Heima er bezt - 01.11.1960, Blaðsíða 9

Heima er bezt - 01.11.1960, Blaðsíða 9
nýja heimalands, menningarlega talað, með því að varð- veita og ávaxta sem bezt og í lengstu lög hinn íslenzka menningararf vorn. Hinu er ekki að leyna, að vér Vestur-íslendingar eigum við ramman reip að draga í okkar þjóðræknismálum, en höldum enn hópinn og í horfinu af fremsta megni, þakklátir fyrir stuðning og hvatningu héðan heiman um haf í þjóðræknisviðleitni vorri. Og það hef ég komizt að raun um á ferðum mínum um landið, að sterk eru enn þau bönd frænd- semi, eigi síður en hinar menningarlegu erfðir, sem tengja oss íslendinga yfir hið breiða haf. Ég kom með fangið fullt af kveðjum vestan um haf, sem ég hef ver- ið að skila um allt land í sumar, og fer með fangið jafn fullt af slíkum kveðjum vestur yfir álana. Sé ég hendur manna mynda meginþráð yfir höfin bráðu, sagði skáldið mikla í stórbrotnu kvæði sínu til Vestur- íslendinga. Vér skulum halda áfram að byggja brú frændsemi og menningarlegra samskipta frá báðum ströndum sem traustasta, og mun heill fylgja. Enginn getur farið um Island eins og ég hef gert á þessu sumri, komið á ótal merka staði og fagra, þar sem miklir atburðir hafa gerzt, svo að hann heyri eigi raddir liðinnar tíðar óma sér í eyrum, finni eigi vængja- þyt sögunnar í lofti. Á ferðum mínum, ekki sízt á feðra- og mæðraslóðum á Austurlandi, hafa spakleg orð Stephans G. Stephanssonar orðið mér að eggjandi veruleika: Og það er sem holtin sjálf hleypi í mann þrótt, þar hreystiraun einhver var drýgð, og svo er sem mold sú sé manni þó skyld, sem mæðrum og feðrum er vígð. Já, það er yndislegt að hafa átt þetta fagra og at- burðaríka sumar hér heima, og á ógleymanlegu ferða- lagi mínu í alla landshluta hafa dunað mér í eyrum eftirfarandi erindi úr snjöllum kvæðum Stephans G. frá heimferð hans 1917: Ég hvarf heim í hópinn þinna drengja hingað, móðir, til að fá með þeim aftur snerta upptök þeirra strengja, er mig tengdu lífi og víðum heim. Ef að vængir þínir taka að þyngjast, þreyttir af að fljúga í burtu-átt. Hverf þú heim! og þú munt aftur yngjast orku, er lyftir hverri fjöður hátt. Þetta hef ég reynt á áþreifanlegan og eftirminnileg- an hátt í heimferð minni. Ég hverf héðan vestur yfir hafið til starfs míns hlaðinn nýjum þrótti, yngdur að anda og orku til dáða. Fyrir það er ég einnig innilega þakklátur. En þakkarhuga mínum og óskum til lands og þjóðar fæ ég ekki fundið betri orð heldur en þessar Ijóðlínur úr aldamótakvæði Þorsteins Erlingssonar: Við hjarta þitt slögin sín hjörtu’ okkar finna, þinn hjálmur er gull okkar dýrustu minna, en þó fegurst og kærst og að eilífu stærst ertu í ást og í framtíðar vordraumum barnanna þinna. Verið þið öll blessuð og sæl! JÓH. ÁSGEIRSSON: Krókur á móti bragéi Þetta var fyrir síðustu aldamót á fyrstu búskaparár- um Bjarna Jenssonar í Ásgarði. Þá var lítil eða engin verzlun komin í Búðardal, og aðal verzlunarstaður Dalamanna var vestur í Stykkishólmi. Á þeim árum var Ágúst Þórarinsson kaupmaður í Stykkishólmi, bróðir séra Árna. Ágúst hafði það stundum til að vera smá-glettinn, einkum við þá sem hann þekkti, og þeirra á meðal var Bjarni í Ásgarði. Svo var það eitt sinn er Bjarni var staddur í verzlun- arerindum vestur í „Hólmi“, því svo var Stykkishólm- ur kallaður í daglegu tali í þá daga, að hann snarast inn í búð Ágústs og biður um matarskál. En á þeim tíma var það siður að borða úr öskum og skálum. Ágúst var sjálfur í búðinni og réttir þegar all stóran náttpott að Bjarna. Bjarni tekur við honum þegjandi og borgar, og vendir samstundis út úr búðinni. Þá var það einu eða tveimur árum síðar að Ágúst er á ferð um Dali og gistir hann þá hjá Bjarna í Ásgarði. Um kvöldið er kjötsúpa á borð borin og kemur þar eitt súpufat mikið og sjaldséð á borð. Og þykist Ágúst þar þekkja náttpottinn, er hann seldi Bjarna forðum daga. En Ágúst lætur sér ekki bregða, fremur en Bjama, og eys á disk sinn súpunni úr þessu furðulega fati, eins og ekkert sé athugavert við það. — KÁTLEGT SVAR Mörg kátleg svör gengu manna milli, er höfð voru eftir Bjarna í Ásgarði, því hann var kátur og gaman- samur við gesti sína, og sérstaklega brá hann oft á glens við svo kallaða heldri menn. Þetta var þegar þjóðvegurinn lá ofanvert við túnið í Ásgarði. Þá var Bjarni eitt sinn á gangi upp við veg, og kemur þá tvennt ríðandi sunnan veginn, og era það þau systkin Lárus H. Bjarnason og Ingibjörg H. Bjarnason. Bjarni býður þeim þegar heim, því hann var orðlagður fyrir gestrisni. Ingibjörg tók ekki af því, en Lárus vildi ekki tefja. Þá segir Bjarni: „Þú kemur þá heim, Ingibjörg. Lalli getur haldið í hestana á meðan.“ (Bjarni þúaði alla.) Heima er bezt 417

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.