Heima er bezt - 01.11.1960, Side 15

Heima er bezt - 01.11.1960, Side 15
Þannig hugsa menn sér Austur-Afríkumanninn með húð og hári. Heilabuið er lítið og ennið lágt. Hins vegar hefur hann verið langleitur og sennilega með langa höku. þroskastig, þegar maðurinn byrjar að gera sér verkfæri til að nota í baráttunni fyrir lífinu og mótar með því framtíðarstefnu þroska síns. Enn segir dr. Leakey: „Það er beinlínis í krafti þeirra afreka Austurafríku- mannsins, að hann hefur smíðað sér verkfæri, sem ég tel hann eiga fulla kröfu á að vera talinn elzta mann- vera jarðarinnar að minnsta kosti þangað til, að enn eldri verkfæri kynnu að finnast.“ En þótt fundur Austurafríkumannsins sé harðla merkilegur fer því þó fjarri, að svift sé hulunni af öll- um leyndardómum Olduvai-gljúfurs. í berglögum, sem liggja um 20 metrum ofar en leifar Austurafríku- mannsins eru líkur til að geymdar séu leifar af mann- flokki, sem hefur náð meiri fullkomnun en hann, eða að minnsta kosti náð lengra í áhaldasmíð. í þessum lög- um hafa fundizt kastsleggjur úr steini, sem notaðar hafa verið til dýraveiða, og hafa gert þeim, er þær áttu, kleift að leggja að velli stór spendýr, sem Austur- afríkumaðurinn gat með engu móti ráðið við. Sleggjur þessar eru af líkri gerð og enn þekkist meðal frum- stæðustu Eskimóa og Patagóníumanna. Bera þær vitni um óvenjulega sterkbyggða menn, jafnvel á nútíma- mælikvarða. Fyrst um sinn verður þó meginkappið lagt á leitina að meiri minjum um Austurafríkumanninn, t. d. fýsir menn mjög að finna meira af beinum hans, svo að unnt verði að gera sér fyllri grein fyrir sköpulagi hans öllu. Og margt fleira forvitnilegt getur komið í ljós í hin- um 600 þúsund ára gömlu jarðlögum, sem enn hafa einungis sýnt lítið brot þeirra leyndardóma, sem þau geyma. (Þýtt og endursagt.) Steindór Steindórsson frá Hlöðum. Heima er bezt 423

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.