Heima er bezt - 01.03.1959, Blaðsíða 33

Heima er bezt - 01.03.1959, Blaðsíða 33
HEIMA __________ « BÓKAHILLAN Guðmundur Ingi Krístjánsson: Sóld<n;g. Reykjavík 1958. Norðri. 146 bls. Guðmundur Ingi er enginn nýgræðingur í íslenzkri ljóðagerð. Þetta er þriðja ljóðabók hans, og kom hin fyrsta út árið 1938. Hann hefur ætíð farið sínar eigin götur, verið skáld sveitalífsins og búskaparins og ekki hirt um tízku né stefnur. Enn heldur hann sínu fyrra striki, en þó með nokkrum öðrum hætti en fyrr. Yrkisefnin eru fjölbreytilegri, efnismeðferðin fágaðri og smekk- urinn öruggari en í hinum fyrri bókum. Hann yrkir létt tilfinn- ingaljóð, leitar til fanga í sögu og sögnum og skyggnist um vandamál samtíðar sinnar. Og enn sem fyrr er hann málsvari sveitarinnar og starfsins. Kvæðin eru flest stutt og vel byggð. Það er erfitt að benda á einstök kvæði, því að yfirleitt eru þau jafngóð. Þó vil ég geta um kvæði eins og Örvar-Oddur, sem verð- ur höfundi yrkisefni um þá, sem flakka rótlausir um heiminn. Vel er lýst tilfinningum fjárbóndans í Hinn hvíti fögnuður. Það er ósvikinn vorhugur í kvæðinu Þegar heiðin fer að gróa, og svo mætti lengi þylja nöfn, en menn verða að lesa bókina sjálfir og njóta hennar á Jrann hátt. Þórleifur Bjamason: Tröllið sagði. Akureyri 1957. Norðri. 322 bls. Þetta er framhald sögunnar Hvað sagði tröllið? sem út kom 1948. Hér er greitt úr örlögum söguhetjanna, en þó grunar les- andann, að enn sé ósagður lokaþátturinn. Sagan gerist á Horn- slröndum seint á síðastliðinni öld. Allt er þar með fornlegum blæ, en þó tekið að bjarma af nýjum tímum. Lífsbarátta fólksins er hörð, og á enga aðkomna hjálp að treysta. Höfundurinn gjör- þekkir sögusviðið og það fólk, sem ólst upp við hin kröppu kjör Hornstranda. Því hafa sögur hans mikið menningarsögulegt gildi. Lesandinn hverfur aftur i liðinn tíma og lifir með sögufólkinu baráttu þjóðar vorrar við hamröm náttúruöfl, því að víðar voru kröpp kjör manna en á Ströndum nyrðra. Náttúrulýsingar höf- undar eru ágætar, en bezt er þó lýsing hans af ísavorinu og bar- áttu fólksins og viðbrögðum. Persónur sögunnar eru stórbrotnar í lund og skilgetin börn þess umhverfis, sem þær lifa í. íslendingabók. Gunnar Hall tók saman. Reykjavík 1957. 202 bls. Verð 168 kr. í bandi. Gunnar Hall er einn mesti íslenzkur bókasafnari sinnar tíðar. En honum hefur ekki nægt að safna bókum og láta þær standa í hillum til þess eins að gefa þeim hýrt auga eða strjúka kili þeirra með velþóknun. Hann hefur tekið til við að gera ýmsa fjársjóði safns sins að almenningseign. Fyrst gaf hann út skrá yfir safnið. Er hún hið mesta þarfaþing bókasöfnurum. Því næst gaf hann út mjög merkilegt heimildarrit, Sjálfstæðisbaráttu íslendinga, sem furðulega hefur verið hljótt um. Var hún samin eftir blaðaúr- klippum úr safni hans, en þær eru flestar næsta torgætar. Og nú sendir hann á markaðinn íslendingabók. Æviágrip og brautryðj- endasögu merkra íslendinga, svo sem undirtitill hennar hljóðar. Nafn bókarinnar hefur hneykslað suma. Ekki sé ég ástæðu til þess, fremur en að hneykslazt var á því, þótt lítt merk ljóðabók fyrir nokkrum árum væri gefin út undir nafninu Edda. Þessi bók Gunnars er um