Heima er bezt - 01.11.1960, Side 6

Heima er bezt - 01.11.1960, Side 6
Myndin er af framhúsi, þau voru stundum nefnd langhús. er byggt var á Atlastöðum í Svarfaðardal árið 1878. Þor- steinn Þorsteinsson ,smiður“ byggði húsið fyrir þáverandi ábúanda Atlastaða, Björn Sig- urðsson. Húsið er 12 álnir á lengd og 6 álnir á breidd. Skar- súð úr timbri undir torfþaki. Loft á bitum úr þykkum borð- um. Alþiljuð, máluð stofa í suðurenda, þá anddyri að bœj- argöngum, bæjardyr. Nyrzt er skáli. Þar voru hirzlur heimil- ismanna geymdar svo og fatn- aður o. fl. Húsið stendur enn að mestu óhaggað, og er nú 82 ára gamalt. gaumgæfði þá sundurleitu ferðamenn, er hann veitti brautargengi, og leitaði sér fróðleiks um ætt þeirra og uppruna. Af samtölum við minnuga menn og óljúgfróða, og svo af bókum, nam hann fróðleik mikinn, sem hann geymdi í glaplausu minni. Kom þar, að hann gerðist réttnefndur afburðamaður urn kunnáttu á sviði sögu og ættfræði. Ég hef oft undrazt þau ókjör, sem Björn man, og þá ekki síður hitt, hversu rninnið er hárnákvæmt og óskeikult. Ég hef stundum paufazt við að fletta upp í heimildarritum ártölum og staðreyndum sögunnar, sem ég hef heyrt hann þylja í frásögn sinni, og er skemmst af því að segja, að þar hef ég aldrei staðið hann að því að fara rangt með; hefur hann þó sagt mér næsta margt, og „þykir mér hans sögn öll merkilegust“. * * # Af æviannál Björns hér að framan má marka, að starf hans hafi einkum verið sveitabúskapur, eins og hann gekk og gerðist á þeirri tíð. En hvergi nærri lét hann sér þau störf einhlít. Barnakennslu stundaði Björn einnig talsvert um 35 ára skeið, og var þó aldrei skóla- kennari. Alilli fermingar og tvítugs hóf hann að segja til börn- um og unglingum, fyrst systkinum sínum og síðan öðrum. Að mestu var kennsla hans bundin við Svarf- aðardal, en þó sagði hann til börnum vestan Heljar- dalsheiðar tvisvar skamma hríð. Kennslan lét honum vel, enda er honum nautn að segja frá og fræða aðra. Hann var þolinmóður og laginn, og það hefur hann sagt mér, að ekkert barn væri sér óþægt. Árangur af kennslu hans var og eftir því, og voru þó að sjálfsögðu sumir þeir, er hann var fenginn til að kenna, ekki með öllu vel til náms fallnir. Kennslustarfsins minnist Björn með ánægju, og gamlir nemendur hans minnast hans og með þakklæti og hlýjum huga. Allir, sem lesa ritverk Björns, mega sjá, hversu ís- lenzkt mál leikur honum á tungu. Nýtur hann sín þó jafnvel enn betur í munnlegri frásögn, þegar hann er í essinu sínu. Áheyrandinn hlýtur að hríijast af þrótt- miklu tungutaki, seiðmagni raddarinnar og á stundum hlátri þeim, er eigi getur innilegri né skemmtilegri. Dómgjarn getur hann að vísu orðið og hvassyrtur, því að hann er skapgerðarmaður allmikill og siðnæmur meira en í meðallagi. Nú er að koma út bók, sem hefur að geyma ritsafn Björns. I ágætum formála, sem dr. Kristján Eldjárn hefur skrifað að þeirri bók, segir svo um fræðimennsku hans og frásagnarlist: „Björn Árnason er ekki fræðimaður af þeirri gerð, sem safnar í sarpinn þurrum fróðleik til þess að láta hann liggja þar ávaxtalausan. Ártöl og nöfn og aðrar slíkar staðreyndir þykir honum þunnur kostur viðbits- laus. Fróðleikurinn þykir honum léttvægur, ef ekki sér alls staðar til manna með holdi og blóði. Hann vill sjá einstaklinginn fyrir sér, gera sér grein fyrir persónu hans og skilja hana. Og hann vill draga upp mynd hans og miðla öðrum. Þar kemur rithöfundurinn til skjal- anna. Björn hefur sjálfur lýst því skemmtilega, hvemig hann lærði að draga til stafs við móðurkné, og snemma byrjaði hann að skrifa, að móta úr þeim efnivið, sem menn og saga lögðu honum í hendur. Sjálfur segist hann hafa ort mikið fyrr á ævi, birt sumt en brennt öðru og vildi nú feginn vita það allt í ösku. Þeim mun meiri rækt hefur hann lagt við rit í óbundnu máli og færzt þar í aukana jafnt og þétt, með vaxandi aldri og yfirsýn og batnandi aðstöðu til andlegra starfa á efri árum. Björn skrifar viðhafnarlegan stíl og kappkostar að láta orðgnótt og myndauðgi íslenzks máls magna 414 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.