Heima er bezt - 01.04.1962, Blaðsíða 14

Heima er bezt - 01.04.1962, Blaðsíða 14
Krossastaðir. [)á meðalbýli, en í niðurníðslu. Gat hann ekki fram- fleytt búi sínu á Krossastöðum einum og tók því á leigu Heiðarhús, hjáleigujörð frá Laugalandi. Þá hafði hann einnig Bláteig í Auðbrekkulandi, og með þessu jarð- næði fékk hann haldið búinu í sama horfi sem áður. Og enn síðar bætti hann við sig Laugalandi, sem er næsta jörð utan við Krossastaði, og keypti upprekstrarland á Vaskárdal. Á Krossastöðum gekk búskapur hans með ágætum sem jafnan áður. Hafði hann þar um fjögur hundruð fjár og tíu mjólkandi kýr í fjósi. Seldi hann mjólkurvörur, skyr og smjör, til Akureyrar, voru þær eftirsóttari en annars staðar frá. Peninga lánaði hann all-oft, en gekk illa frá samningum þar um, og oft var enginn stafur til tryggingar gerður, en rentu vildi hann hafa háa. Laus var hann við alla tortryggni í viðskipt- um sem öðru, og gerði aldrei ráð fyrir brigðmælgi og vanskilum nokkurs manns að ósekju, enda reyndust flestir honum fullir drengir í viðskiptum. Hið eina fyrirtæki Jóns, sem eigi færði honum gróða í bú, var það, að hann keypti mótorbát og hóf sjávar- útgerð, en þar skorti hann alla kunnáttu, þekkingu og reynslu. Lét hann gróðavonina draga sig þá á tálar. Varð hann fyrir miklu tapi, en hyggindi hans voru nóg til þess, að hann áttaði sig fljótlega á því, að hann skorti allt til að hafa yfirsýn um rekstur sjávarútvegs, og seldi bátinn. Fékkst hann ekki síðan við annan rekstur en búskapinn einan, var þá enda gamall orðinn. Síðla sumars 1926 andaðist María kona Jóns. Höfðu þau þá verið í hjónabandi tæp fimmtíu og sjö ár og jafnan farið vel á með þeim. Tvö fósturbörn ólu þau upp. Voru það Málfríður Baldvinsdóttir, systurdóttir Jóns, og Grímur er síðar bjó á Krossastöðum. En for- eldrar hans voru Stefán Kristjánsson, er mjög lengi var þar vinnumaður og kona hans, Guðrún Grímsdóttir frá Hraukbæjarkoti, uppeldisdóttir Jóns. Hún var hjá hon- um alla ævi frá því að hann tók við búsforráðum í Hraukbæjarkoti. Jón dó 13. maí 1929, á áttugasta og níunda aldursári. Hann lét eftir sig mikla fjármuni. Féllu þeir í arf til fósturbarnanna, Gríms og Málfríðar. VII. Hvar sem Jón bjó bætti hann ábýlisjarðir sínar að húsakosti og ræktun. Á Möðruvöllum byggði hann í- búðarhús úr tirnbri, og á Krossastöðum byggði hann öll hús upp að nýju, og miklu betur og reisulegar en þá var almennt að byggja á sveitabæjum. Hverja búskapar- nýjung, sem hann fékk veður af, tók hann til nákvæmr- ar athugunar, eftir því sem föng voru á. Og kæmist hann að raun um, að þar væri einhvers hagnaðar og framfara að vænta, var hann flestum öðrum fljótari að hefjast handa. Fyrstur var hann allra bænda hérsveitis til þess að láta brjóta óræktarmóa í stórum stíl og sá síðan grasfræi í flagið. Var hann þar áratugum á undan flestum sveitungum sínum öðrum. Skilvindu, kerru og ýmis áhöld önnur, sem síðar þóttu ómissandi á hverju heimili, útvegaði hann sér á undan flestum öðrum, og kornmyllu rak hann lengi. Þegar snemma á búskapar- ferli sínum hvarf Jón frá horfóðrunarstefnu þeirri, er allsráðandi var hjá bændum allt fram yfir aldamót, og víða lengur. Lét hann vanda fóðrun alls búpenings, enda fékk hann jafnan ágætar afurðir af búi sínu. En það voru fleiri nýjungar en í búskap einum, sem Jón hafði áhuga fyrir og studdi eftir megni. Hann var einn af stofnendum klæðaverksmiðjunnar Gefjunar á Akur- eyri, og lagði þar fram mikið fé. Eins keypti hann hlutabréf í Eimskipafélagi Islands fyrir allháa upphæð. Hjúasæll var Jón alla hina löngu búskapartíð sína. Var hann þeim góður og nærgætinn í allri framkvæmd. Þótti þeim vænt um hann og vildu flest ekki annárs staðar vera. Kæmi upp kritur milli þeirra, eins og oft átti sér stað á mannmörgum heimilum, og rógur, slúð- ursögur og þess háttar kæmi á gang, þýddi ekki að bera neitt því líkt í eyru Jóns. Vildi hann ekki á það hlusta og svaraði þá gjarnan eitthvað á þessa leið: „Æi, vertu ekki að þessu slúðri, greyið mitt, þið eigið að láta ykkur koma saman.“ María var öllu fúsari að hlusta á klögumálin, og kæmi fyrir að hún bæri þau í eyru Jóns, tók hann ekkert mark á þeim að heldur, en benti henni á, að hún vissi ekkert um hvað satt væri í máli því, sem um væri að gera, og að það borgaði sig að fást við það, því að slíkir smámunir sem heimiliserjur milli hjúa jöfnuðust af sjálfu sér. Vesalinga er leituðu á náð- ir þeirra hjóna, tóku þau oftar en um sinn og ólu önn fyrir þeim lengri eða skemmri tíma eftir þörfum. Maður hét Ámundi Ámundason, Rangvellingur að uppeldi og ætt. Hann hafði stundað sjó á Suðurnesj- um um skeið, en verið í kaupavinnu á sumrum. Var hann enn ungur að árum, en umkomulaus og útþvæld- ur af drykkjuskap. Ámundi réðist að Silfrastöðum til Jóns í kaupavinnu, og er ráðningartíminn var á enda vildi Ámundi hvergi fara. Varð það úr að hann sett- 122 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.