Heima er bezt - 01.04.1962, Page 4

Heima er bezt - 01.04.1962, Page 4
ÁGÚST B. JÓNSSON FRÁ HOFI: Þáttur um Grímstungu í Vatnsclal Lárus GrímstunguDÓnda Fremst í Vatnsdal vestanverðum, er stórbýlið Grímstunga, ein kostamesta og landstærsta jörð í Húnavatnssýslu. Lega og aðstaða hennar byggist fyrst og fremst á víðáttumiklu beitar- landi, sem afmarkast af Vatnsdalsá að austan, en Álfta- skálará að vestan. Þessar ár sameinast rétt norðan við túnið í Grímstungu, en vegna aðrennslis þeirra, mynd- ast þarna tungan sem jörðin er kennd við. Þegar kem- ur upp á heiðarbrúnina ofan við túnið, jafnbreikkar landið, því Álftaskálará kemur úr suðvestri en Vatns- dalsá úr suðaustri. Báðar koma þessar ár af Stóra- sandi, og er hið mikla landflæmi milli þeirra, nefnt Grímstunguheiði, og var eign Grímstungu fram undir aldamót, er upprekstrarfélag Grímstunguheiðar, þ. e. Þing og Vatnsdalur, keyptu afréttinn, og féllu þá nið- ur afréttartollar til Grímstungukirkju, sem var haust- lamb frá hverjum bónda. Skömmu áður var kirkju- sóknin sameinuð Undirfellssókn, og kirkja niðurlögð. Sökum hinna góðu landkosta Grímstungu, voru þar tíðum ríkir prestar og búmenn, sem héldu fast á rétti sínum um afréttartollinn og aðrar heimatekjur. Vatnsdalsá á upptök sín framarlega á Stórasandi, hefur hún grafið sér djúpan farveg, þegar kemur norðarlega á Grímstunguheiði, með hrikalegum klettagljúfrum, með mörgum fögrum fossum og grösugum hvömmum, með angandi blómskrúði. Nafn á þessum fossum, eru mörg falleg og sýna að forfeður okkar höfðu gott vald á fögru máli. Þeir helztu heita: Skínandi, Rjúkandi, Kerafoss, Skessufoss og Dalsfoss, er þá komið að botni Vatnsdals, og rennur Vatnsdalsá síðan í strengjum og lygnum hyljum fram hjá Grímstungu, og er þar góð veiði stórlaxa með Grímstungulandi. Þar sem hið milda árgil þrýtur, er sögustaðurinn Þórhallastaðir, sem frægur er af viðureign Grettis við Glám draug, og aldurtila hans áður. Þar fyrir framan er örnefnið Glámsþúfa. í skammdegisrökkri og hríð, verður sá sem á ferð er þar með Gljúfrinu mikla, ekki undrandi þótt sagnir mynduðust um óvætti við Skessu- foss, eða hvörf sauðamanna á Þórhallastöðum. Álftaskálará hefur einnig myndað ægidjúpt gil vest- an Tungunnar, og nær það allt heim að túni í Gríms- tungu. Þar eru á köflum hrikalegir og hættulegir klett- ar, sem eru eftirlætis dvalarstaðir ránfugla og kletta- fúsra sauðkinda, sem stundum hafa lent þar í svelti. Séð heim að Grimstungu. 112 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.