Heima er bezt - 01.05.1961, Blaðsíða 30

Heima er bezt - 01.05.1961, Blaðsíða 30
GUÐRIJN FRÁ LUNDI FERTUGASTI HLUTI „Það var ekkert ónotalegt að fá hana svo hægt væri að slá [>á gömlu af, sem bæði var orðin þurftarfrek og þreifst illa, enda hefur sumarið verið hálfónotalegt fyr- ir mjólkurpening. Svo var „kagað“ upp fyrir tún til að sýna hryssuna og folaldið, tannféð þess litla. Ekki var gleymt að opna skemmugarminn. Þá hékk þessi dýrindis gripur yfir- breiddur af pokum. Bara söðull. Ekkert annað og svo uppbúið rúm. Konurnar voru aldeilis hissa. Og svo barnið, þetta líka indæla barn. Regluleg heimilisprýði. „Já, hann er efnilegur," sagði konan í Holti, „en ólíkari bræður hef ég ekki séð en hann og Jón litla, á Hofi. Ég fór svo sem til kirkju í sumar. Það er náttúr- lega til skammar að segja frá því, að ég hafi aldrei komið í Guðshús síðan Rósa var flutt burtu, en svona er maður óguðlegur. En mér fannst ég ekki geta komið á heimilið svona niðurbrotið og sundurtætt eins og af því var látið. Mikið er hún nú ljúf og lítillát, alveg eins og hann faðir hennar, blessaður öðlingurinn.“ „Finnst þér þá Jón laglegri en Hartmann litli,“ spurði húsfreyja og lét brúnirnar síga. „Ég gæti hugsað að þú fengir ekki marga til að samþykkja það.“ „Ég sagði bara að þeir væru ólíkir, um hitt er ekki hægt að segja. Jón er allur í móðurættina, en þessi er líkur föður sínum. Mér hefur aldrei þótt hann við- kunnanlegur maður,“ sagði konan frá Holti alveg ósmeik. „Hef ég nú aldrei heyrt annað eins. Það var nú svo látið með hann, manninn þann, hérna á árunum. Svo hefur Hartmann litli mikinn svip af móður sinni. Ekki tapar hann við það, blessað barnið.“ Þær voru ekki vel ánægðar grannkonumar þegar þær gengu heimleiðis. Það leit út fyrir að þau væru orðin vel stæð af þessari veru Ásdísar hjá Kristjáni. Það var víst alveg óþarfi að bera það á hann að hún hefði unn- ið þar kauplaust. Ef allar vinnukonur bæru annað eins úr býtum. Hún var líka vel ánægð yfir því öllu, kerl- ingin, lausaleikskróganum, ekki síður en öðru. Það var líka ómögulegt annað að segja en þetta var myndar- strákur og Ásdísi hafði bara farið mikið fram, hún var ekki eins kjánaleg og áður. Ásdís beið með óþreyju eftir hreppaskiladeginum. Þá færi karl faðir hennar að heiman. Þá ætlaði hún að grípa tækifærið og fara vestur yfir fjallið til að vita hvernig liði á Grýtubakka. Þó einhver kæmi vissi sá hinn sami ekkert hvað þar gerðist. Hartmann litli var nú orðinn svo hændur að frænkunum litlu, að engin hætta var á því að hann yrði órólegur. Meira að segja afi gamli sat oft með hann og hossaði honum á hné sínu. Þá var hann að þeysa á litla Skjóna í smala- mennsku eða í réttina. Hún hafði alltaf verið hrædd við karl föður sinn og vildi ekki styggja hann með því að fara svo hann vissi. Það var ágætt veður þennan dag. Haustið hafði verið hlýtt og úrfellalaust. Ásdís sat ný- greidd með nýja skó og beið þess að karlinn hefði sig af stað. Loksins fór hann. Þá var hún fljót að skipta um föt og hlaupa af stað. Hún stanzaði hjá Skessusteini og blés mæðinni. Þarna var einhver á fleytu rétt fram af víkinni. Líklega Hart- mann karlinn að ná sér í soðið. Hún gekk rakleiðis til baðstofu, henni fannst það óþarfi að vera að berja að dyrum. Gömlu konurnar sátu með prjónana sína á innstu rúmunum. Valborg var að segja Arndísi gömlu sögu. Það glaðnaði yfir þeim báðum þegar þær sáu gestinn. „Ásdís bara komin en líklega þó ekki með blessað- an vininn litla,“ sagði Arndís. „Nei, ég var búin að fá nóg af því að reiða hann þarna um daginn. Það er vont að fara á hesti hérna á milli. Ég er gangandi núna.“ „Hvernig hefur honum liðið, blessuðum vininum mínum?“ „Hann var víst ekki vel ánægður fyrstu dagana, en nú er hann orðinn vel rólegur fyrir löngu, enda tilbiðja hann allir, líka pabbi gamli hvað þá aðrir.“ „Þú ert bara kófsveitt. Ekki að spyrja að skerpunni. Gott að drengurinn hefur það gott. Nógar eru áhyggj- urnar samt,“ sagði gamla konan. „Ég skrapp þetta bara til að vita hvernig þið hafið það,“ sagði Ásdís. „Það veit enginn neitt þó einhver komi. Voru allar skepnurnar seldar á þessari axjón og 174 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.