Heima er bezt - 01.01.1959, Síða 42

Heima er bezt - 01.01.1959, Síða 42
BARNAGETRAUN (ANNAR HLUTI - JANÚAR 1958) Eruð þið ineð í samkeppn- inni um tjaldið, svefnpokann, bakpokann og kuldaúlpuna? Já, við spyrjum, hvort þið séuð með í samkeppninni, því að auðvitað má enginn láta tækifærið ganga sér úr greipum að eignast einhver af hinum glæsilegu verðlaunum í hinni skemmtilegu verðlaunagetraun fyrir yngri lesendur „Heima er bezt“. Hafið þið hugleitt alla þá mörgu möguleika, sem þið hafið á að notfæra ykkur þessa fjóra ágætu gripi? — I fyrsta lagi er það t j a 1 d i ð. Allir röskir unglingar hafa löngun til að ferðast upp um óbyggðir og skoða landið. Og þá er ekkert betra en að hafa tjaldið sitt meðferðis og geta reist það, hvar sem rnanni dettur í hug. 1 hlýjum og notalegum svefnpokanum getið þið hvílt ykkur, hvort heldur sem er í útilegu á sumrin eða í skíðakofa á vetuma, þegar þið farið í skíðaferðir. Og svo getur líka verið ágætt að hafa svefnpoka til taks, ef óvæntan gest ber að garði, því það er engin skömm að því að bjóða gesti að sofa í svona fínum svefnpoka. 1 hinum rúmgóða b a k p o k a getið þið haft allt það, sem þið þurfið að hafa með ykkur í útilegum- ar. Þið verðið sjálfsagt undrandi, þegar þið sjáið, hvað það er margt, sem kemst fyrir í svona bakpoka. Ekki þarf að ifara um það mörgum orðum, hvað þið eigið að gera við jkuldaúlpurnar. Þær þekkja allir, og þið vitið það bezt sjálf, hvað þær eru nauðsynlegar í veðurfari eins og við eigum að venjast hér á Islandi. Þegar við ákváðum að hafa þessa fjóra hluti í verðlaun í bamagetrauninni, vomrn við ákveðnir í að hafa aðeins það bezta, sem fáanlegt var. Þess vegna snemm við okkur til hinna tveggja alþekktu fyrirtækja, Belgjagerðarinnar og Skjólfatagerðarinnar í Reykjavík, sem framleiða fyrsta flokks tjöld, svefnpoka, bakpoka og kuldaúlpur, og það em fram- leiðsluvörur þessara tveggja þekktu fyrirtækja, sem þið nú hafið möguleika á að eignast ókeypis, ef þið takið þátt x bamagetraun „Heima er bezt“. Með þessu hefti fá allir fastir áskrifendur „Heima er bezt“ síðari hlutann (66 bls.), af fyrstu Áma-bókinni eftir Ármann Kr. Einarsson, FALINN FJÁRSJÓÐUR, ókeypis. Og hér kemur önnur spumingin í þessari getraun: Hvað hét sjötta Árnabókin, sem kom út haustið 19581 Svarið við spurningunni á ekki að senda strax til blaðsins, heldur þegar getraxminni lýkur, í febrúar, og verður ykkur skýrt nánar frá því, þegar þar að kemur.

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.