Heima er bezt - 01.11.1960, Page 17

Heima er bezt - 01.11.1960, Page 17
ur Jónasar samlagsstjóra. Tóku þeir tal saman hús- bóndi minn og hann. Hvað þeim hefur á rnilli farið var mér ekki kunnugt, þótt geta megi sér þess til. Að því búnu var ferðinni haldið áfram og ekki numið staðar fyrr en nokkuð hátt uppi í hlíðum Kerlingar á stalli einum. Sól var þá gengin til viðar, og húmblæja aðfarandi nætur sveipaði umhverfið. Þarna var losað um malpokana og magarnir fylltir, með hliðsjón af, að „fullir kunna flest ráð“. Að loknum snæðingi var tek- ið að ráða ráðum sínum. Virtist ógerlegt, úr því sem komið var, að hefja upphlaup á hlið Kerlingar undir nóttina, fresta heldur uppgöngunni til sólarupprásar næsta dags. „Mennirnir þenkja, en guð ræður“. Loftið kólnaði, nóttin myrkvaðist og jörðin döggvaðist. Kerl- ing vafðist gráum þokuflóka niður á axlir. Oðru hverju læddist að okkur úrsvalur norðvestan gustur. Þarna var samt búizt um og beðið á meðan vært var. Útlitið gerðist ekki álitlegt. Ályktun var gerð á þá leið, að þar sem útséð væri um, að veður mundi ekki leyfa okkur að setjast á koll Kerlingar að rnorgni, væri bezt að axla skinn sín og leita skýlis í heyhlöðu Víðigerðisbóndans. Að ráði þessu var horfið. Eftir að hafa látið fyrirber- ast þar tvær til þrjár stúndir, leitaði hópurinn niður á láglendið. Voru það rislágir menn, sem kornu labbandi sunnan veginn og lentu heilu og höldnu, hver heirna hjá sér, við rismál bæjarbúa. lðnskólinn. Eftir því sem iðngreinum fjölgaði hér í bæ og menn urðu færari í þeim, sáu meistarar þeirra, að einhverju varð að kosta til nemanna, svo að þeir yrðu færari að mæta lífinu. Mun þetta hafa orðið til þess að Iðnaðar- mannafélagið, sem að mestu eða öllu leyti hefur talið félaga sína verktaka, hófst handa um að stofna vísi að iðnskóla haustið 1906. Stofndagur skólans mun talinn frá 1. október það ár. Ég þori ekki að fullyrða, hvenær kennsla hófst í honum, nær er mér að ætla, að hann hafi ekki tekið til starfa fyrr en eftir nýjár 1907. Mun hann hafa staðið um það bil í tvo mánuði. Tilhögun man ég ekki, né hvort við fengum tilsögn annan hvorn dag. Skólinn var haldinn í Barnaskólahúsinu gamla, að lokinni vinnu og kveldverði. Námsgreinar voru fjórar: Islenzk málfræði, reikningur, fríhendisdráttlist og bók- færsla. Mig minnir að öllum nemunum væri kennt í einni stofu, ldukkustund hvert sinn, eða tvær nárns- greinar á kvöldi. Kennarar voru: Séra Jónas á Hrafna- gili, þá stundakennari við Gagnfræðaskólann, kenndi hann íslenzkuna. Karl Finnbogason kenndi reikning. Teiknikennari Gagnfræðaskólans, Stefán Björnsson, kenndi dráttlist og Hannes Ó. Magnússon, síðar Berg- land, kenndi bókfærslu. Eftirlitsmaður var Páll Jóns- son, síðar Árdal. Fór hann síðastur úr húsinu hverju sinni. Ég minnist þess enn úr íslenzku-tíma. Við vor- um í fornöfnunum. Hafði þá séra Jónas yfir eftirfar- andi klausu, til að sýna okkur áferð tungunnar, ef for- nöfnin féllu úr málinu: Barnið lofaði föður barnsins, að barnið skyldi bæta barnið, en af því að barnið lof- aði föður barnsins að það skyldi bæta barnið, gladdist faðir barnsins mikillega. Yfirleitt þótti mér lærdómur þessi skemmtilegur, nema dráttlistin. Fyrir henni voru mér lokuð augu, þótt ég tæki þátt í henni allan tímann. Aparnir. Á rneðan höfundur pistlanna í „Gjallarhorni“ „Á ferð og flugi“, var í siglingunum, kom frá honum sending til föður hans eða bróður. Sending þessi var mjög fágæt, svo sjaldgæf, að ég hef hvorki fyrr né síðar séð aðra eins. Voru það tveir apar, annar stálgrár en hinn móbrúnn. Munu þeir hafa verið urn 25—30 sm. á lengd með halanum. Veit ég ekkert, hvað um þá varð. Gerði ég mér ferð einn sunnudag að sjá tilburði þeirra. Voru þeir þá í garði hjá húsi Guðmundar læknis Hannessonar. Þeir sýndu fimleika sinn og færni. HIupu eftir trjágreinum, tóku tappa úr glösum, sátu á aftur- loppunum og leituðu hvor öðrum lúsa. Meira að segja, skemmti læknirinn sér kostulega við að láta þá sitja á öxlum sér og grufla í hári sínu. Var undrunarvert að sjá þá greiða hár frá hári í þeirri leit. Sjá þessa litlu, fimu, hárlausu fingur á öllum útlimum, og snöggu and- litin í loðnum feldinum. Þeir voru afar bráðlyndir. Þætti þeim miður, urðu þeir ekki frýnilegir, annars ekki ófríðir, kátir og fjörugir. Kvikmyndir. Veturinn 1905 átti ég kost á að sjá lifandi myndir. Einhver maður, sennilega sunnan úr Reykjavík, kont með þessar myndir, til að sýna þær íbúum Akureyrar- kaupstaðar. Hafði hann fjórar myndir meðferðis og ætlaði að sýna þær á fjórum kvöldum. Aðgangur átti að kosta 50 aura í hvert skipti, eða 2 krónur á allar sýningarnar. Ég heyrði mikið um þetta talað. Það kitl- aði skemmtanafýsn mína og forvitni. Ég átti engar tvær krónur. Von átti ég á föður mínum hingað inneftir fyrir þessar sýningar. Hann var akkerið, sem ég treysti á. Hann ætlaði ég að biðja um peningana. Þess skal getið, að um þær mundir varð ég fyrir trúarlegum áhrifum. Mér var ráðlagt, að ég skyldi spyrja föður- inn, sem á himnurn er, hvort ég gerði rétt í því að biðja föður minn á jörðunni þessarar peningagjafar. Þetta sama kvöld, í einrúmi hugans, steig upp bæn til himnaföðurins og hann beðinn að tjá mér vilja sinn. Síðan sofnaði ég. Ég man ekki, að mig dreymdi neitt, sem í frásögur væri færandi, en löngun til kvikmynda var kulnuð til fulls, er ég reis úr rekkju að morgni. Til viðbótar atviki þessu, skal það tekið fram, að kaup mitt á mánuði var 10 krónur, fæði og húsnæði 18 krónur og eftirvinnukaupið 15 aurar á klukkustund. Þetta er til skýringar þeim, sem aldrei hafa haft að segja af svip- uðum kjörum. Þá hef ég lokið þessum minningabrotum mínum, og þótt sumt af þeim komi ekki beinh'nis prentnáminu né prentsmiðjunni við, þá skeði þetta á námsferli mínum, á rneðan ég starfaði undir stjóm Odds Björnssonar, prentsmiðjustjóra. Heima er bezt 425

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.