Heima er bezt


Heima er bezt - 01.01.1959, Qupperneq 19

Heima er bezt - 01.01.1959, Qupperneq 19
Guðmundur G. Hagalín: Loftur Guðmundsson, ritliöfundur 1. Eur Guðmundsson hefur lengi verið vinsæll sem rithöfundur með þorra manna hér á íslandi og þá einkum fyrir gamanleikrit sín og skopþætti, og hermiljóðin og háðpistlana, sem hann birti í mörg ár í Alþýðublaðinu og kallaði Brotna penna. Þá vöktu drengjasögur hans athygli — ekki aðeins barna og unglinga, heldur og allra, sem gera sér far um að fylgjast með því helzta, er út kemur nýtt og nýtilegt eftir íslenzk skáld og rithöfunda. En ekkert, sem kom- ið hefur frá hendi Lofts, hefur vakið jafnmikið umtal og um leið hlotið svo mismunandi dóma sem skáldsag- an Jónsmessunæturmartröð, er út kom í fyrra, enda er hún ærið sérstæð um form og frásagnarhátt og kemur víðar við en flest önnur skáldrit, sem íslenzkir rithöf- undar hafa skrifað. Og þó að Loftur hafi áður ritað og rímað sitthvað, sem ég er honum þakklátur fyrir, er það fyrst og fremst vegna þessa skáldrits hans, sem ég finn hvöt hjá mér til að skrifa um hann þetta greinarkom. 2. Loftur er fæddur í Þúfukoti í Kjós 7. júní 1906. Lor- eldrar hans bjuggu þar búi sínu, og var Loftur þar heima fyrstu seytján ár ævinnar. Hann var snemma bók- hneigður og átti meiri kost bóka en flestir jafnaldrar hans, því að faðir hans var mikill vinur Guðmundar bóksala Gamalíelssonar og fékk hjá honum flest það nýtilegasta, sem út kom á íslenzku. Loftur las mest fyrstu árin eftir að hann varð læs Þjóðsögur og ævin- týri Jóns Árnasonar, en síðan sögur Jóns Trausta og ljóðmæli Matthíasar Jochumssonar. Þá las hann einnig ýmsar þýddar skemmtisögur og þótti sérlega varið i þær, sem fjölluðu um sem framandlegast líf og furðu- legasta atburði. Loftur komst snemma upp á að yrkja ferskeytlur, en ekki fór hann þó að iðka kveðskap fyrr en hann var orðinn tólf ára gamall. Þá orti hann um hríð hvert kvæðið af öðru fram að fimmtán ára aldri, en þá tók hugur hans að hneigjast að leikritagerð. Kjós- verjar léku Skuggasvein, og var Loftur fenginn til að leika þar eitt af smæstu hlutverkunum. Hann fylgdist með öllu því, sem fram fór að tjaldabaki og æfingum íeikendanna, og samtímis þessu tók hann að lesa leikrit Jóhanns Sigurjónssonar, Bóndann á Hrauni og Fjalla- Eyvind. Hann samdi síðan nokkur smáleikrit og lifði meira í ímynduðum heimi næstu tvö árin en í hvers- dagslegri veröld Kjósarinnar. Þegar hann var orðinn seytján ára, fór hann til náms í Reykjavík, nam þar í tvo vetur ensku og þýzku, en hafði áður numið dönsku heima í sveit sinni. Hann las nú fjöldra erlendra skáldrita, meðal annars sögur eftir Alexander Dumas eldri og Charles Dickens. Sögur Dumas svöluðu ævintýraþrá hans, og persónulýsingar Dickens urðu honum ógleymanlegar. Þá var hann og mjög hrifinn af skopi og háði Dickens, svo sem að lík- um lætur, þar eð þetta snart skylda strengi hið innra með honum sjálfum. Loftur tók nú að stunda barnakennslu í sveit sinni, en síðan fór hann í Kennaraskólann og lauk þar námi. Haustið eftir að hann tók kennarapróf fór hann til Noregs, Svíþjóðar og Þýzkalands, fór í leikhús í öllum þessum löndum og stundaði nám í Svíþjóð í nokkra mánuði. Haustið 1932 varð hann kennari á Stokkseyri, en síðan í Vestmannaeyjum. Þar var hann við kennslu í tólf ár, — eða til vorsins 1945, en síðan fluttist hann til Reykjavíkur og hefur stundað þar blaðamennsku sem aðalatvinnu fram að þessu. I Vestmannaeyjum tók Loftur að stunda ritstörf af meiri festu og alvöru en áður. Hann samdi fyrst nokk- ur leikrit handa börnum, en síðan Brimhljóð, sem leikið var fimmtán sinnum í Reykjavík og hlaut yfirleitt mjög góða dóma. Síðan hefur Loftur samið ýmis gamanleik- rit, sem bæði hafa verið leikin í útvarp og víða um land á leiksviði. Kunnust þeirra eru Hreppstjórinn á Hraun- hamri og Seðlaskipti og ást, og eru þau nú bæði að koma út í leikritasafni Bókaútgáfu Menningarsjóðs. Þá hefur Loftur samið revýu, sem leikin var í Hafnarfirði, og fjölda gamanvísna og gamanþátta — að ógleymdum Brotnum pennum. Einnig hafa komið frá hans hendi nokkrar smásögur, þrjár drengjasögur — og loks hin langa og sérstæða skáldsaga Jónsmessunætumatröð. Ur- val úr kvæðum þeim, sem hann lét Leif Leirs birta í Brotnum pennum, gaf hann út í bók, sem heitir Óöldin okkar. 3. Þegar ég átti heima á ísafirði, sætti ég oft færi að fara til Reykjavíkur, þegar sýnd voru leikrit, sem mig langaði að sjá. Og þá er ég las í blöðunum, að sýna ætti leikrit eftir áður óþekktan íslenzkan höfund, Loft Guðmundsson, brá ég mér suður, fór í leikhúsið og sá þar Brimhljóð. Mér þótti það mjög athyglisvert, og fátt í íslenzkum leikbókmenntum hefur orðið mér minnisstæðara en einn þáttur þess. Það er sá, sem gerist í beitingarskúrnum. Yfir honum er hvort tveggja í senn: Hcima er bezt 15

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.