Heima er bezt - 01.11.1960, Síða 18

Heima er bezt - 01.11.1960, Síða 18
RITSTJÓRI Konun sins — (Niðurlag). Tregasteinn Þegar ég kom að Seljalandi fyrir tæpum 30 árum, gekk ég upp að Tregasteini, ásamt fjórurn ungmeyjum, sem þar voru gestkomandi. Gamla konan á Seljalandi hafði þá nýlokið við að segja mér sorgarsöguna um steininn. Veður var kyrrt og hlýtt og „kvöldblærinn lognværi“ lá yfir dalnum. Sagan sorglega var vakandi í huga mér, og mér fannst sem ég væri að rekja spor konunnar harmi lostnu, sem fyrir mörgunt áratugum eða öldum þaut þessa sömu leið með örvæntingarhraða í von um að bjarga barni sínu úr klóm arnarms, og ég varð þess ekki mjög var, hve leiðin er brött og erfið. En nú í sumar, er ég kom þarna aftur á fornar slóðir, hinn 28. júlí, fannst mér leiðin bæði brött og erfið. Margt getur breytzt á þremur áratugum. Nú var skuggaþykkni yfir Svörtubrún og vindur allhvass á austan. Engar gjafvaxta meyjar prýddu nú hópinn. Þrír áratugir taka líka sinn skatt af fullorðnum manni og æskuprúðum meyjum, og ekki er víst að gangan hefði nú orðið jafn létt þessum sama hópi, þótt kvöld- kyrrðin og vorilmurinn hefði verið hinn sami og fyrir þremur áratugum. í þessari ferð að Seljalandi í sumar, hitti ég að máli húsbóndann, Kristján Magnússon, sem áður er getið og einnig móður hans, Hólmfríði. Sagði Hólmfríður mér, að þegar hún var barn að aldri á Hóli, hefði sér verið sagt, að föðurbróðir hennar, Jón Jónsson á Hóli, hefði klifið Tregastein og steypt þar undan erni (þ. e. grandað ungunum), sem lagzt hefði á unglömb í daln- um. Voru þeir tvíburar Teitur faðir Hólmfríðar og Jón, sem klettinn kleif. Sagði hún að Jón þessi hefði verið annálaður klettamaður, sem oft hefði bjargað kindum úr sjálfheldu í klettum. Elólmfríður er fædd árið 1876, og mun því Jón þessi, föðurbróðir hennar, hafa gengið á Tregastein á árun- um 1860—1875, Síðan hann steypti undan erninum í Tregasteini, vita menn ekki til að örn hafi orpið þar. Sagt er að kló af öðrum arnarunganum hafi verið handfang á taug í smiðjubelg á Hóli fram á síðustu áratugi. Þótti þessi ferð Jóns upp á Tregastein hin niesta frægðarför. Kristján á Seljalandi segir, að mjög erfitt sé að klífa Tregastein, og aðeins hægt á einn veg. Hann þekkir þó 7—10 menn, sem þetta hafa afrekað hin síðustu ár, og sjálfur gekk hann á Tregastein fyrir 28 árum ásamt Oskari Sumarliðasyni úr Búðardal. Sá hann þá greini- lega leifar af arnarhreiðri á hallandi fleti uppi á toppn- um. En arnarhreiður eru dyngjur stórar, gerðar úr birkilurkum, tágum, kvistum, stórgerðu grasi og ýmsu rusli. Kristján sagði að dyngjan hefði verið mjög vax- in mosa og grasi, en mjúk undir fæti er hann steig ofan í hana. Ég mun nú víkja sögunni frá Tregasteini og þeim sorgar-atburði, er við hann er tengdur, en bæta hér við einni sögu um örn, sem ég hef einhvern tíma lesið. Sagan á að gerast í Ameríku, þar sem ernir eru miklu stærri en hér á Islandi. En sagan er þannig sögð:

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.