Heima er bezt - 01.11.1960, Síða 14

Heima er bezt - 01.11.1960, Síða 14
neðri kjálkann vantaði. Enginn skyldi þó ætla, að kúp- an hefði verið í einu lagi. Um aldaraðir höfðu jarðlög- in verið á hreyfingu, svignað, þanizt út og þjappazt saman, og við það höfðu beinin brotnað, svo að kúpan var í meira en 400 molum. Með smásmugulegri ná- kvæmni tókst þeim að tína öll þessi brot upp og setja þau saman í heild. Má fara nærri um, að það hefur ver- ið flókin gestaþraut, en myndin af hauskúpunni ber starfinu vitni. Þegar öllum brotum hafði verið saman safnað var ekki lengur hægt að efast um það, að hér var komin hauskúpa af manni. Aldur jarðlaganna, sem kúpan fannst í, var kunnur af öðrum steingervingum, og var hann um 600 þúsund ár. Það var því litlum vafa bund- ið, hvenær manntegund þessi hefði verið uppi, og um ■leið var sýnt, að hún var um 100 þúsund árum eldri, en frumstæðustu manntegundirnar, sem kunnar voru fram að þessu, þ. e. Java- og Pekingmennirnir. Stein- áhöldin, sem áður höfðu fundizt í þessu sama jarðlagi, tóku af öll tvímæli um það, að þar hefðu menn verið að verki. Engin apategund hefur nokkru sinni getað lagað til verkfæri handa sér, þótt þeim hafi lærzt að beita áhöldum, sem þeim hafa verið rétt. Elálfmenn- imir í Suðurafríku, sem fyrr er getið, kunnu ekki þá hst fremur en aparnir. Þeir hafa því vafalítið verið apar, rétt eins og Proconsul, þótt ýmsir drættir í gerð hans bentu einnig til mannsins. Enginn vafi er hins veg- ar á því, að hin nýfundna manntegund, Zinjanthropus, hafði gert sér þessi tæki, til að nota þau í lífsbarátt- unni, og smíði þeirra skipar honum hiklaust í tölu mannanna. En hvað sýnir svo hauskúpa Austurafríkumannsins, en svo verður hann kallaður hér eftir. Mannlcgasta ein- kenni hennar eru tennurnar. Að vísu er jaxlarnir stór- vaxnari en nokkurrar kynkvíslar manna, en vígtennur og framtennur eru tiltölulega smávaxnar, en þær tenn- ur nota dýrin til að drepa með bráð sína og rífa hana sundur sér til matar. Smæð þessara tanna gefur oss nokkra innsýn í lifnaðarhætti Austurafríkumannsins og nauðsyn hans að gera sér vopn eða önnur hjálpartæki. Hinir risavöxnu, flötu jaxlar sýna ljóslega, að megin- fæða hans hefur verið úr plönturíldnu, en steinrunnar beinaleifar, sem fundust þarna á sömu slóðum taka af öll tvímæli um, að hann lifði einnig á smávöxnum dýr- um, ungviðum spendýra, fuglum, nagdýrum og smá- skriðdýrum. En hvernig mátti hann gera sér mat úr dýrum þess- um? Framtennur hans og vígtennur voru óhæfar til að bana þeim eða rífa sundur dýraskrokka á stærð við kött eða kanínu. Dr. Leakey hefur sjálfur reynt að rífa skinnið af héra með tönnum og nöglum einum saman, en reyndist það ókleift með öllu. Svarið er því einungis eitt. Austurafríkumaðurinn hlaut að hafa ein- hver verkfæri í höndum, jafnskjótt og hann gerðist kjötæta, því að annars fékk hann ekki aflað sér fæðu né hagnýtt sér hana. Vafalítið hafa náttúrlegar stein- flísar verið fyrstu tækin, en brátt hefur honum lærzt að kljúfa þær sjálfur og laga þær í hendi sér, svo að þær kæmu honum að sem beztu gagni. Meira vafamál er, hvers vegna hann hefur horfið frá hreinni jurtafæðu og gerzt kjötæta. En ekki er ósennilegt, að hann hafi verið knúinn til þess að leita sér nýrra fanga, til að seðja hungrið, vegna vaxandi samkeppni um plöntu- fæðuna við hina risavöxnu grasbíti samtíðar hans. En hvað fleira sýnir hauskúpa Austurafríkumanns- ins? í ýmsum atriðum líkist hauskúpan meira nútíma- manni en t. d. gorillaapa eða suðurafríkönsku hálf- mönnunum, enda þótt svipur hennar sé apalegur við fyrstu sýn. Línur andlitsins, einkum þó kinnbeinanna, minna verulega á svipmót nútímamanns, og benda til þess, að neðri kjálkinn, sem enn hefur ekki fundizt, hafi verið lagaður til að bera vöðva, sem stjórna hreyf- ingum tungunnar, og gera manninum um leið kleift að tala. En fundur neðri kjálkans fær einn úr því skorið hvort hér hafi verið um talandi mann að ræða. Þá eru beinhnúðar neðan á hauskúpunni aftan við hlustar- göngin, líkir því, sem títt er á nútímamönnum, en gjörólíkir górillapanum og hálfmönnunum. Hauskúpu- grunnurinn sýnir, að Austurafríkumaðurinn hefur bor- ið höfuðið upprétt, og verið jafnvel reistari en sumir mannflokkar nútímans. En sú staðreynd bendir aftur á, að hann hafi haft stóran neðri kjálka og langa höku, sem væri í fullu samræmi við annan andlitsskapnað hans. Eftir hauskúpunni og þeim ályktunum, sem draga má af gerð hennar hefir kunnáttumaður dregið mynd þá af Austurafríkumanninum, sem hér birtist. En mjög geta menn farið nærri um andlitsfall manna eftir beinunum einum saman. Hinir mannlegu drættir and- litsins fá ekki dulizt, þótt ýmislegt beri á milli hans og nútímamanna. Hið helzta er, að heilabúið er mjög lítið og ennið lágt, mun heili Austurafríkumannsins hafa verið allt að því helmingi minni en nútímamanna. Þá er beinkambur upp úr hauskúpunni, svipaður og hjá sumum öpum og hálfmönnum. Sum rándýr eru með tilsvarandi beinkamb t. d. ljón og hýena. Á Aust- urafríkumanninum hefir hann sennilega staðið í sam- bandi við hina geysisterku kjálkavöðva hans. Dr. Leakey áætlar að margumrædd hauskúpa sé af 18 ára unglingi. Þá ályktun dregur hann af því að endajaxlarnir eru óslitnir með öllu, rétt eins og þeir væru nýteknir. Hins vegar eru hausamótin svo vel gró- in, að hauskúpan hlýtur að vera af eldri en 16 ára unglingi. Vitanlega er þetta tilgáta, sem þó mun vera mjög nærri sanni. Hins vegar leikur enginn vafi á aldri jarðlaganna, sem kúpan fannst í. Þau heyra til fyrri hluta Jökultímabilsins, eða eru um 600 þúsund ára gömul. Þær ályktanir, sem draga má af fundi þessum eru í stuttu máli: Austurafríkumaðurinn er fulltrúi mannlegs þróunarstigs, sem stendur nær nútímamönnum en hálf- mönnum Suður-afríku. Erfitt er að vísu að draga markalínu milli manna og hálfmanna aftur í mistri og móðu fjarlægra alda, en mörkin eru sett við það 422 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.