Heima er bezt - 01.01.1962, Blaðsíða 28

Heima er bezt - 01.01.1962, Blaðsíða 28
andlitið niður í teppið og grét lágt og sárt eins og lítið barn. Karlsen klóraði sér bak við eyrað. — Hvern fjárann gat hann sagt við stúlkuna, svo hún hætti að gráta, eða hvað átti hann að gera fyrir hana? Hann settist á rekkjustokkinn, strauk yfir úfið hár hennai' og sagði: „Heyrðu nú, vinkona, er lífið svona afskaplega sorg- legt? Hvað er hægt að gera fyrir þig til að ráða bót á því?“ En stúlkan svaraði engu, bara grét, en gráturinn fór þó smádvínandi. Karlsen stóð upp, náði í teppi í annarri efri rekkj- unni, breiddi ofan á stúlkuna, tók af henni skóna og ýtti fótum hennar inn undir teppið. Strauk henni síðan hlýlega um herðarnar. „Svona, nú skaltu sofna, ég skal sjá til að þú verðir ekki ónáðuð fyrr en á hádegi, en þá þarft þú að borða. Er það ekki ágætt?“ Ekkert svar, og Karlsen gekk hægt út úr klefanum. Hann sneri sér við í dyrunum og leit vorkunnaraugum á stúlkuna. Hún var svo lítil og einmanaleg, að hann dauðkenndi í brjóst um hana. Það lá vel á skipstjóranum. Hann hafði gaman af að tala, og Karlsen var góður áheyrandi að sögum hans. Þær fóru þó flestar fyrir ofan garð og neðan hjá hon- um, en skipstjórinn var ánægður, héldi hann aðeins að Karlsen hlustaði. „Veizt þú um nokkra stúlku, sem vildi ráða sig í góða vist?“ spurði skipstjóri. Karlsen hugsaði sig um. Nei, ekki mundi hann nú eftir neinni í svipinn. „Hvern vantar vinnukonu?“ spurði hann. „Kaupmannsfrúna,“ svaraði sldpstjóri. „Stelpan sem var hjá þeim, stökk í burtu öllum að óvörum. Frúin var alveg í öngum sínum í morgun. Þetta var samt víst hálfgert trippi, skildist mér.“ „Veiztu ekki, hvers vegna hún fór?“ spurði Karlsen. „Jú, frúin var að tala um, að líklega þyrfti hún að hverfa um tíma, hún væri hálf laus á kostunum. Hún gaf í skyn, að líklega vissi einhver ungu mannanna í þorpinu bezt um það, hvers vegna hún stykki svona í burtu.“ „Líklega hefur hann svo ekkert viljað með hana hafa, þegar hún þurfti mest á honum að halda,“ sagði Karlsen kuldalega. Skipstjórinn leit undrandi á hann. „Ert þú nú að hallmæla kynbræðrum þínum?“ spurði hann. „Mér finnst alltaf lítilmannlegt að kannast ekki við verlt sín, hvort sem í hlut á karl eða kona,“ anzaði Karlsen rólega. „Sástu stúlkuna?“ spurði hann svo. „Nei, ekki gerði ég það nú,“ svaraði skipstjóri, „en hún er hér um borð, svo að það ætti að vera hægt að skoða gripinn.“ Karlsen beit á vörina, en sagði ekki neitt. Með sjálf- um sér hugsaði hann. — Fjandinn hafi það, þú skalt ekki svo mikið sem renna augunum á hana, bannsett- ur kvennabósinn þinn. Hann þóttist vita, að stúlkan í ldefa nr. 3 væri vinnukona kaupmannsfrúarinnar. Eftir hádegi leit Karlsen inn í klefann. Stúlkan sneri sér upp í horn og breiddi upp yfir höfuð, þegar hún varð hans vör. Hann tók í teppið, en hún grúfði andlit- ið niður í koddann. „Má ég ekki láta koma með mat til þín, eða mjólk og brauð?“ spurði Karlsen. Stúlkan steinþagði, svo að auðséð var, að hann gæti allt eins vel talað við sjálfan sig þess vegna. Stundar- korn stóð hann kyrr, yppti síðan öxlum ráðalaus og gekk út. Það var sama sagan um kvöldið, þegar hann kom að vitja um hana. Hún sagði ekki orð og vildi auðsjáan- lega ekkert við hann tala. Hann gafst því alveg upp og hugsaði, að bezt væri að láta hana í friði. I raun og veru kom honum stúlkan ekkert við. Hann gat þó ekki að sér gert að hugsa um hana, þegar hann var lagstur upp í bekkinn í klefa sínum. Grátandi andlit hennar leið honum fyrir sjónir aftur og aftur. „Vesalingurinn litli,“ hugsaði hann með sér. „Það er eflaust ekki gam- an að lenda í svona löguðum vandræðum.“ Nú var barið að dyrum, og hjálparkokkurinn stakk höfðinu inn fyrir dyrastafinn. Þegar hann sá, að Karl- sen var einn, kom hann allur inn í klefann, settist á stólinn, dró upp tóbakspoka, en hann var þá tómur, svo hann bað Karlsen að gefa sér í pípu. „Hvað er þér á höndum?“ spurði Karlsen og rétti honum tóbak. Ponni tróð hægt og gætilega í pípuna, kveikti síðan í henni með mesta spekingssvip, dró sér síðan vænan reykjarteyg og blés frá sér upp í loftið, áður en hann svaraði. „Ja, hvað ég vil? Jú annars, finnst þér hún ekki skrítin, gæjan, sem kom um borð á Lágeyri?“ „Hvernig skrítin?“ anzaði Karlsen. „Finnst þér ekki skrítið að koma grenjandi um borð eins og krakki?" „Ekki man ég nú betur, Ponni minn, en þú vatnaðir músum fyrsta kvöldið, sem þú varst hér um borð, og ázt ekki í marga daga né svafst fyrir eymd og volæði,“ sagði Karlsen og ldmdi. Ponni ók sér órólega á stólnum. „Það er nú allt ann- að,“ sagði hann og vildi auðsjáanlega ekki tala meir um fyrstu sjóferðina sína. „En svo er stelpan á vakki uppi núna, ég sá hana þegar ég skrapp upp áðan. Hún skauzt í felur eins og rotta. Líklega hefur hún verið smeyk við mig.“ — Strákurinn gretti sig í framan og hló. „Ekki furðar mig það,“ svaraði Karlsen og brosti. Þessi geysilangi og horaði strákur með ofvöxt í öllum skönkum var sannarlega ekkert augnayndi, allra sízt þegar hann var á hreyfingu, því þá hlykkjaðist hann áfram líkt og ánamaðkur, en gekk ekki eins og aðrir menn, enda heyrðist sjaldan til hans, þegar hann gekk. Var hann af þeim sökum illa liðinn hjá flestum skips- 24 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.