Heima er bezt - 01.11.1960, Blaðsíða 25

Heima er bezt - 01.11.1960, Blaðsíða 25
þeim að klæðast. Ragna hraðar sér fram úr stofunni aftur án þess að ávarpa börnin, og sækir gestinn, sem bíður í eldhúsinu. Frú Eygló kemur þegar inn í stofuna ásamt Rögnu og býður glaðlega góðan dag. Síðan gengur hún að rúmi Nonna litla og réttir honum nýja skó. — Gerðu svo vel, vinur minn, hér koma skórnir handa þér, segir hún brosandi. Drengurinn tekur við gjöfinni, þýtur svo upp í fang frú Eyglóar og faðmar hana að sér í heitum, barnslegum fögnuði. — Mikið ertu góð! eru einu orðin, sem varirnar tjá, en þakklætið felst í atlotum hans. Frú Eygló faðmar drenginn blíðlega og nýtur gleði hans og þakklætis. En svo snýr hún sér að hinum bömunum og gefur þeim báðum peninga fyrir nýjum skóm, hún ætlar ekki að gera upp á milli barnanna. Hallur hefur fylgzt með gjörðum frú Eyglóar, síðan hún kom inn í stofuna, og hann getur ekki annað en dáðst að henni. En sektartilfinning hans sjálfs verður enn sárari en áður. Þessi ókunnuga kona hefur þá kom- izt að því, að drenginn vantaði skó, og henni er líka sjálfsagt ljóst, hver ástæðan var fyrir því, — faðirinn mat það meira að kaupa sér áfengi heldur en gefa barninu sínu skó á fæturna. Hallur stynur sárlega. Mikill ræfill hlýtur hann að vera í augum þessara ókunnugu konu. Frú Eygló gengur því næst að legubekknum til Halls og heilsar honum með hlýju handabandi. — Ég þakka þér fyrir börnin mín, segir hann við- kvæmt og dapurlega og þrýstir hönd hennar. — Það er ekkert að þakka, svarar frú Eygló glaðlega. Ragna býður gestinum sæti, og frú Eygló sezt. Síð- an fer Ragna með börnin fram í eldhús, þar ætlar hún að hjálpa þeim til að klæðast, því hún vill að frú Eygló ræði við Hall í einrúmi að þessu sinni. í fyrstu ríkir þögn í stofunni. Hallur og frú Eygló virða hvort annað fyrir sér í djúpri athygli. Frú Eygló er það ljóst, að Hallur þjáist, en Halli finnst sem sval- andi friður stafi frá þessari ókunnugu konu. Ragna var heppin að eignast hana fyrir vinkonu, en hvar hafa þær kynnzt? Og hver er hún þessi kona? Hann þráir að ræða við hana, en hann kemur sér ekki að því að hefja samræður. Niðurlæging hans er svo takmarkalaust djúp og sár í hans eigin vitund. Frú Eygló rýfur brátt þögnina og segir glaðlega: — Ég er nokkuð snemma á ferð, ég geri þér ónæði, Hallur. Hann andvarpar raunalega. — Nei, síður en svo, frú mín. Það er víst fyrir löngu kominn fótaferðartími hjá öllu heilbrigðu fólki. — Ertu þá sjúkur, Hallur? Hann lítur á frú Eygló án þess að svara með orðum, en hin djúpsára kvöl sem logar í augum hans nægir henni sem svar við spurningu hennar. — Er ekki hægt að gera eitthvað fyrir þig? spyr hún. Hann hristir höfuðið. — Þú komst hingað síðastlið- in laugardag, frú mín. — Þá sástu ástand mitt. — Já, ég sá það. — Þetta eru afleiðingar þess og. ... setningin endar í sáru andvarpi. Frú Eygló finnur, að nú er tækifærið komið til þess að ræða vandamálin við Hall, og nú má hún ekki bregð- ast köllun sinni. Hún lítur hlýjum augum á hann og segir: — Já, þú sagðir mér á laugardaginn, þegar við rædd- um hér saman, að eftirköst áfengisneyzlunnar væru síður en svo góð, og mér er ljóst, að það er mikið rétt. En með Guðs hjálp og einbeittum vilja getur þú Iosað þig undan því oki, Hallur. — Ekki held ég það, ég er svo djúpt fallinn, glataður maður, en það gerir lítið til með mig. Það er Ragna og börnin, ég eyðilegg líf þeirra með þessu framferði, og það kvelur mig. — Já, Hallur, og það kvelur þig, þess vegna ertu mikið betur á vegi staddur, en þú heldur sjálfur, því þeirra vegna finnur þú, að þú verður að byrja nýtt líf, og það er enginn svo djúpt fallinn, að hann eigi ekki uppreisnar möguleika. — En hvernig á ræfill eins og ég að geta aftur orðið að nýtum manni? — Eigir þú einlægan vilja og biðjir Guð að hjálpa þér til að byrja nýtt líf, þá áttu sigurinn alveg vísan. — Ég að biðja Guð! Ég er fyrir Iöngu kominn svo óralangt burt frá honum. — En hann er vissulega ekki langt frá þér, manstu ekki eftir dæmisögu meistarans mikla um glataða son- inn, sem sneri aftur heim, og hvaða viðtökur hann fékk hjá föðurnum góða? — Jú, ég kunni þá sögu í æsku, en hún er nú víst að mestu gleymd, eins og flest annað gott, sem ég lærði þá. — Rifjaðu hana upp, Hallur, og hugleiddu þann boð- skap, sem hún hefur að færa, og þá muntu sjá lífið í nýju ljósi. Hallur drekkur ósjálfrátt í sál sína orðin af vörum frú Eyglóar, og þau leysa þegar úr læðingi barnslegar, viðkvæmar kenndir í djúpi vitundar hans. Hver er hún þessi ókunna kona, sem á slíkan undramátt með orðum sínum? og hann spyr: — Hver ert þú, með leyfi, frú Eygló? — Ég er bara ósköp venjuleg kona. Maðurinn minn er prestur hér í borginni, segir frú Eygló. — Prestsfrú! Og þú ert svona lítillát að koma hingað og ræða við mig. — Það þarf ekkert lítillæti til þess, Hallur, við erum öll bræður og systur, sem byggjum þessa jörð. Hallur horfir undrandi á frú Eygló, svona fallega hefur enginn talað við hann fyrr, nú hefur hann loks fundið það, sem sál hans þyrsti eftir, skilning og vinar- hug. En frú Eygló heldur máli sínu áfram og segir: — Næsta sunnudag býð ég þér ásamt fjölskyldu þinni til hádegisverðar með okkur hjónum á heimili okkar. Hallur verður enn meira undrandi. — Ég þakka þér Heima er bezt 433

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.