Heima er bezt - 01.07.1960, Side 4
STEINDOR STEINDORSSON FRA HLOÐUM:
Björn J. Blöndal,
rith öfundur, Laugarnolti
að var lofsöngur, sem þeir sungu. Lofsöngur til
föður fegurðarinnar. Stundum dönsuðu þeir
hringdans á meðal rósanna. Það voru hægir
dansar og hljóðlátir. Undirspilið var fuglakvak
og niður þungra vatnau. Þessar setningar úr Hamingju-
dögum Bjöms Blöndals gætu verið einkunnarorð allra
hans rita. Og segja má með nokkrum sanni að með
þeim hafi hann lýst bókmenntalegri stefnuskrá sinni,
er hann, öllum á óvart, kvaddi sér hljóðs á vettvangi
íslenzkra bókmennta með Hamingjudögum sínum,
ljóðrænum frásögnum frá bernsku og manndómsárum.
Eg hygg að mörgum hafi farið líkt og mér við lestur
þeirrar bókar, að þeim hafi þótt sem þeir skyndilega
væm komnir inn í gróðursæla vin mitt í eyðimörk,
horfnir frá argaþrasi dagsins, vélaskrölti og hávaða, og
hvíldust þar við vatnanið og angan fagurra blóma. Frá
bókinni stafaði svo mildlli hlýju og samúð með öllu,
sem lífsanda dregur í íslenzkri náttúru, ásamt aðdáun
á því, sem fagurt er og gott í mannlífinu. Þar var eng-
inn sori, ekkert myrkur. Og jafnvel þar sem ský sorg-
arinnar vörpuðu skuggum sínum, skein sólin í gegnum
þau og flutti huggun í harmi og yl í næðingi lífsins.
En svona er skáldskapur Björns Blöndals og svona er
maðurinn sjálfur, því að í ritum sínum er hann allur.
Bjöm J. Blöndal er fæddur í Stafholtsey í Borgar-
firði 9. september 1902. Foreldrar hans voru Sigríður
Margrét, dóttir Björns Blöndals sundkennara, systir
Sigfúsar Blöndals bókavarðar og Jón Blöndal, héraðs-
Laugarholt.
lijörn Blöndal. Myndin tekin í júlí árið 1931.
læknir, dóttursonur Jóns Thoroddsens skálds. Þarf
eigi lengi að skyggnast um ættir hans til þess að rekja
þar þræði að listhneigð, skáldgáfu og vísindaeðli, eink-
um í náttúrufræði. Blöndalar margir hafa verið óvenju
listhneigðir menn, bæði í hljómlist, myndlist og skáld-
gáfu, gleðimenn og söngmenn. Jón Thoroddsen, braut-
ryðjandi íslenzkrar skáldsagnagerðar var langafi Björns
en náttúrufræðingurinn Þorvaldur Thoroddsen ömmu-
bróðir hans. Hefur Björn erft margt frá þessum frænd-
um sínum, sem glöggt má sjá í ritum hans, þótt hvergi
sé þar um stælingu eða eftiröpun að ræða. Skáldskap-
urinn og náttúrufræðin eiga rík ítök í honum, hann
ann hljómlist og er glaður á góðri stund í vinahópi.
Móður sína missti Björn á barnsaldri, og enn var
hann óharðnaður unglingur, er faðir hans fórst á svip-
220 Heima er bezt