Heima er bezt


Heima er bezt - 01.07.1960, Qupperneq 31

Heima er bezt - 01.07.1960, Qupperneq 31
til þess að myndarmenn gætu fallið með svona mann- eskjum. „Það fer bara svona þegar blóðhitinn stígur of hátt,“ sagði gamla konan og stundi mæðulega. „Það var nú meira óhappið.“ Geirlaug þóttist skilja það að karlinn tæki kaffið og sykurinn út í reikning sonar síns og óttaðist að það orsakaði óánægju, þegar það kæmist upp. En það leið svo hver dagurinn af öðrum í sátt og samlyndi. Einn daginn kom sarnt karlinn uppblásinn utan af Eyrinni. Hann sagðist hafa sannfrétt það, að enginn leiguliði í hreppnum þyrfti að borga eins hátt eftirgjald og Krist- ján. Og við þetta væri hann búinn að búa í öll þessi ár. Þvílík fásinna! „Það eru nú líka fáar eða engar jarðir eins góðar og Hof,“ sagði Kristján. „En hver er það, sem hefur gert hana aðra eins jörð og hún er annar en þú, og hefur svo ekkert fengið fyr- ir nema vanþakkir og ógerðarhátt. Þú skalt nú hafa mín ráð og fara fram á það við kerlinguna að hún lækki eftirgjaldið eða þú segir lausu, því það tekur enginn jörðina með þessum leiguskilmálum, vertu viss.“ „Eg býst við að það væri það bezta, sem ég gæti gert, að selja allt og fara til Ameríku,“ sagði Kristján áhuga- laus. „Það væri nú vit að selja þetta litla bú. Það er sjálf- sagt hægt að fá annað jarðnæði. En að láta féfletta sig svona er ógerlegt. Þú hefur nú kannske ekki kunnað við að standa í þrefi við jarðeigendurna meðan þú varst tengdur þeim, en nú er það búið. Þess vegna skaltu hafa mín ráð og krefjast lækkunar á leigunni. Ef það geng- ur ekki, þá að segja lausu. Eg veit mínu viti eins og fyrr.“ „Já, það er óhætt að fara að ráðum hans,“ sagði gamla konan. Þá gall í Ásdísi: „Það væri nú meiri vitleysan að fara með ungbarn til Ameríku.“ Þá athugasemd heyrði ekkert eyra. Kristján fór inn í hálf kalt húsið sitt. Hann vildi ekki láta leggja í ofn- inn nema þegar var sem kaldast, þar sem alltaf var fun- heitt í baðstofunni. Hann sat fyrir framan allt kvöldið og lét hurðina standa opna meðan hann var að hátta. Það var ekki vandi að halda á sér hita undir yfirsæng- inni. Hann vakti og hugsaði eins og svo oft áður. Lifði upp sínar ánægjustundir, sem hann hafði notið á þessu heimili. Þó stundum hefði borið skugga yfir hurfu þeir og gleymdust. Hann braut hugann um það hvað fram- tíðin myndi færa honum. Hann var farinn að dreyma einkennilega drauma um Rósu og sjá hugsýnir í vök- unni þar að lútandi, að næstu fréttir sem hann fengi af henni yrðu þær, að hún væri orðin heilsulaus í annað sinn og komin á sjúkrahús og þaðan ætti hún ekki aft- urkvæmt. Það var átakanlegt að hugsa til þess, að hún yrði dauðanum að bráð, svona falleg og blómleg eins og hún var í vor. En fyrir hann fannst honum það bezti endirinn. Þá vonaði hann að fá Jón litla til sín og um- ráð yfir arfhluta hans í Hofi. Þá, en ekki fyrr, gæti hann kannske fellt sig við Ásdísi, þessa sterku og gróf- gerðu manneskju, og þó gæti hann það aldrei. Hann mundi alltaf minnast fallega brosins og hlýja málróms- ins hennar Rósu og bera það saman við hrossahlátur- inn og stirðbusahátt Ásdísar og hennar heimskulega talsmáta. Hann spurði Geirlaugu eftir því einu sinni, þegar þau voru tvö ein í maskínuhúsinu, hvort hún hefði nokkuð frétt að sunnan af þeim Rósu og Jóni litla. „Hver ætti svo sem að færa mér þær fréttir,“ anzaði hún. „Nei, ég hef ekkert frétt.“ Eftir tveggja daga heilabrot settist Kristján niður að skrifa svila sínum. Karenu datt honum ekki í hug að skrifa. Hann var búinn að fá nóg af bréfaviðskiptum við hana. Hartmann gamli skálmaði með það út í kaup- stað ánægjulegur á svip. Hann var vanur því að fá sín- um vilja og uppástungum framgengt. Næstu vikur var ekki einungis vonazt eftir því að sjá bréf frá Rósu heldur þessum austfirzka lögfræðingi, en póstferðir á landi voru þá ekki nema einu sinni í mánuði, svo það leit út fyrir að það yrði löng bið. En þá kom strandferðaskip um miðjan mánuðinn. Ekki var ómögulegt að með því kæmi bréf. Gamli maðurinn var ekki lengi út melana morguninn þann, sem möstrin báru við gráan skammdegishimininn, með virðulegan fána blaktandi í hægri golu. Eftir ótrúlega stuttan tíma sást til hans á heimleið. Hann kallaði til Kristjáns neð- an af túni: „Komið bréf að austan.“ Svo tróðst hann inn í hjónahúsið til að heyra fréttirnar. Þær voru ekki öðruvísi en við hefði mátt búast úr þeirri átt sagði Kristján. Karen var búin að ákveða að hækka eftir- gjaldið svo hitt kæmi ekki til greina. Gamli maðurinn hoppaði upp og barði sjálfan sig utan með hnefanum. „Segðu jarðarskrattanum lausum og það strax. Þú mátt vera viss um að það tekur hana enginn maður með þessum skilmálum. Þvílík bölvuð ómynd hvernig manneskjan ætlar að fara með þig, eftir allt sem þú ert búinn að gera jörðinni til góða,“ sagði hann og rauk fram úr húsinu. Þar var engin manneskja nema hvítvoðungurinn háorgandi. Eldurinn víst hálfdauður í kabissunni. Hvar voru allar kerling- arnar. Þá vatt hann sér fram í maskínuhúsið, þar stóð kona hans við eldavélina og hrærði í grautarpotti. „Hvað er orðið af öllu kvenfólkinu?“ rausaði hann. „Því ert þú að rolast hér? Krakkinn háöskrandi inni. Getur ekki móðirin hugsað um hann.“ „Heldurðu hún hafi ekki rokið í fjárhúsin. Ég skal fara inn til hans. Það er þarna heitt á könnunni handa þér. Það er nú skárri súgurinn í þér vinur. Ég er að hugsa um matinn. Geirlaug er í stórþvotti frammi,“ sagði gamla konan, svo var hún horfin inn til að hugga drenginn. Hann fékk sér kaffi, það róaði þó svolítið skapsmun- ina. „Hvern fjandann þurfti stelpu-„bestían“ að fara að þjóta í húsin þó hann hlypi út eftir áður en hann kast- aði inorgungjöfinni í rollurnar. Þær hefðu varla drepizt úr sulti þessa stund. Þegar kona hans kom fram aftur Heima er bezt 247

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.