Heima er bezt - 01.11.1960, Side 26

Heima er bezt - 01.11.1960, Side 26
fyrir, en heldur þú að maður eins og ég geti setið há- degisverðarboð í ókunnugu húsi? — Já, það held ég. Á mínu heimili eru allir skoðaðir sem bræður, vinir og jafningjar. — En ég veit ekki einu sinni, hvar þú býrð. — Það skiptir ekki máli. Við hjónin komum hingað í bifreið og sækjum ykkur, ef þú vilt veita okkur þá ánægju að þiggja þetta boð mitt. — Eg get ekki svarað þessu nú, en ég þaltka þér hjartanlega fyrir komuna hingað í dag. — Það er ekkert að þakka, Hallur, þú manst að ég hef boðið þér ásamt fjölskyldu þinni til hádegisverðar næstkomandi sunnudag, og þú hugleiðir svo svar þitt til helgarinnar. Ég skal minnast þín með bæn til Guðs. Frú Eygló rís á fætur og réttir Halli hönd sína. Hann tekur fast um hönd hennar og þrýstir hana innilega. En þakklæti hjartans fyrir síðustu orð hennar deyja í klökkva á vörum hans. Frú Eygló finnur í þögninni, hvað Halli líður, og fleiri orð eru óþörf. Hún kveður hann með hlýju hand- taki og gengur síðan hljóðlega fram úr stofunni. Er- indi hennar er lokið að þessu sinni, og það hefur ekki orðið með öllu árangurslaust. En Hallur grúfir andlit sitt niður í koddann og lok- ar augunum. Þessi góða kona ætlar að biðja fyrir hon- um, glataða syninum, og sú hugsun gerir hann svo barnslega klökkvan, að hann grætur sig að lokum í svefn. Dagamir líða. Hallur stundar vinnu sína að venju, og allt gengur sinn vana gang á heimilinu. En í sál hans er hörð barátta hafin. Þau áhrif sem frú Eygló vakti hjá honum, skapa þar öldurót mikið. Þau knýja stöðugt á hið viðkvæmasta í vitund hans og kalla hann í fullri alvöru til reikningsskila við skyldur lífsins og eigin samvizku. Hallur þráir að byrja nýtt líf, hefur aldrei þráð það heitar en nú, en er það mögulegt fyrir hann? Honum er ljóst, að um tvennt er aðeins að velja: Nýtt heilbrigt líf frá grunni, eða algera eymd. Samtalið við fréx Eygló er sem skráð í vitund hans, hvert orð hennar, og hann finnur stöðugt hinn milda undramátt þeirra orða fara um sál sína eins og knýj- andi afl, sem aldrei lætur hann ósnortinn. Á hann að neita sér um alla áfengisneyzlu yfir næstu helgi og fara með fjölskyldu sinni í hádegisverðarboð frú Eyglóar? í undirvitund sinni finnur hann sterka löng- un til að gera þá tilraun. Það myndi lyfta honum upp og færa honum þá vissu, að enn gæti hann komið fram sem siðuðum manni sæmir. En fyrsta skilyrðið fyrir því, að hann geti látið sjá sig í ókunnu húsi, er áð vera allsgáður. Þiggi hann nú hins vegar ekld boð frú Eyglóar, má hann búast við því að glata þar með hlý- hug hennar og skilningi, en því vill hann alls ekki glata. Baráttan er hörð í sál Halls. Síðasta vinnustund vikunnar er á enda. Hallur legg- ur frá sér verkfærin og gengur inn í skrifstofu vinnu- veitanda síns til þess að taka við verkalaunum vikunn- ar, en þau eru aðeins fyrir fimm daga að vanda. Hall- ur fær greidd laun sín og hraðar sér síðan út. Blóðið tekrn* að ókyrrast í æðum hans. Garnla tilfinningin, sem vön er að vakna hjá honum um þetta leyti á laug- ardögum, þegar vinnulaunin eru komin í vasann, brýzt nú fram í sál hans jafnsterk sem fyrr, og rænir hann öllum friði. Hann reikar af stað og heldur heimleiðis. Áfengisverzlunin stendur við götuna, þar sem leið hans liggur um, og hún er opin. Freistingin blasir við hon- um. Hann er kominn á móts við dymar og hægir þeg- ar ferð sína. Hann sér að menn streyma þar út og inn, og enginn fer tómhentur þaðan út aftur. Hallur nemur staðar á götunni og horfir niður fyrir sig um stund. Á hann að fara inn í áfengisverzlunina og kaupa sér eina flösku? Hann þjáist af löngun til þess. En á þessari stundu rís eitthvað nýtt í vitund hans, sem spyrnir á móti freistingunni, og falli hann nú, bíður hann sinn stærsta ósigur. Síðustu orð frú Eyglóar hljóma skyndilega í sál hans: — Ég skal minn- ast þín með bæn til Guðs. — Þessi góða kona hét því að biðja fyrir honum, og heima bíður hans konan hans og bömin eftir því, að hann komi til þeirra. Ætlar hann svo að eyðileggja Iíf ástvina sinna, um leið og hann glatar sjálfum sér? (Framhald). Bréfaskipti Valur Ingólfsson, Dal, Grenivik, S.-Þing., óskar að komast í bréfasamband við pilta og stúlkur á aldrinum 12—13 ára. Stefania Stefánsdóttir, Þiljuvöllum 31, Neskaupstað, óskar að komast í bréfasamband við pilta og stúlkur á aldrinum 13—15 ára. Guðný Oskarsdóttir, Þiljuvöllum 30, Neskaupstað, óskar að komast í bréfasamband við pilta og stúlkur á aldrinum 13—15 ára. Margrét Jónsdóttir, Hvítanesi, Vestur-Landeyjum, Rang., óskar eftir bréfaskiptum við pilta og stúlkur 13—16 ára. Dóra Jónasdóttir, Strandarhöfða, V.-Landeyjum, Rang., óskar eftir bréfaskiptum við pilta og stúlkur 13—16 ára. Sigurbjörn Eiður Arnason, Hallbjarnarstöðum, Tjörnesi, S.-Þing., óskar að komast í bréfasamband við pilt eða stúlku á aldrinum 13—16 ára. Ahugamál: Frímerkjasöfnun. Kristborg Björgvinsdóttir, Krossgerði pr. Djúpavog, S.-Múl., óskar eftir bréfaskiptum við 12—14 ára böm. Einar Björgvinsson, Krossgerði pr. Djúpavog, óskar eftir bréfaskiptum við 11—13 ára börn. Guðlaug Olafsdóttir, Víðihóli, Fjöllum, N.-Þing., óskar að komast í bréfasamband við pilt eða stúlku á aldrinum 13—15 ára. Sigriður Kr. Bjarnadóttir, Haga, Þingi, A.-Hún., óskar að komast í bréfasamband við 12—14 ára pilta. Björg Bjarnadóttir, Haga, Þingi, A.-Hún., óskar að komast í bréfasamband við pilta 16—18 ára. Asta Kristjánsdóttir, Steinnýjarstöðum, Skagaströnd, A.- Hún., óskar eftir bréfaskiptum við pilta á aldrinum 20—25 ára. Æskilegt að mynd fylgi. 434 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.