Heima er bezt - 01.01.1959, Side 39

Heima er bezt - 01.01.1959, Side 39
HEIMA __________ “zi BÓKAHILLAN Bjöm J. Blöndal: Örlagaþræðir. Reykjavík 1958. Norðri. Þetta er fimmta bók, en jafnframt fyrsta skáldsaga höfundar. En þótt hann velji nú skáldsöguformið, er skyldleikinn við fyrri bækurnar auðsær. Enn sem fyrr er það náttúruunnandinn og sagnamaðurinn, sem hefur orðið. Skáldsöguþráðurinn sjálfur er slitróttur og ekki efnismikill. Hann er raunar umgerð um litauðg- ar og heillandi myndir af náttúru landsins og þjóðlífi, ævintýri og sagnir. En þar nær höfundur sér á strik að venju. Enda er það svo, að það er raunar sama við hverju penni Björns Blöndals snertir, allt verður þar að lífi og list. Lýsingar hans á heimilis- háttum, rjúpnaveiðunum og ævintýrið um Papann eru hreinustu perlur. Þá má ekki gleyma sögunni að göngunum og Grími grall- ara og sögum hans, sem fáa eiga sína líka. En alls staðar fer saman stílsnilld höfundar og ást hans á viðfangsefninu, hvort heldur hann lýsir náttúru landsins eða mönnum. En mér finnst fátt ein- kenna hann betur. Ef hann tekur að segja frá einhverju, sem honum er ógeðfellt, er sem stíllinn bregðist, nema þar sem hann kemur við kímni sinni. En Björn er fundvís á það, sem skoplegt er í fari manna, og kann að bregða skoplegum blæ á það, sem honum þykir lítt til koma, og má þar t. d. nefna lýsingu hans á bókasöfnun sýslumannsins, þar sem hann lýsir hinu taumlausa söfnunaræði, sem ekki er ókunnugt fyrirbæri. Drykkjuskapur prestsins er öfgakenndari, en þó grunar mig, að höf. styðjist þar við einhverja sannsögulega reynslu. Þær eru ekki margar bækurnar, sem maður les í striklotu, án þess að leggja þær frá sér, en Örlagaþræðir er ein þeirra fáu. Á hún þar sammerkt við fyrri bækur höfundar. Still hans og frá- sagnargáfa er eins og áfengur drykkur, að mann þyrstir í meira, því meira sem neytt er. Þorsteinn Erlíngsson: Rit I—III. Reykjavík 1958. Isafoldarprentsmiðja h.f. Heildarútgáfa þessi af ritum Þorsteins Erlingssonar kom út á aldarafmæli hans. Eru það Þyrnar, Eiðurinn, Málleysingjar, safn af þjóðsögum og nokkrar ritgérðir. Fyrsta bindi hefst á ritgerð Sigurðar Nordals um skáldið. Tómas Guðmundsson hefur séð um útgáfuna. Gerir hann grein fyrir henni í stuttum formála og skrifar einnig stuttan eftirmála. Öll er útgáfan snotur að ytri sýn, yfirlætislaus og vönduð að frágangi. Það er eigi ætlunin að skrifa hér um rit Þorsteins Erlingssonar nema einungis benda á þessa nýju, fallegu útgáfu, enda eru ritin þegar svo kunn þjóðinni, að vafasamt er, hvort önnur skáld eru henni nákomnari. Um það vitna bezt hinar mörgu útgáfur verka Þorsteins, þótt aldrei hafi þau komið út í heild fyrr en nú. Er þetta þannig fimmta útgáfa af Þyrnum og Eiðnum, þriðja útgáfa af Málleysingjum og önnur útgáfa af þjóðsögunum. Þetta sýnir, að þjóðin kann að meta það, sem vel er gert. Ekki leikur það á tveimur tungum, að Þorsteinn Erlingsson er eitt mesta listaskáldið, sem þjóð vor hefur alið. En ljóð hans voru ekki einungis haglegt víravirki eða listvefnaður, heldur fluttu þau þjóðinni mikilvægan boðskap. Þau fluttu boðskap