Heima er bezt - 01.05.1961, Page 15

Heima er bezt - 01.05.1961, Page 15
mikilli lagni og harðfylgi um leið. Meginatriði þessara laga var stofnun embættis skógræktarstjóra, en um leið var yfirstjórn þessara mála komin á eina hendi, og tryggð sérfræðileg umsjá skóganna og þeirra tilrauna, sem gerðar kynnu að verða. Þá var og ríkisvaldið bundið til framkvæmda með þessari skipan. Höfðu þeir Ryder og Prytz lagt fast að landsstjórninni að koma á þessari skipan málanna. Umræður um málið á Alþingi urðu þó meiri í sam- bandi við afgreiðslu fjárlaga en frumvarpið sjálft. Það kemur greinilega í ljós við þessum umræður, að það sem einkum var Þrándur í götu laganna var sparnaðar- andi þingsins og ótti þingmanna við fjölgun embætta. Það virðist einnig, að tilraunir þær, sem Flensborg hafði þegar gert, hafi síður en svo aukið mönnum trú á mál- efninu, eða möguleikum þess, að kornið yrði hér upp nýjum skógum af erlendum stofni. Meira að segja Stefán Stefúnsson, skólameistari, sem vitanlega hafði rneiri þekkingu og skilning á þessum efnum til brunns að bera en nokkur þingmaður annar, lét í ljós full- komna vantrú á, að erlendar trjátegundir gætu vaxið hér, svo að skógur yrði úr. Það mun hafa verið fullráðið, áður en rnálið kom fyrir Alþingi, að skógræktarstjórinn yrði danskur mað- ur. Gætir þess einnig í umræðunum, að þingmenn van- treysta dönskum manni að hafa forystu í þessum mál- um. Stefán Stefánsson stingur upp á að senda einhvern Islending utan, og láta hann læra skógrækt, og bendir um leið réttilega á, að þá komi til sögunnar maður, sem auk sömu þekkingar og lærdóms og danskur skógfræð- ingur, hafi kunnugleika á landi og þjóð, og hann skilji þarfir landsmanna betur en erlendur maður, „þess vegna cr heppilegra, að mál þetta sé í höndum íslenzks manns, og þá fyrst von um, að alþýða manna hætti að líta þetta mál hornauga, og skilji það og láti sér annt um það“. (Alþt. B 1901 318.) En þótt rnargir yrðu til andmæla, og jafnvel sam- flokksmenn Hannesar væru deigir í fylgi sínu við mál- ið, lét hann hvergi hugfallast. Eftirfarandi ræðustúfur sýnir ljósast hug hans, og má að nokkru leyti skoða hann sem stefnuyfirlýsingu Hannesar í skógræktarmál- inu. En í þessari ræðu er hann að svara ýmsum andmæl- endum málsins, og segir svo: „Háttvirtur þingmaður hélt því fram, að það heillavænlegasta til að flýta fyrir þessu rnáli væri að fara sem hægast og gjöra sem minnst. Ég er á algerlega mótsettri skoðun, ég álít það liggi í augum uppi, að því meir og fyrr, sem að þessu er starf- að, því meiri og fljótari árangur sjáist af starfinu. Það þarf að byrja þannig, að frá upphafi sé stefnt að ákveðnu takmarki með alvarlegri eftirleit eftir því hag- felldasta og vænlegasta og ekki með neinu káki. Hér sem annars staðar þarf að læra af reynslunni, og því duga ekki menn, sem eru fæddir með einhverja ófrá- víkjanlega skoðun á málinu fyrirfram, og.hana kannske skakka. iVIenn mega reiða sig á það, að hér á fslandi gildir sama lögmál, sem ræður alls staðar annars staðar, nefnilega að reynslan verði að vera lærimeistarinn.... “ Síðar í ræðunni varar hann við því „að gera út um það að óreyndu hvað mögulegt kunni að vera í framtíð- inni í þessu efni, og eru slíkar kenningar hættulegar fyrir þetta mál.“ (Alþt. B 1907 319—20.) f umræðunum kom það fram hjá sumum þingmönn- um, að réttast væri að fela Búnaðarfélagi íslands með- ferð þessara mála, og spara með því embætti skógrækt- arstjóra.. Hannes snýst algerlega öndverður gegn því, meðal annars af því, að hann lítur á skógræktarmálið sem hugsjónamál og þykir hætt við, að það yrði haft á hakanum, þegar það væri undir sömu stjórn og hin daglegu viðfangsefni búskaparins, um það segir hann meðal annars: „Skógræktin getur ekki látið sér nægja að fá mola þá, sem detta af borðum landbúnaðardrottn- anna, sem aðallega eru að hugsa um hið daglega brauð.... Starfssvið Búnaðarfélagsins er nógu mikið og mikilsvarðandi fyrir því, þó að öllu sé ekki hlaðið á herðar þess.“ (Alþt. B 1907 390.) Ég hygg að þessi ræðubrot sýni Ijóslega, að skóg- ræktarmálið átti þar traustan stuðningsmann, sem Hannes Hafstein var, bæði framsýnni og skilningsbetri á þarfir landsins í þessu efni en allur þorri landsmanna, og einnig að það hefði vissulega orðið málinu mikill styrkur, ef stjórnarforystu hans hefði lengur notið við en raun varð á. Þrátt fyrir allmikla mótspyrnu voru lögin samþykkt á þinginu 1907, og 1. marz 1908 var danskur skógfræð- ingur, A. F. Kofoed-Hansen settur skógræktarstjóri og gegndi hann því starfi í 27 ár. Aður en þetta væri, höfðu fjórir Islendingar verið styrktir til skógarvarðanáms erlendis. Fyrstur þeirra var Stefún Kristjúnsson. Lauk hann námi 1905, og var þá settur skógarvörður á Hallormsstað um leið og land- ið keypti jörðina og friðaði skóginn. En þegar Vagla- skógur var friðaður 1909 gerðist Stefán skógarvörður þar um langt skeið. Hinir, sem seinna lcomu, voru Ein- ar E. Sæmundsen, Sumarliði Halldórsson og Guttorm- ur Pálsson, sem nú er einn á lífi frumherjanna í íslenzkri skógrækt. Allir þessir menn tóku til starfa á vegum skógræktarinnar, þegar eftir heimkomu sína frá námi. Með setningu skógræktarlaganna var merkum áfanga náð, og fenginn sá grundvöllur, sem þurfti til þess, að unnt yrði að hefjast handa um skipulegar aðgerðir í málum þessum. Þótt ekkert hefði annað komið til greina en viðurkenning ríkisvaldsins á því, að hinu op- inbera bæri að stjórna þessum málum og styrkja þau, var það stór sigur. Þó fór svo, að framfarir og fram- kvæmdir urðu minni en búast hefði mátt við, og bar margt til þess. Skammt var nú eftir af stjórnartíð Hann- esar Hafstein, og næstu árin eftir setningu laganna snerist orka stjórnmálamannanna og Alþingis um deil- una við Dani, og skyggði það mál á allt annað eins og löngum fyrr. Síðar skall heimsstyrjöldin yfir 1914— 1918, og gaf hún nóg viðfangsefni, og loks þegar full- veldið fékkst 1918 og deilan við Dani var leyst, þurfti í mörg hom að líta við að koma skipan á hið nýstofn- aða ríki. Mun allt þetta hafa ráðið miklu um, að hljótt Heima er bezt 159

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.