Heima er bezt - 01.04.1962, Page 13

Heima er bezt - 01.04.1962, Page 13
EIÐUR GUÐMUNDSSON, ÞUFNAVOLLUM: JÓN SKJÖLDUNGUR (Niðurlag.) Um vorið komst kvis á, að Kristín ætti að hætta mat- sölunni án sjálfvilja, og Jón að taka hana að sér. Urðu margir piltanna þá sárgramir og heituðust að verða ekki næsta bryta þægur ljár í þúfu. Voru þar fremstir í flokki synir Gunnlaugs Blöndals sýslumanns, þeir Magnús og Hannes skáld. Er nokkuð leið á vetur, 1881 til 1882, fór mjög að brydda á óánægju hjá piltum og kom þar ýmislegt til. Töldu þeir fæðið illt og matreiðslunni ábótavant á ýmsan hátt. Ket og fiskur væri skemmt af ýldu, sósur alls konar, sem þeir báru engin kennsl á og þóttu vond- ar, voru notaðar talsvert í staðinn fyrir smjör, og að hreinlæti væri ábótavant. Var þetta að miklu leyti á fullum rökum reist. Fæðið var og mjög dýrt, miðað við þáverandi verðlag og peningagildi, var það ein króna á dag. Vildu piltar, sem eðlilegt var, hafa matinn bæði góðan og nógan, er þeir guldu hann svo háu verði. Þá barst og sá kvittur í skólann, að Jón keypti pestar- skrokka hingað og þangað fyrir sáralítið verð, og væru þeir notaðir í alls konar stöppur, sem oft voru á borð bornar. Og er það að lokum fréttist, að Jón hefði full- ur grobbað af því, að fyrir hverja krónu cina, sem hann kostaði til fæðissölunnar, fengi hann að minnsta kosti tvær frá piltum, sprakk blaðran til fulls. Sneru piltar sér þá til Jóns og kröfðust gagngerðra úrbóta á matarhæfinu. Jón tók aðfinnslum þeirra og kröfum með skilningi, en taldi þær þó ástæðulausar með öllu, og vildi ekki slaka til á nokkurn hátt. Piltar sneru sér þá til Jóns Hjaltalíns skólastjóra og væntu sér þar halds og trausts, en Hjaltalín reyndist þá vera á bandi Jóns og draga hans taum. Um haustið hafði komið í skólann piltur að nafni Björn Björnsson frá Mýrum í Skriðdal, skapheitur áhugamaður, bráðgáfaður og mælskur svo að af bar. Forustan fyrir málstað piltanna lenti þegar hjá honum og sótti hann málið af kappi miklu og harð- fylgi. Er ekkert vannst á við þá Jón og Hjaltalín, var kæra send til Júlíusar Havsteen amtmanns á Akureyri. Amtmaður leitaði álits skólastjórans, og er það var fengið þótti honurn ekki ástæða til frekari afskipta. Skólapiltar létu málið eigi falla niður að heldur, en sendu nefnd manna fram að Ytri-Bægisá á fund séra Arnljóts Ólafssonar, lögðu málið fyrir hann og báðu hann að skerast í leikinn. Varð hann vel við beiðni pilta og fór niður að Möðruvöllum. Þar var málið síðan rætt og reifað, þrætt og þjarkað í tvo daga. Komst þá loks- ins á samkomulag, og með sigri pilta í öllum aðalatrið- um. Fæðisgjaldið var lækkað um þriðjung fyrir þrjá fyrstu mánuði skólatímans, og það tilskilið að kennar- arnir borðuðu með piltum til skiptis, einn við hverja máltíð, til vors, og skyldi hlíta úrskurði þeirra, hvort maturinn væri viðunandi og framreiðslan forsvaranleg. Höfðu kennararnir allir, að Hjaltalín undanskildum, verið á pilta bandi í deilunni. Aldrei bryddi síðar á nokkurri óánægju út af matnum. Jón undi úrslitum málsins ekki sem bezt, en lét þó lítt á því bera og hélt sættina að öllu, en það gramdist honum mjög um vorið, er nokkrir piltar fóru svo úr skólanum, að þeir borguðu ekki eyri og minntust ekki á greiðslu. Hótaði Jón þá málsókn, en úr þeirri fram- kvæmd varð ekki. Þremur piltum í efri bekk skólans varð deila þessi til nokkurra happa. Svo sem fyrr getur var Jón spilamaður mikill. Hafði hann frá því, að hann lcorn að Eyrarlandi, alltaf spilað allmikið, er tími og tækifæri gáfust. Skömmu eftir að skólinn var settur um haustið var setzt við spilabórðið. Spilafélagar Jóns voru Guðmundur bróðir hans, Guðmundur Einarsson frá Hraunum í Fljótum og Ásgeir Bjarnason úr Mý- vatnssveit, náfrændi þeirra bræðra Jóns og Guðmund- ar. Það var venja þeirra félaga, að þegar tímum lauk settust þeir að spilum og spiluðu síðan til kvelds. Gekk það svo til flesta daga ef Jón var heima og ekki mjög fullur. Spiluðu þeir lomber og gekk á ýmsu með tap og gróða. Allir voru piltar þessir góðir námsmenn og höfðu staðið sig með prýði veturinn áður. En nú brá svo við að þeir urðu, allir í röð, neðstir í bekknum við miðsvetrarprófið. En er matarmálið hófst voru spilin lögð á hilluna og ekki snert síðan um veturinn. Úr því fóru piltarnir að sinna náminu betur, og á burtfarar- prófinu um vorið, var Guðmundur bróðir Jóns kominn upp í miðjan bekk, Ásgeir hækkaði talsvert, en Guð- mundur Einarsson varð enn í neðsta sæti, enda var hann þá enn óþroskaður unglingur. Jón var bryti skólans eftir sem áður, allt þar til er hann fluttist frá Möðruvöllum, og kom þar aldrei til ágreinings framar. VI. Vorið 1891 reisti Stefán Stefánsson kennari á Möðru- völlum þar bú, og varð Jón þá að víkja þaðan, var hon- um það nauðugt nokkuð, en svo varð að vera og ekki hægt hjá að komast. Jón hafði áður keypt Krossastaði á Þelamörk og fluttist hann þangað. Krossastaðir voru Heima er bezt 121

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.