Heima er bezt - 01.11.1960, Side 4

Heima er bezt - 01.11.1960, Side 4
GISLI JONSSON: Björn R. Arnason frá Atlastö&um agan og tungan eru þeir meginþættir, sem ís- lenzk menning er ofin úr. Því næmara sem mál- , y skyn manna er og söguþekkingin ríkari, þeirn ^—'' mun traustari fótum stendur menning okkar. En glapnist mönnum málið og glatist sagan, verða skapadægur íslenzkri menningu. Oldum saman hafa meginþættirnir tveir verið að öðrum og ógrönnum þræði spunnir af óskólagengnum erfiðismönnum úr aiþýðustétt. Islenzk menning hefur aldrei verið bundin við stétt né skóla. Endurreisn íslenzkrar tungu og bókmennta á 19. öld hefði reynzt hinum lærðu frömuðum um megn, ef alþýða manna hefði ekki víða í sveit og við sjó varð- veitt tunguna óspillta og haldið lifandi áhuganum á sögu einstaklinga og þjóðar. A öllum tímum hafa sjálfmenntaðir alþýðumenn numið fræði sögurinar svo ríkulega og búið yfir svo máttugu tungutaki, að þeim hefur auðnazt að vinna gild bókmenntaverk, enda þótt skilyrði þeirra til bók- iðju hafi oft og tíðum verið hin erfiðustu og lífskjör sumra þeirra jafnvel til muna hrakleg. Enn í dag, á tímum almennrar skólaskyldu, eru uppi á meðal vor ófáir aldraðir menn, sem nurnið hafa sjálfs- námi söguna og tungutakið, lært af fólkinu, sem þeir umgengust í dagsins önn, og af bókum, sem þeir lásu og hugfestu í einrúmi. Sumir þessara manna hafa einnig búið yfir sköpunar- gáfu og frumlegri hugsun, svo að þeim hefur ekki verið ofvaxið að semja sitthvað, sem gætt er sögulegu gildi og búið er vönduðum búningi fagurrar íslenzku. Einn þeirra alþýðufræðimanna er Svarfdælingurinn Björn Runólfur Arnason. ' * * # Björn R. Árnason fæddist á Hæringsstöðum í Svarf- aðardal 13. júlí 1885. Foreldrar hans voru ísak Árni Runólfsson og Amia Sigríður Björnsdóttir, búandi hjón þar. Runólfur faðir Árna var bóndi á Hreiðarsstöðum í Svarfaðardal, en á ætt að rekja inn með Eyjafirði og austur um Þingeyjarsýslu. Kona Runólfs var Margrét Jónsdóttir frá Ingvörum í Svarfaðardal, og er það svarfdælsk bændaætt, sem rakin verður til Arngríms Sigurðssonar, bónda og lög- réttumanns í Ytra-Garðshorni. Anna Sigríður móðir Björns var í föðurætt af Mela- ættinni gömlu og afkomandi Odds sterka Bjarnasonar, en móðir hennar Anna Jónsdóttir frá Litla-Koti fremst í Svarfaðardal. # * # Fjögurra ára gamall fluttist Björn með foreldrum sínum að Atlastöðum og ólst þar upp. Hann kvæntist 1907 Önnu Stefaníu Stefánsdóttur bónda á Sandá Jónatanssonar. Kona Stefáns var Anna Sigurlaug Jó- hannesardóttir frá Urðum Halldórssonar, en kona Jó- hannesar var Anna Guðlaugsdóttir frá Svínárnesi á Látraströnd. Fyrstu hjúskaparár sín voru þau Björn og Stefanía í húsmennsku á Atlastöðum, en 1922 fengu þau ábúð á Klaufabrekknakoti. Þar bjuggu þau 4 ár, voru síðan skamma hríð í húsmennsku á Hæringsstöðum, þá í tvíbýli á Ingvörum 4 ár og síðan á Dalvík. Vorið 1933 fluttust þ>au með Stefáni syni sínum og konu hans Dag- björtu Ásgrímsdóttur að Grund, og dvöldust þau þar, meðan bæði lifðu. Stefanía lézt í desember 1956. Stefán var eina barn þeirra, og með þeim hjónum fluttist Björn til Dalvíkur síðastliðið vor, er Stefán brá búi, og á hann nú heima í Lambhaga á Dalvík. * * * Björn Árnason var snemma námgjarn og minnugur, svo sem Snorri sagði um Ara, en í skóla gekk hann ekki lengur en um fimm vikna tíma alls. Læs var hann orðinn 5 ára, og mjög um sömu mundir hóf hann að draga til stafs. í afmælisviðtali í íslendingi 12. ágúst 412 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.