réttlætis, mannúðar og sannleika, þau eru ástaróður til íslands og alls þess, sem bezt er óg fegurst á íslandi og með íslenzkri þjóð. Og fáum hefur betur tekizt að kveða um ástir konu og manns. Kvæðin eru í senn alþjóðleg og rammíslenzk. Þrátt fyrir skaphita höfundar og ákafa í boðskap sínum, lúta ljóð hans þó ætíð lögmáli listarinnar, svo að ekki verður betur gert. Að vísu má segja um sum ádeilu- kvæði Þ. E., sem mestri ólgu ollu á sínum tíma, að þau séu nú að hverfa í skuggann með breyttum tímum. Hugsjónirnar, sem þar er barizt fyrir, eru orðnar veruleiki. En þó mun svo um meiri- hlutann af Ijóðunum, að þau eru sígild. Ljóðsagan Eiðurinn flytur mörg hin fegurstu ástakvæði, sem ort hafa verið á íslenzku, jafn áfeng og fersk og fyrir hálfri öld, þegar þau fyrst komu út í heild. Dýrasögur Þorsteins standa tvímælalaust að listfengi jafnfætis ljóðum hans. Og ef til vill hefur hann hvergi seilzt dýpra til skilnings á mannlegri sál og tilfinningum en i sumum þeirra, t. d. Sigurði mállausa og Sassanellu hinni sægöfugu. ' Þjóðsögurnar eru, eins og þjóðsögur gerast, misjafnar að gæð- um, þótt snillingshendur hafi um þær farið. Þykir mér nokkuð orka tvímælis um, hvort þær eigi heima í þessu safni. í ritgerð- unum er mikill fengur, og hefði ég kosið meira af slíku, jafnvel þótt um væri að ræða deilumál dagsins. Þorsteinn kvað um ljóð Sigurðar Breiðfjörðs: Álfar bjartir hoppa heim, húmið svarta er farið. Ég á margt að þakka þeim. Þeir hafa hjartað varið. Þau ummæli eiga bezt við hann sjálfan og Ijóð hans. Sven Poulsen og Holger Rosenberg: Islandsferðin. Geir Jónasson þýddi. Reykjavík 1958. Isafoldar- prentsmiðja h.f. Það var mikið um dýrðir á Islandi 1907, þegar Friðrik konungur VIII. heimsótti landið með fríðu föruneyti. Tveir danskir blaða- menn skrifuðu þá bók um ferð konungs og viðtökurnar allar. Kom hún út á næsta ári í Danmörku, og er nú eftir hálfa öld þýdd og prentuð á íslenzku. Var það vel til fundið, því að heim- sókn konungs var merkilegur atburður og hefur ef til vill orðið örlagaríkari i sögu vorri en margan grunar. Viðtökurnar, sem sumum þótti íburðarmiklar um of, voru með þeim hætti, að þær sýndu svart á hvítu, að hér byggi þjóð, sem um menningu stæði jafnfætis hverri þjóð annarri. Og vel munu þær hafa sýnt Dön- um, að ekki myndi til lengdar verða stætt á því að halda íslandi í böndum. Hannes Hafstein á miklar þakkir skildar fyrir það, með hve mikilli reisn og höfðingsskap viðtökurnar voru, og að gera þær þannig að vopni í sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar. I bók- inni er ferð konungs rakin af nákvæmni og getið margra smáat- riða auk höfuðatburðanna. Frásögnin er létt og gamansöm, eins og Dönum er títt. Höfundarnir eru hrifnir af landinu og viðtök- unum. Þeir segja sögu sína af ósvikinni góðvild til lands og þjóð- ar, enda þótt alloft skorti á réttan skilning á fslenzku þjóðlífi og framtíðarmöguleikum. Fjöldi mynda er í bókinni, sem er skemmti- leg aflestrar og ágæt heimild um merkisatburð, sém nú er all- mjög fallinn í gleymsku. St. Std. Heima er bezt 35

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.