aflaheimana. Væri og ekki ósennilegt, að þeim hafi fundizt tilhlýðilegt að manna- skipti yrðu í hásætinu. Hvað Binna viðkemur hygg ég hann hafi hugsað sín mál í kyrrþev, hann er vanur því, og heitið því með sjálfum sér að gefast ekki upp að ó- revndu. Hins vegar þekkti hann keppinauta sína og var fullkunnugt um, að þeir voru engir veiðiglópar. Nei, það var nú eitthvað annað. Þeir voru á góðum, nýjum bátum, sem gengu eins og togarar, og höfðu úrvals skips- hafnir innanborðs. En keppnin er skemmtileg, og þar sem enginn verður óbarinn biskup, var bezt að taka mannlega á móti. Þessir veiðigarpar veittu Benóný fljótt harða atlögu, er á vertíð leið, en hann varðist af mikilli hörku. Veiði- snilldin brást honum ekki, því þótt fyrir kærnu dagar, sem aðrir voru aflahærri, jafnaði hann metin næstu daga * og hækkaði aflamagn sitt jafnt og örugglega. Hann fisk- aði austur með landinu, þegar aðrir voru vestan Evja, en þegar flotinn kom austur með, þá flutti hann sig vestur, alveg eins og hann fyndi á sér að fiskurinn var að færa sig. Aflinn brást ekki. Um miðjan apríl hafði hann raunverulega fiskað meginpart vertíðarafla síns og var þá örugglega hæstur að mun. Harða atlögu gerði Ófeigur þriðji með mjög mikilli aflahrotu, svo að ekkert stóðst fyrir honum. Þó náði sú sókn ekki að knésetja Binna á Gullborgu. Lokasprettinn tók hann svo um mánaðamótin og sótti þá austur með Iandinu, fiskaði vel og endaði vertíðina daginn fyrir lokadag með 65 smál. róðri. Hafði þá aflað alls 1291 smál. yfir vertíðina. Hann hafði orðið aflakóngur Eyjanna í fimmta sinn og slegið öll met; orðið aflahæsti bátur landsins og konungur aflakónganna 1958. Formenn óskuðu kappanum til hamingju og almenningur hyllti hann, en hann lofaði að verðleikum keppinauta sína í fengsælli og drengilegri keppni á vertíðinni. Benóný Friðriksson er aðeins 54 ára gamall, svro að ástæða er til þess að halda, að hann eigi langan og merki- legan starfsferil framundan. Starfsþrek hans er óbilað og hugurinn til hvers konar veiða mikill. Það munu varla líða margir dagar frá vertíðarlokum, þar til hann fer að búa bát sinn á síldveiðar fvrir Norðurlandi. í millitíð væri hann vísastur til þess að skreppa á trillubát út á heimamiðin með línustubba eða handfæri. Hann kann ekki við sig í landi og unir hvergi nema á sjónum. Þar er hans rétti vettvangur, að róa og fiska í hvers kon- ar veiðarfæri, troll, herpinót, línu, net, handfæri og flotvörpur. Aflasældin er ávallt sú sama. Ekki veigrar hann sér heldur við að veiða lunda í háf upp um fjöll og firnindi. í þeirri íþrótt er hann enginn meðalmaður en talinn til þeirra slyngustu, þótt enn hafi hann ekki orðið lundakóngur. En satt að segja væri honum alveg eins trúandi til þess að hreppa þann titil. Hann er ótrúlegur aflamaður, mér liggur við að segja yfirnáttúrlegur. Benóný er fremur lágur vexti, dökkur á brún og brá, móeygur og augun full af fjöri. Hann er þrekinn um herðar og þykkur um hönd, vel að kröftum búinn og léttur í skapi. Á fyrri árum var hann lipur knattspvrnu- maður og vel þjáífaður fimleikamaður, og býr hann enn vel að þeirri líkamsmennt. Allar hreyfingar hans eru léttar, mjúkar og fjaðurmagnaðar, viðbrögðin snörp og handtökin til allra verka föst og viss. Að þessu leyti hef- ur hann verið til fyrirmyndar skipshöfnum sínum sem og um alla sjómannshæfni. Til hans hafa ávallt valizt góðir sjómenn, sem hafa kunnað að beita orku og sjó- mannssnilli við handtökin. Þeir hafa heldur ekki farið tómhentir frá borði Benónýs, en notið hins bezta fram- haldsskóla og fengið auk þess betri laun en nokkur skóli greiðir meisturum sínum. Það er meira en nemendur munu yfirleitt geta státað af. Benóný Friðriksson er kvæntur Katrínu Sigurðardótt- ur frá Þinghól í Hvolhreppi, Sveinssonar frá Moshvoli og konu hans, Jóhönnu Jónsdóttur frá Götu í sama hreppi. Katrín er fríðleikskona og mikilhæf og hcfur ekki sjaldan orðið að bíða í fjötrum óvissu og kvíða um afdrif manns síns í hildarleikjum hans við æst náttúru- (Framhald a bls. 11J. 8 Heirna er bezt

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.