Heima er bezt - 01.04.1962, Side 8

Heima er bezt - 01.04.1962, Side 8
Ull stórbóndans i Grímstungu þvegin við Alftaskálará Þegar mæðiveikirt byrjaði í fé hans 1937, var það einn bezt ræktaði fjárstofn í Húnavatnssýslu, hátt á 7. hundrað á fóðri. Þá hófst undanhald hjá Lárusi með fjölgun, í fyrsta sinn í búskapnum, og var þó sett vel á fyrir vanhöldum. Þetta ástand hélzt til 1948 að alger fjárskipti urðu, mig minnir að þá fengi hann á fjórða hundrað lömb, sem voru að vísu af misjöfnum upp- runa og gæðum. Til að flýta fyrir aðstöðu til fjárbóta, fer hann árið eftir með bíl til fjárkaupa vestur að ísa- fjarðardjúpi til að kaupa kynbótafé, þar á meðal féltk hann kollóttan lambhrút hjá Halldóri á Arngerðareyri, sem varð síðar annálaður kynbótahrútur, sem setti mörg met á sýningum, og afkomendur hans eru marg- ir í Húnavatnssýslu. A heimleið keypti Lárus kynbóta- fé á Kinnarstöðum við Þorskafjörð, og kom með bíl- inn hlaðinn af kynbótafé. Eftir fjárskiptin fjölgaði fénu ört. Ræktun var þá orðin mikil og sívaxandi, fjárhús stækkuð og öðrum bætt við, beitarhús, áður byggð fyrir 350 ær, og stórt tún ræktað þar. Nú voru synir Lárusar með í spilinu með fjárbúið. Þegar Grímstunguhjónin breyttu um búskap 1959, og létu tvo syni sína hafa 2/3 hluta jarð- arinnar, hélt Lárus eftir fremsta hluta landsins og beit- arhúsunum, og þó hann telji sig nú vera húsmennsku- mann í Grímstungu, bætast enn þá við ný fjárhús á beitarhúsatúni. Eftir nokkurri ágizkun að vísu, ætla ég, að í vetur sé fóðrað um 1100 fjár í Grímstungu, sem Lárus og synir hans eiga, og líklega á Lárus helming þess, þótt hann telji sig nú húa húsmennskubúskap. Lárus hefur marga vetur hirt beitarhúsaféð sjálfur, og þá stundum eytt litlu fóðri. Beitarhúsaganga er um 50 mínútna ferð hvora leið, og ekki auðfengnir menn í það starf. Af því sauðfjár- og hrossaeign Lárusar er svo langt fram yfir það sem víðast er, hafa vitanlega spunnizt um það þjóðsögulegar sagnir, einkum hrossaeignina, því hafa sumir jafnvel haldið, að Lárus vissi ekki kinda- tölu eða hrossa nákvæmlega, og væru því framtöl hans harla ónákvæm. Vil ég þar upplýsa, að Lárus er allra manna fimastur að telja fé í haga, þótt stór hópur sé, og eftir því glöggur, bæði á fé og hross — enda fram- töl hans álitin nokkuð rétt og vítalaus. Hrossabóndi. Ég hef orðið þess var af kynnum mínum víða um land, að næstum því þjóðsögulegur blær er kominn Heimilisfólkið í Grimstungu árið 1932. 116 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.