Heima er bezt - 01.01.1959, Page 33

Heima er bezt - 01.01.1959, Page 33
ÞRETTÁNDI HLUTI Kristjáni leið viðlíka og ef Leifi hefði hellt yfir hann kaldri vatnsgusu. Hann tautaði eitthvað um, að hér væri það mesta kjaftabæli, sem hann hefði þekkt. Svo rauk hann út á tún og var búinn að slá marga skára, þegar hinir sláttumennirnir komu út. Leifi var glaðklakkalegur á svipinn: „Þetta eru nú skárri hamfarirnar við sláttinn! Þú verður ekki lengi með sléttuna með þessu áframhaldi.“ Næsta morgun kom Kristján fram úr hjónahúsinu klukkan hálfsjö. Hann kallaði, um leið og hann gekk gegnum baðstofuna: „Rismál, piltar! Rismál!“ Kaupamaðurinn fór að hreyfa sig. Leifi reis þá líka upp, ók sér og geispaði: „Það er svo sem sama vinnu- kergjan hjá honum og verið hefur, kauðanum þessum,“ tautaði hann. Þegar þeir komu út var orfið húsbóndans óhreyft og hann hvergi sjáanlegur. Hvað skyldi nú vera í kollinum á honum? Líldega væri hann að reyna að sarga út ein- hverja kvenmannshræðu, því að nú leit út fyrir þurrk. Þeir höfðu ekki slegið lengi, þegar þeir sáu Kristján koma flengríðandi ofan úr fjalli á Rauð sínum, með Bleik Rósu í taumi. Það var lagður söðull og hnakkur á hestana. Kristján kom út í slægjuna til sláttumannanna og bað þá að rifja flekkina, því að kvenfólkið þyrfti að fara á kvíarnar. Svo settist hann í hnakkinn og þeysti af stað út í kaupstað. Geirlaug kallaði til þeirra að koma og drekka morg- unkaffið. „Þarna hafði ég hann þá af stað eftir konunni. Mér datt í hug að það væri kannske hægt að velgja honum. Það eru færri sem þola svona lagað, þó að stilltari séu en hann,“ sagði Leifi hreykinn. „Þú reynir oftast að koma illu af stað ef þú getur,“ sagði Geinlaug umbúðalaust. „Já, mér er ósárt þó að Kristjáni svíði. Þetta er sú bölvuð gorkúla, uppþembd gorkúla. Ég segi náttúrlega ekkcrt um það, hvort nokkur hæfa er í þessu, en það væri bara ágætt á hann. En það veit ég að er satt, að það var presturinn, sem hafði frúna til að fara þarna út eftir. Hann er brjóstgóður, manntetrið.“ Um miðjan dag reið Rósa í hlaðið. Kristján var tals- vert á eftir með son sinn í fanginu, en Bleikur hafði verið viljugur, og Rósa hafði ekkert á móti því að spretta úr spori. Það var langt síðan hún hafði komið á hestbak. Geirlaug fagnaði mjög heimkomu Rósu. Það var mikill munur að sjá hana og barnið, eða þegar þau fóru út eftir. Kristján var ákaflega stimamjúkur við konu sína og kjáði framan í drenginn í hvert skipti, sem hann kom inn í húsið. En lítið varð eftirvinnan á túninu meiri, þó að hús- móðirin væri komin heim. Geirlaug setti ekki inniverkin á hilluna, þótt til þess væri ætlazt. Nokkrum dögum seinna kom séra Gísli inn að Hofi til að jarðsyngja gamla manninn frá Þúfum. Kristjáni sýndist hann heilsa Rósu miklu innilegar en vanalega. Og það þóttust reyndar fleiri taka eftir því. Ruglið úr Leifa hafði borizt milli bæjanna. Vinnu- konurnar höfðu hreyft því við mjaltakonumar á kví- unum. Jarðarförin var fjölmenn og erfisdrykkjan myndar- leg í alla staði. Um kvöldið sagði Kristján við konu sína: „Næsta veizla verður skírnarveizlan hjá þér, góða mín. Þú skalt nú hiðja mömmu þína að senda þér bankabókina þína norður og halda stóra veizlu. Við skulum dansa, fyrst drengurinn okkar er orðinn frískur.“ Rósa hló köldum hlátri: „Það skvldi ekki vera hægt að halda skírnarveizlu án þess að fá bankabókina," sagði hún. „Hvernig skyldi það í Þúfum hafa getað gefið svona mörgu fólki kaffi og það fínt kaffi. Líklega hafa þau enga bankabók átt til að grípa til. Ég held að ég láti skíra drenginn í kirkjunni einhvern messudaginn, ef efnahagurinn er svo bágborinn, að ekki sé hægt að baka kökur.“ „Það er ólíku saman að jafna ástæðum okkar Stefáns í Þúfum, þó að hann hafi náttúrlega minna bú. Hann Heima er bezt 29

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.