Heima er bezt - 01.03.1959, Blaðsíða 21
Bókband
Þegar við byrjuðum að senda ykkur í örkum bók-
ina Falinn fjársjóður eftir Ármann Kr. Einarsson, |)á
töluðum við um að kcnna ykkur aðferð til að binda
arkirnar saman í bók, þegar þið væruð búin að fá þær
allar í hendur.
Og hér fer nú á eftir skýring á því, hvernig hægt er
að gera þetta. Þessa aðferð má að sjálfsögðu nota líka
til að binda laus blöð, t. d. nótnablöð, blöð úr mynda-
heftum og vikublöðum, bækur, sem eru alveg losnaðar
úr kápunni o. s. frv. Aðferðin er fljótleg og mjög auð-
vcld.
Bókapressa er sýnd á 1. mynd. Hún er búin til úr
tveimur þykkum fjölum og borað í gegnum þær fyrir
tveimur eða fjórum skrúfboltum með fjaðraróm, eins
og myndin sýnir. Á efri brún spjaldanna dregurðu
vinkilrétt strik þvert yfir bæði spjöldin, t. d. með centi-
metra (cm) millibili. Síðan sagarðu með handsög eða
málmsög ofan í strikin, svo sem 4 mm (millimetra)
niður í brúnir spjaldanna.
Síðan leggurðu arkir þær, sem þú ætlar að binda,
hverja ofan á aðra. Svo leggurðu um 4 cm breiðan
pappírsrenning (ræmu) sitt hvorum megin við blaða-
hlaðann, yfir og undir, eins og 2. mynd sýnir, og spenn-