Heima er bezt - 01.01.1962, Page 8

Heima er bezt - 01.01.1962, Page 8
Petta er eins og aA komast í spennandi sögu Gísli Jónsson spjallar við Magneu Magnúsdóttur — Eina mynd enn, og þá er þetta búið, segir Bjarni. Við erum staddir í Norðurgötu 4 hjá Magneu Magnús- dóttur húsfreyju, sem skrifað hefur söguna, sem verða á næsta framhaldssaga í Heima er bezt, og ég á að hafa viðtal við hana. — Geturn við þá byrjað? — Já, já. — Eigum við að þúast eða þérast í viðtalinu? — Þúast, held ég, frekar. — Og hvað segirðu mér þá um upprunann? — F.g er fædd vestur í Strandasýslu, á Kleifum í Kaldbaksvík, 18. apríl 1930. Foreldrar mínir eru Guð- björg Guðmundsdóttir og Magnús Magnússon, bóndi þar, já. Við fluttumst þaðan, þegar ég var 15 ára, og þau eiga heima á Skagaströnd núna, bjuggu fyrst þrjú ár á Drangsnesi, það er lítið sjávarþorp, en var þá í uppgangi, íbúarnir, ég man það ekki svo, þeim hefur farið fækkandi. Við vorum fimm, systkinin. Þrír bræður, allir nú á Skagaströnd, og ein systir látin, og svo á ég eina fóst- ursystur. Bræðurnir eru allir sjómenn, mikið sjóarablóð í ættinni. — Og þú hefur alizt upp með foreldrum þínum? — Já, en eftir veruna á Skagaströnd var ég hér og þar, í kaupavinnu á sumrin, stundum í skóla á veturna, einn vetur í Kvennaskólanum á Staðarfelli, annan í Tó- vinnuskólanum hjá henni Halldoru Bjarnadottur, einn vetur hér frammi í Firði, og svo gifti ég mig nú. Mað- urinn minn er Baldur Halldórsson fra Hleiðargarði í Eyjafirði, já, við kynntumst þarna frammi í Firðinum. Ég var að setja upp vefi fyrir konurnar, var á vegum Halldóru Bjarnadóttur og svo í kaupavinnu um sumar- ið, svo vann ég hérna á Hjálpræðishernum veturinn eftir, og þá var ég trúlofuð. — Og svo hafið þið gifzt? — Já, og vorum fyrst eitt ár í Hleiðargarði, bjugg- um svo sjö ár í Rauðhúsum, og þa fluttum við í bæinn. Baldur er vefari á Gefjun núna. Við eigum tvær dæt- ur, Sigrúnu Sigurmundu 9 ára og Borghildi Run 5 ára. — Hvernig líkaði þér að vera bóndakona í Eyjafirði. — Svo-na. Ég vil heldur vera bóndakona við sjó. — Það er arfur frá Ströndunum? — Það hugsa ég. Mikil breyting fyrir þann, sem er alinn upp á sjávarbakkanum, að setjast að í Eyjafirði. Manni finnst þröngt um sig. Það er raunar stutt á milli bæja og bílar á hverjum bæ, en það er aldrei hægt að ganga á reka né fara á sjó milli bæja. — Viltu ekki segja eitthvað frá æskuárunum fyrir vestan? — Ég held ekki. Það skeði ekkert merkilegt. En það er fallegt þar, ég kom þangað í sumar í fyrsta skipti síðan ég flutti. Jú, það hafa orðið breytingar. Lands- lagið er að vísu hið sama, en búið að rækta mikið á Kleifum, margt horfið, hólar og hæðir, sem ég mundi eftir, og svo er mikið komið í eyði í kring. Það eru bara tveir bæir þarna í víkinni og langt til næstu bæja. Nú er kominn bílvegur, og það er allt öðruvísi en var, þegar bara var sjórinn, eða þá hestarnir, það þekktust engin önnur farartæki. — Var stórt bú hjá föður þínum? — Ekki á eyfirzkan mælikvarða, en alltaf einhver sjósókn. Það var tvíbýli, þegar ég átti heima á Kleif- um, pabbi og bróðir hans áttu trillu og öfluðu oft vel. Já, ég man það núna, ég var minnt á það í sumar, dá- lítið atvik, sem gerðist, þegar ég var 13 ára heima á Kleifum. Það var vatn í dalnum, venjulega lagt mest- an part vetrar og fram á vor. Ég var látin gæta ánna um vorið, það voru svo miklar hættur, og ég varð að halda þeim frá fjörunni. Það var tvíbýli, eins og ég 4 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.