Heima er bezt - 01.11.1960, Qupperneq 16
EINAR GUTTORMSSON FRA OSI:
Minningar rrá námsárunum 1904 — 07
í Prentsmihju Odds Bj ömssonar
(Niðurlag)
Bruninn mikli.
Klukkan rúmlega 9 að kvöldi þess 18. október 1906
var ég genginn inn á herbergi mitt til svefnfara. Eg
hafði tekið með mér bók, sem ég ætlaði að líta í eftir
að ég væri háttaður. Hafði ég afklæðzt öllu, nema
vinstri fótar sokk. Þá drundi í brunaboðanum. Brá ég
við, klæddi mig aftur í skyndi. Úti var hæg suðvestan
gola, en andkait eins og oft á þessum tíma árs. Hrað-
aði ég mér norður Hafnarstrætið, að Barnaskólanum
gamla. Þar voru slökkvidælurnar geymdar, í kjallara
hússins. Þegar ég kom þangað, var verið að taka út
síðustu dæluna, mig minnir að þær væru þrjár. Hjálpaði
ég til að koma henni út úr húsinu, og fylgdist með að
ýta á eftir henni út að brunastaðnum. Var þá svokallað
Hornhús að mestu brunnið, og eldurinn tekinn að
nema Turnhúsið. I Hornhúsinu bjó meðal annarra
Vilhelm Knudsen, kaupmaður, með konu sinni, Hólm-
fríði Gísladóttur, ásamt tveimur börnum þeirra, pilti
og stúlku. Þar starfrækti hann líka kjötbúð sína, sem á
þeim árum þótti glæsilegasta búð þeirrar tegundar. Yfir
dyrum hennar var stórhyrnt bolahöfuð, Iogagyllt. í
Turnhúsinu var meðal annars verzlun Jósefs Jónsson-
ar, föður Jóhannes^r glímukappa, en efst uppi í turn-
inum leigði Karl Finnbogason, kennari, bróðir dr. Guð-
mundar Finnbogasonar. Þegar við komum að eldhaf-
inu, var hitinn orðinn svo mikill, að hann ætlaði mig
lifandi að steikja. Hljóp ég því út í sjóinn og jós hon-
um yfir mig á meðan ég var að komast austur fyrir
bálið. Stutt var í vatnið, þurfti því ekki nema brot af
vatnsberaliðinu til aðstoðar við slökkvistarfið. Var það
til margskiptanna unz yfir lauk. Er ég var kominn aust-
ur fyrir eldinn, tók ég að hjálpa til að bera út úr hús-
unum, bjarga því, sem bjargað varð. Var allt borið suð-
ur í fjöruna. Haldið var svona áfram niður Strandgöt-
una þangað til útséð var um stöðvun brunans. Mun þá
hafa verið komið niður undir Norðurgötu. Mátti heita
ein samfelld röst alls kyns húsgagna og búsáhalda, sunn-
an Strandgötunnar, ofan frá Glerárgötu niður að Norð-
urgötu. Eins og kunnugt er af frásögninni, varð eldur-
inn stöðvaður við Glerárgötu. Tókst það með því að
klæða vesturstafn hússins nr. 15 í Strandgötu seglastriga
eða yfirbreiðslu, sem skipstjórinn á strandferðaskipinu
„Skálholti“, sem þá lá hér inni, lánaði. Eftir að seglinu
hafði verið komið fyrir, beindist slökkvistarfið einkum
að því að dæla á það og halda því svo blautu að eld
festi ekki á því. Munaði þarna mjóu, en það tókst. Eft-
ir að ég hætti að bera út úr húsunum, leysti ég einhvern
vatnsbera liðann, sem stóð úti í sjónum, af hólmi, og
stóð ég þar, þangað til hætt var að dæla í rústirnar.
Klukkan mun þá hafa verið langt gengin 3. Á meðan
ég var í vatninu, fann ég ekki til kulda, en eftir að hafa
þurrt land undir fótum, fór á aðra leið. Var víst all-
skopleg sjón að göngulagi mínu heim um nóttina. Ég
fann ekki, að ég gengi á fótunum, en ég vissi, hvernig
ég átti að bera þá til. Við bruna þennan urðu margir
húsnæðislausir, þar á meðal Vilhelm Knudsen. Hann
tók húsbóndi minn upp á sína arma og veitti þeirri
fjölskyldu húsaskjól hálfsmánaðar eða þriggja vikna
tíma. Frá mér er aftur að segja, að ég mun hafa fengið
fleiður á vinstri fótar ökla, komst í það drep, og varð
ég að ganga með vafinn fót langt fram á vor.
Kerlingarferð.
A einhverju þeirra sumra, sem ég var við prentnám-
ið, kom húsbónda mínurn til hugar að fara með okk-
ur, prentarana, í gönguför upp á fjallið Kerlingu, sem
er vestur af Grund í Eyjafirði. Líldega hefur þetta
verið síðari hluta sumars 1906. Lögðum við af stað, að
liðnu hádegi, í unaðslegu veðri. Gengum við eftir vegi
alllangan spöl inn fyrir bæinn. Því næst var farið að
halla sér nær fjöllum. Farið t. d. um hlaðið á Klúkum.
Þar var allhár steinn. Settist fyrirliðinn á steininn og
fór að segja okkur sögur af Torfa á Klúkum, sem sagt
var um, að hefði vitað lengra, en nef hans náði. Eigi
var staðið lengi við. Gengið um garð í Víðigerði og
staldrað við hjá Kristjáni Hannessyni bónda þar, föð-
424 Heima er bezt