Heima er bezt - 01.03.1959, Síða 31

Heima er bezt - 01.03.1959, Síða 31
Kristján tók allt, sem ég átti, barnið mitt og jörðina, sem mér þótti svo óumræðilega vænt um. Ég stóð eftir einmana. Þú getur ekki trúað því, hvað ég var sárhrygg, þegar ég fór frá Hofi. Þess vegna treysti ég mér ekki til að sjá þær stöðvar aftur. Svo er bezt að tala um eitt- hvað, sem geðfelldara er. Eiginlega finnst mér þú hreint ekkert notaleg við mig, þá einu sinni við sjáumst. Það væri víst bezt að fara að hugsa til að hita sér kaffi.“ „En því er nú verr, að ég verð að tala meira við þig,“ sagði Rósa. „Ég hefði varla farið að gera mér erindi heim til þín, til að rausa um Hof við þig, ef Ásgeir hefði ekki fengið bréf í fyrradag að norðan. Það hefur víst komið með skipi, því svo stutt var síðan það var skrifað, og það voru ekki góðar fréttir, sem það hafði að færa. Mislingarnir hafa geisað þar. Rósa er búin að liggja lengi og það sem meira er, talin lítil von um, að hún stigi á fætur aftur, og Geirlaug liggur líka, svo að þú getur ímyndað þér, hvernig ástæðurnar eru. Ég gat ekki ann- að en látið þig vita, ef þig kynni að langa til að sjá hana, áður en hún hyrfi úr heiminum, ef það á fyrir henni að liggja.“ „Getur þetta verið satt?“ sagði Karen. „Ég á bágt með að trúa því, að mér hefði ekki verið skrifað, ef svo væri komið fyrir henni.“ Það var klökkvi í röddinni. „Hver átti að skrifa?“ spurði Rósa. „Það er víst ekki vanalegt, að sárveikt fólki leggi það á sig að skrifa. Svo er Rósa sjálfsagt búin að skilja það, að þér sé nokkurn veginn sama, hvernig henni líður, þar sem þú hefur ekki tíma eða vilja til að svara bréfum hennar.“ „Kristján hefði sjálfsagt getað skrifað fyrir hana,“ sagði Karen. „Hefur hann stundum setzt niður og skrifað tengda- mömmu? Getur ekki skeð, að honum sé álíka kalt til hennar og henni er til hans,“ sagði nú Rósa. „En þegar svona er ástatt! Eg er að vona, að þetta séu einhverjar öfgar. Ég get ekki trúað þessu,“ sagði Karen. Hún stóð við gluggann og talaði við glerið en ekki við konuna, sem sat í stólnum fyrir aftan hana. Henni var ógemingur að horfast í augu við hana, eftir að hún var búin að vinza viðkvæmustu sannleikskornin úr frásögninni. „Það er margur langt leiddur en nær þó fullri heilsu aftur,“ heyrðist frá konunni í stólnum. Hún var farin að finna til þess, að hún hefði verið heldur óvægin við systur sína, að ryðja þessu yfir hana næstum því for- málalaust. En það var vani hennar að drífa allt frá á svipstundu, sem gera þurfti. „Það er vel líklegt, að þær séu báðar komnar á fætur. Varla fara þær báðar í garð- inn, eða geturðu ímyndað þér það, Karen?“ „Hvað skyldi ég svo sem vita um það,“ svaraði Karen gremjulega. „Þú talar um þetta eins og það væri okkur óviðkomandi. Ég hef vitað svoleiðis ósköp koma fyrir, þegar skæðar sóttir ganga, eins og til dæmis taugaveiki.“ „Þú þekkir mig að því að vera nokkuð tannhvöss. Þú verður tæplega mjög lengi reið við mig,“ sagði Rósa og kom út að glugganum til systur sinnar og kyssti hana á kinnina. „Ég hef alltaf verið nöldurskjóða við þig. En núna hélt ég, að ekki veitti af kröftugum orðum til að ýta við samvizku þinni, svo að hún vaknaði af margra ára svefni.“ „Hún hefur ekki alltaf sofið,“ sagði Karen. „Þú hefur þó ekki verið að búa þessa veikindasögu til?“ „Nei, guð varðveiti mig frá því. Ég segi einungis það, sem mér var sagt. Ef þú ferð ekki norður að vitja um nöfnu mína, þá fer ég, og á ég þó ólíkt óþægilegra með það en þú, sem ekkert hefur um að hugsa annað en að snúast innan um stofurnar og þurrka rykið af mynd- unum og mublunum,“ sagði Rósa. „En hvernig átti ég að geta grennslazt eftir líðan hennar, fyrst enginn var svo hugulsamur að skrifa mér?“ spurði Karen. „En síminn, manneskja! Gleymdu ekki þessum miklu þægindum, sem við erum búin að fá.“ „Það er nú ekki hægt að hafa mikil not af honum, fyrr en hann er kominn heim í sveitimar. Og hvem ætti ég að kalla í síma, þar sem Rósa er veik í rúminu?“ spurði Karen. „Ja svona, þú ert bara eins og ráðalaus krakld, þessi duglega kona,“ sagði Rósa og brosti. „Þú gætir þó allt- af talað við lækninn. Hann getur sjálfsagt sagt þér það manna bezt, hvernig dóttur þinni líður.“ „Það segirðu satt og rétt. Þú hefur alltaf ráð undir hverju rifi,“ sagði Karen. „Þá ætla ég að fara hérna yfir í næstu götu. Ég ætla að heilsa upp á vinnukonu, sem var hjá mér í mörg ár. Nú er hún bláfátæk og með mörg böm og hefur sjálf- sagt þörf fyrir að hún sé glödd eitthvað,“ sagði nú Rósa. „Ég skal lána þér almennilegt sjal. Þessi reiðingur, sem þú varst með, getur gengið á sjónum en ekki héma á götunum. Mér finnst lílta, að þú ættir að greiða þér og láta húfuna fara svolítið skár á þér,“ sagði Karen. „Þú ert nú alltaf svo fín með þig,“ sagði Rósa glettnis- leg, en þó fór hún að tína prjónana úr húfunni. „En hvernig gemrðu lánað mér sjalið þitt, ef þú ætlar að fara að tala í síma?“ bætti hún við. „Ég á annað sjal og kápu líka,“ anzaði Karen, allt annað en hlýlega. „Það er líka sími hérna í húsinu, svo ég þarf ekki út á götu.“ Maddama Karen svaf lítið næstu nótt. Systir hennar hafði farið nærri um það, að samvizka hennar myndi vakna við hennar óvægu átölur. Samvizkan hafði nátt- úrlega oft verið óróleg, en nú var hún vöknuð fyrir alvöm. Rósa hafði sagt, að hún hefði ýtt móðurástinni algerlega til hliðar, svo að eigingirnin gæti átt hug hennar allan. Stolt hennar hafði verið sært svo átakan- lega, að hún hafði hugsað um það eitt, að komast sem fyrst burtu, svo að enginn fengi grun um ósigur hennar og sízt af öllu niðurlægingu. Rósa, sem ætlaði sér að orna sér við þann eld, sem hún var búin að hugsa sér að sitja við sjálf. — En systir hennar hafði, eins og fyrr, tekið ómjúkum höndum á framkomu hennar við eftir- lætisstúlkuna sína — hennar eigin dóttur. Það versta var, að hún hafði sagt alveg satt. Hún hafði heimsótt Sig- Heima er bezt íor

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.