Heima er bezt - 01.11.1960, Side 10

Heima er bezt - 01.11.1960, Side 10
a fríka hefur verið mjög á dagskrá á þessu ári. Ný /\ ríki hafa þotið þar upp hvert á fætur öðru, og / A. fárra ára gamlir landsuppdrættir eru úreltir með öllu. Svo ört hefur þróunin gengið í þessa átt, að á síðustu 10 árum hafa verið stofnuð þar 20 sjálfstæð ríki. Mörg þeirra bera nöfn, sem áður voru ókunn með öllu á Vesturlöndum. Stórveldin tefla hina venjulegu refskák sína um hylli hinna nýju ríkja, sem tekin eru að leggja lóð sín í vogarskál Sameinuðu þjóð- anna, og innan þeirra magnast deilur og flokkadrættir, nær samtímis því og þau fagna frelsi sínu. En á sama tíma og hinar nýfrjálsu þjóðir halda fagn- aðarhátíðir og stjórnmálamennirnir heyja tafl sitt um völd og áhrif, þá eru einnig unnin hljóðlátari störf þar í álfu. Og við hliðina á nöfnum eins og Kasawubu og Lumumba, sem um skeið hafa verið á hvers manns vörum, þá hefur bætzt við nafnið Zinjanthropus, sem sennilega verður geymt löngu eftir, að hinir heiðurs- mennirnir eru öllum gleymdir. Meðan á hinu pólitíska umróti hefur staðið, hafa at- orkusamir vísindamenn hætt lífi sínu á rannsóknarferð- um um myrkviðu frumskóganna, eða í torldeifum fjöll- um álfunnar, til þess að afhjúpa leyndardóma náttúr- unnar, bæði hinnar lifandi og dauðu, og ráða þær rún- ir, sem fyrir örófi alda voru skráðar í berglög álfunn- ar. Við og við berast oss svo fregnir af uppgötvunum, sem varpa nýju ljósi á sögu lífsins á jörðunni, og vér fyllumst eftirvæntingar eftir því að frétta meira af þeim vettvangi. Eitt hið merkasta, sem gerzt hefur af þessu tagi á síðustu árum er, að forndýrafræðingur L. S. B. Leakey að nafni hefur fundið leifar af mann- Með þessum steinflísum tókst Austur-Afrikumanninum að flá veiðidýr og sundra þeim. Ár vas alcla veru, sem mun hafa lifað fyrir um 600 þúsund árum í Tanganyika. Eru þetta elztu og frumstæðustu mann- leifar, sem enn hafa fundizt, en það er manntegund þessi, sem hlotið hefur nafnið Zinjanthropus, sem orð- rétt þýðir Austurafríkumaður. Vísindamenn hefur lengi grunað, að vagga mann- kynsins hafi staðið í Afríku. Sjálfur Charles Darvim hélt því fram fyrir heilli öld, og fundur dr. Leakeys virðist vera að láta þann grun hans rætast. En Zinjan- thropus er ekki fyrsti merkilegi steingervingurinn, sem þarna hefur fundizt. Árið 1948 fann dr. Leakey í Kenya steingerðar leifar af dýri, sem hlotið hefur heit- ið Proconsul africanus. Hann var að vísu það, sem vér myndum kalla frumstæðan apa, en þó þykjast vísinda- menn sjá í beinum hans greinileg merki þess, að til hans megi rekja ættir hinna æðri apa og manna. í Suð- ur-Afríku hafa fundizt leifar af verum, sem nefndar hafa verið apamenn eða hálfmenn (near-men), en þeir bera einkenni bæði manna og apa, en teljast þó ótvírætt til hinna síðarnefndu. Eftir endilangri Afríku austanverðri liggur sprungu- dalur mikill. í dal þessum einkum suður í Kenya og Tanganyika eru þykk setlög af sand- og leirsteini, og hafa þau reynzt vera óvenjulega auðug af steingerv- ingum. Dr. Leakey, sem er forstöðumaður náttúrugripa- safns í Nairobi í Kenya, hefur unnið árum saman að 418 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.