Heima er bezt - 01.05.1961, Blaðsíða 20

Heima er bezt - 01.05.1961, Blaðsíða 20
 ÞATTUR RITSTJÓRI Fæddur rífeisarfi eir, sem hafa átt því láni að fagna, að hafa séð öll Norðurlönd, eiga erfitt með að ákveða, hvert af þessum sumarfögru löndum sé fegurst. Fegurðarskyn og fegurðarmat er líka svo per- sónulegt, að sjaldan eru allir sammála, þegar rætt er um fegurð lands eða héraða. Á íslandi geta þeir, sem víða hafa farið um landið, þrotlaust deilt um hvar sé fallegast. — Nefnir þá einn ef til vill byggðir Breiðafjarðar, annar Borgarfjörðinn, hinn þriðji Skagafjörðinn og hinn fjórði Eyjafjörðinn. Allir hafa þeir að nokkru leyti rétt fyrir sér og geta fært gild rök fyrir sínu mati. Nefna mætti líka miklu fleiri héruð og staði, sem til greina gætu komið við þetta mat, eins og t. d.: Hallormsstað á Héraði austur, Vatnsdalinn, Síðuna og Fljótshverfið, Eyjafjallasveit og Saurbæ í ölum og enn fleiri staði. Sama má segja um Norðurlöndin. Hver og einn lít- ur sínum augum á fegurðina, og matið fellur ekki ætíð í sama farveg. Ég ætla ekki að rökræða þetta hér, en ég vil geta þess, að ef ég ætti að meta fegurð Svíþjóð- ar eftir mínum smekk, þá myndi ég segja, að fegursta byggðin væri Vermaland og fegursta borgin Stokk- hóimur. Ég vil líka bæta því við, að ég tel Stokkhólm tvímælalaust fegurstu borg á Norðurlöndum, enda er hin fagra höfuðborg Svíaveldis oft nefnd Feneyjar Norðurlanda. Eg hef nefnt þennan þátt „Fæddur ríkisarfi,“ — en «á, sem fæddur er með þeim réttindum að erfa ríki, er líka nefndur prins eða krónprins. Konungum og konungsríkjum hefur mjög fækkað á síðustu áratugum, en þó eru nokkur nágrannalönd ís- lands enn með þingbundna konungsstjórn, en einvalds- konungar eru horfnir af leiksviði sögunnar. Nágranna- ríkin, sem enn hafa þingbundna konungsstjórn eru sem kunnugt er þessi ríki: Af Norðurlöndum: Danmörk, Noregur og Svíþjóð, og auk þess: England (Stóra- Bretland), Holland og Belgía. — Löggjöfin um erfða- rétt konungborinna barna eru þó ekki eins í öllum þessum löndum. í sumum löndunum er erfðarétturinn eingöngu bundinn við konungssyni og þar nefnist elzti sonur konungborinna hjóna krónprins og er ríkisarfi, en í sumum þessum löndum getur elzta dóttirin erft þennan rétt, eins og t. d. í Flollandi og Englandi. í Svíþjóð er erfðarétturinn bundinn við konungssyni. Vorið og sumarið 1946, var ég um þriggja mánaða skeið í Svíþjóð. — Um mánaðamótin apríl og maí var ég í Stokkhólmi. Ég hafði herbergi á leigu í stóru gistihúsi, sem heitir „Strand-hótel“. Herbergið var á þriðju eða fjórðu hæð og sneri glugginn út að aðal- götunni, en gistihúsið er nálægt miðju borgarinnar. Að morgni hins 30. apríl svaf ég værum svefni, en hrökk upp með andfælum við ógurlega fallbyssu-skot- hríð. I fyrstu áttaði ég mig ekkert á því, hver ósköp væru yfir að dynja. Á stríðsárunum hafði ég heyrt fjarlæg fallbyssuskot utan af hafi, en aldrei hafði ég heyrt slíka skothríð svo nærri mér. Þetta var vorið 1946 og var þá liðið tæpt ár frá stríðslokum. Friður- inn var ótryggur og víða var ólga undir, þótt kyrrt væri á yfirborðinu. Ég held að mér hafi fyrst flogið í

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.