margt merkileg. Hann rifjar þar upp sögu merkra manna og atburða. Hefur sumt af því verið gleymt al- þjóð um lengri tíma, en annað hafa menn haft óljósa þekkingu um. Má þar til nefna þáttinn um Guðmund Kamban, sem er einn hinn bezti þáttur bókarinnar. Þá eru þarna merkilegar frá- sagnir um upphaf vélaaldarinnar á fslandi, fyrstu sláttuvélarnar, fyrstu rafstöðvarnar o. fl. Ágætur er þátturinn um söngvarann gleymda. Hér er á ferðinni lifandi saga um menn og atburði, sem ekki mega gleymast. Nokkrar villur hafa því miður slæðzt inn í bókina, sem þörf væri að leiðrétta í framhaldi hennar, sem vænta má að komi næsta ár. Því að ekki trúi ég öðru, en að fróðleiksfúsir íslendingar kunni svo vel að meta bók sem þessa, að höfundur sjái sér fært að halda henni áfram og opna mönn- um fleiri fjársjóði safns síns. Góð nafnaskrá fylgir, en hins vegar skortir tilvísun til heimilda fyrir þá, sem frekari fræðslu vilja leita Jónas Jónsson: Vínland hið góða. Akureyri 1958. Bóka- útgáfan Komandi ár. 268 bls. Um fáa samtíðarmenn vora hefur verið deilt jafn mikið og Jónas Jónsson. En um stílfærni hans og ritsnilld hefur aldrei verið deilt. En það hefur lengi verið alþjóð kunnugt, að hann ritar af jafn mikilli leikni, hvort heldur sem eru pólitískar grein- ar í vörn eða sókn, persónulegar ádeilur, minningargreinar, bók- menntaþættir eða um menningarmál. Alls staðar er hagleikurinn í meðferð máls og efnis hinn sami. Að vísu bera margar greinar þess minjar, að honum hefur ekki unnizt tími til að fága þær og snurfusa, enda oft skrifaðar í flýti, og er að vísu vandséð, hvort þær hefðu alltaf við það unnið. Menn lesa greinar Jónasar Jóns- sonar sér til ánægju, hvort sem þeir eru höfundi sammála eða ekki. I þessari bók birtast nýjar greinar og gamlar, eins og í fyrri bindum af ritsafni höfundar. Nafn dregur bókin af upphafs- greininni, 'þar sem segir frá ferð höfundar meðal Vestur-íslend- ingá. Bera nýju greinarnar þess ljósast vitni, að ekki hefur penni höfundar sljóvgazt né hugkvæmnin minnkað, þótt árunum fjölgi. Skrifa mætti langt mál um hverja einstaka grein, en hér skal einungis bent á þrjár þeirra, sem mér þykir merkilegastar og sízt mega liggja í þagnargildi. Er þar fyrst: Geta skólar verið skemmtilegir, þar sem rætt er af skilningi um eina höfuðmein- semd skólanna. Önnur er greinin Tveir baðstaðir, en þar setur höfundur fram svo merkilegar tillögur um framtíðarstofnanir í nágrenni Hveragerðis, að furðu sætir, hversu hljótt hefur verið um þær, síðan hann flutti það mál i útvarpinu. Ég tel vafasamt, hvort hðfundur hefur sett fram aðrar hugmyndir merkilegri en tillögu sína um stofnun uppeldisheimila í Ölfusdal, sem hann svo kallar. Loks er greinin um Halldór Kiljan Laxness, sem skrifuð er af meiri skilningi á skáldinu en flest það, sem áður hefur um hann birzt. Enda er Jónas Jónsson hvorki blindaður af ást né andúð á skáldinu, en ræðir málin frá hlutlausum sjónarhóli skilnings síns. Og það er grunur minn, að langlíf verði samlíking J. J. á H. K. L. og Sæmundi fróða og kápu hans, svo snjöll er hún og hittir vel naglann á höfuðið. st. Std. Heima er bezt 109'

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.