Heima er bezt - 01.07.1960, Blaðsíða 25

Heima er bezt - 01.07.1960, Blaðsíða 25
ur við gluggann á fátæklegu stofunni sinni og horfir á eftir þeim. Nýjar hugsanir flykkjast fram í vitund hennar. Hvernig gat þessi unga prestskona gerbreytt Fjólu á svo stuttum tíma, sem þær eru búnar að vera saman? Það er kraftaverki líkast. En frú Eygló á ein- hvern þann eiginleika, sem fjöldinn á ekki. Það varð henni ljóst við fyrstu kynni. Konan finnur nú í fyrsta sinni sárt til smæðar sinn- ar í hinu háleita móðurhlutverki. Fjólu er borgið í framtíðinni, hún er þess fullviss. En hún lítur á hin börnin sín. Hvernig tekst henni með uppeldi þeirra? Bíða þeirra ekki sömu örlög og Fjólu, meðan hún dvaldi hjá henni? Nei, það má ekki verða. Héðan í frá skal hún leggja sig alla fram til þess að reynast móður- hlutverki sínu trú. Hin góðu áhrif frá ókunnu prests- konunni hafa kallað fram þann ásetning í sál hennar og gert hann að föstu áformi. Svo víðtækur er máttur kærleikans. Morguninn er bjartur og ylríkur. Fjóla og Gréta eru ferðbúnar í sveitina. Prestshjónin fylgja þeim á bif- reiðastöðina, og þar kveðja þau þær með kærleikum. í framtíðinni ætla þau að fylgjast með líðan Fjólu, eins og hún væri þeirra eigið barn, þótt leiðir skilji nú. Bif- reiðin brunar hratt frá borginni, og ný sjónarmið opn- ast. Fjóla horfir fagnandi nióti framtíðinni. Hún hefur fundið þá réttu leið og hlakkar til að lifa.... IV. Gamla konan í litla bænum. Vorregnið drýpur í blæhlýrri kyrrð á iðgræna jörð. Frú Eygló er á leið í bæinn. Hún er að koma úr heim- sókn frá vinkonu sinni, sem býr í úthverfi borgarinnar. Frú Eygló gengur hægt og nýtur vorblíðunnar. Enn á hún spölkorn eftir ófarið í sjálfa borgina. Umferð er fremur lítil á veginum, og húsin standa strjált á þess- um slóðum. Frú Eygló veitir athygli tveimur stálpuðum drengj- um, sem eru að leik rétt við veginn, og jafnframt gamalli konu, sem er á gangi þar skammt frá. Hún sér að drengirnir taka að elta gömlu kojiuna og hrópa á eftir henni: — Þarna er vitlausa kerlingin í litla bænum! Gamla konan lítur ekki við og svarar drengjunum engu. Hún gengur hægt og þunglega heim að mjög litlu og hrörlegu húsi, sem stendur skammt frá vegin- um, og nemur staðar fyrir utan það. Drengirnir hætta að elta hana, en halda áfram að senda henni tóninn: — Þarna er vitlausa kerlingin í litla bænum, hrópa þeir hvað eftir annað. Frú Eygló getur ekki gengið hér fram hjá án þess að nema staðar hjá drengjunum og hafa tal af þeim. Hún hraðar sér til þeirra og býður þeim vingjarnlega góðan dag. Drengirnir líta undrandi á þessa ókunnu konu, sem svo óvænt ávarpar þá, og svara kveðju henn- ar feimnislega. Frú Eygló horfir hlýtt á drengina og segir: — Þekkið þið þessa gömlu konu, sem þið voruð að kalla á eftir? — Já, já, þetta er hún Signý gamla, vitlausa kerling- in í litla bænum, og þetta er bærinn hennar þarna. Þeir benda á litla hrörlega húsið, sem gamla konan stendur fyrir utan. — Af hverju segið þið svona ljótt við gömlu kon- una, drengir mínir? — Af því að stóru krakkarnir, og sumt fullorðna fólkið hka, segir að hún Signý gamla sé hálfvitlaus. — Það er ljótt orðbragð, þó að stóru krakkarnir og jafnvel sumt fullorðna fólkið segi það líka. Hafið þið aldrei hugsað um, hvað svona orð geta sært gömlu kon- una mikið? — Nei, svara báðir drengirnir. — Og svo skal ég segja ykkur eitt, að það koma stórir svartir blettir á sálir þeirra, sem tala svona ljótt. — Nú? Það hefur enginn sagt okkur frá því. — En það er alveg satt, og viljið þið láta svoleiðis bletti koma á sálir ykkar? — Nei, segja drengirnir. — Þá sltuluð þið aldrei oftar tala svona ljótt, hvorki við þessa gömlu konu eða aðra, drengir mínir. Drengirnir virða frú Eygló fyrir sér í djúpri alvöru. Svona hefur enginn talað við þá áður, og þeim finnst þessi ókunna kona eitthvað svo falleg, og hún talar svo vingjarnlega við þá, þó að þeir væru að segja svona Ijótt við Signýju gömlu. Þeir færa sig eins og ósjálf- rátt nær frú Eygló og segja báðir einum rómi: — Við ætlum aldrei oftar að stríða Signýju gömlu, og engum. — Þá eruð þið líka góðir og fallegir drengir. — Frú Eygló strýkur hönd sinni mjúklega um koll þeirra beggja, fer síðan niður í veskið sitt og tekur þar upp tvo gljáfagra tveggjakrónu-peninga og réttir drengjun- um sinn peninginn hvorum. — Eigið þetta, vinir mínir, þó að það sé lítið, segir hún hlýlega. Kannske á ég eftir að sjá ykkur seinna. Drengirnir taka glaðir við gjöf frú Eyglóar og þakka henni fyrir sig. Svo hraða þeir sér á brott. Frú Eygló horfir brosandi á eftir drengjunum nokkur andartök, og hún er ánægð með samtalið við þá. En síðan heldur hún af stað í áttina til gömlu konunnar, sem enn stend- ur fvrir utan litla bæinn sinn. Hún ætlar ekki að ganga fram hjá henni. Signý, gamla konan í litla bænum, hefur veitt eftir- tekt hinni ókunnu konu, sem staðið hefur góða stund hjá drengjunum og rætt við þá. En nú sér hún, að drengirnir hlaupa á brott, og konan kernur í áttina til hennar. — Hvað getur þessi ókunna kona viljað henni. Signý er óvön því að fá heimsóknir þeirra, sem um veg- inn fara, og það er síður en svo, að þær fáu heimsóknir sem hún hefur fengið í litla bæinn sinn fram að þessu, hafi orðið henni til nokkurrar gleði. Gamla konan varpar öndinni raunalega, en stendur kyrr úti og bíður ókunnu konunnar, sem óðum nálg- Heima er bezt 241

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.