Heima er bezt


Heima er bezt - 01.11.1960, Qupperneq 21

Heima er bezt - 01.11.1960, Qupperneq 21
veit ég þar er margt að finna. Eg vil reyna eitthvað nýtt, því ég veit að allir elska kaupakonur. Og í jeppa oft vil skreppa, ýmislegt mun gerast þar um sumarkvöldin. Þó með einum, oft í leynum ein ég fari það mig skaðað getur ekki neitt. Og mig dreymir oft um það, sem þar gerist, þegar sólin rennur síðla bak við fjöllin því að sveitin er engu lík. Um Ijósa nótt við leiðumst okkar veg, við lækinn bak við ásinn, þú og ég, og hvað þar verður hvíslað veit ei neinn, nema lækurinn einn, hann hlustar einn. Ég vil fara upp í sveit, þar í sumar vil ég vinna, veit ég þar er margt að finna. Ég vil reyna eitthvað nýtt, því ég veit að allir elska kaupakonur. Og í jeppa oft vil skreppa, ýmislegt mun gerast þar um sumarkvöldin. Þó með einum, oft í leynum ein ég fari það mig skaðað getur ekki neitt. Og mig dreymir oft um það, sem þar gerist, þegar sólin rennur síðla bak við fjöllin því að sveitin er engu lík. Upp til heiða, inn til dala liggja okkar tveggja spor. Að lokum er hér lítið ljóð, sem heitir: „Hún bíðnr þtn“. Höfundur er Kristján frá Djúpalæk. Lagið er eftir Svavar Benediktsson, en Alfreð Clausen hefur sungið Ijóð og lag á hljómplötu. Þú varst svo elskur að ægi, ungur og reikaðir löngum þögull við sólgullinn sæinn og sást inn í drauma lönd. Þar bárust á blaktandi seglum bátar og skip yfir hafið. Útþráin óx þér í hjarta á afskekktri strönd. Loks stóðst þú við stýri og kvaddir strönd þinnar bernsku og sigldir hraðbyr á hamingju-slóðir og hugur í brjósti þér hló. Og voðirnar vindurinn fyllti, vögguðu fleyinu öldur. Síðkvöldið sólrauðu skini á seglin þín sló. En sú, er þú síðasta kvaddir situr á ströndinni heima, biðjandi sæfara byrjar, og bíðandi eftir þér. Gleym eigi henni, er gullhár greiðir við sólarlag hafmey. O, hald þínu skipi til hafnar, er hausta fer. Hún bíður þín, hún bíður þín. Enn vantar mikið á að öllum bréfum sé svarað, en þetta verður að nægja um sinn. Stefán Jónsson. • • VILLI....... Heima er bezt 429 4

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.