Heima er bezt - 01.04.1962, Page 16

Heima er bezt - 01.04.1962, Page 16
ÞORVALDUR SÆMUNDSSON, KENNARI: SUMAR Á SAURUM Leikmannsþankar um dvöl Jónasar Hallgrímssonar í Sórey 1843-1844. i. E^ixn fagran síðsumarsdag árið 1843 tekur tæp- lega miðaldra maður sér far með póstvagnin- , um, sem er í förum milli Kaupmannahafnar og Sóreyjar á Sjálandi. Maður þessi er „gildur meðalmaður á hæð, þrekvaxinn og limaður vel, en heldur feitlaginn, herðamikill, baraxlaður, og nokkuð hálsstuttur, höfuðið heldur í stærra lagi, jarpur á hár, mjúkhærður, lítt skeggjaður og dökkbrýnn. Andlitið er þekkilegt, karlmannlegt og auðkennilegt, ennið all- mikið. Hann er rétt nefjaður og heldur digurnefjaður, granstæðið vítt, og vangarnir breiðir, kinnbeinin ekki há, munnurinn fallegur, varirnar mátulega þykkar. Hann er stóreygður og móeygður“ og ofurlítið dreymandi á svipinn, þar sem hann hallar sér aftur í sætinu og virðir fyrir sér skrúðklætt landið. Þessi maður, sem hér er á ferð, er íslendingurinn Jónas Hallgrímsson, skáld og náttúrufræðingur. Hann hefur vet'ið búsettur í Kaupmannahöfn um margra ára skeið, bæði við nám og vísindastörf, en farið heim til íslands og ferðazt víða um landið í rannsóknarskyni nokkur undanfarin sumur. Hann hefur gert marghátt- aðar, vísindalegar athuganir á náttúru landsins og jarð- sögu þess, gróðri og dýralífi og safnað miklu af fom- minjum og náttúrugripum. Úr þessum gögnum hefur hann svo unnið á vetuma, bæði í Reykjavík og þó einkum í Kaupmannahöfn. Mesta stórvirki, sem hann hefur með höndum um þessar mundir, er samning ís- landslýsingarinnar, sem Hið íslenzka bókmenntafélag hefur falið honum að rita, ásamt Jóni Sigurðssyni, for- seta. Auk þess hefur hann tekið virkan þátt í þjóð- málabaráttu landa sinna og annazt, ásamt fleirum, út- gáfu tímaritsins Fjölnis, sem borið hefur íslendingum nýjan andblæ frelsis og menningar. En dvölin í Kaupmannahöfn hefur ekki ávallt reynzt skáldinu og náttúmskoðaranum gleðigjafi. Einkum hefur veturinn 1842—43 reynzt honum þungur í skauti. Fátækt og heilsuleysi hafa lagzt þungt á hann í skamm- deginu, svo að minna hefur orðið úr hinum vísinda- legu stórvirkjum, sem hann hefur með höndum, en hann hafði áformað. Fjárhagsörðugleikar hans eru svo miklir, að hann hefur séð sig tilneyddan að setjast nið- ur hinn 21. febrúar 1843 og hripa vini sínum og landa, Finni Magnússyni, prófessor, svohljóðandi bréf: Hávelborni, allrahæstvirti herra etatsráð! Af því ég er í verstu kröggum, en gjaldkeri vor ekki heima leyfi ég mér að biðja yður að borga mér inn- lagðan reikning fyrir félagið. Það er annars illt og ómaklegt, að ég skuli, eins og. þér getið nærri, verða með öllu móti að forðast að koma til nokkurs manns — fyrir klæðleysi — þó mér standi hin bezm hús opin. Nú er verið að lagfæra kortið og dagbók mín til Rentukammersins er svo sem albúin. Yðar J. Hallgrímsson. Vorið gengur í garð og dönsku beykiskógarnir skrýðast angandi laufskrúði, en hagur hins örsnauða, íslenzka skálds vænkast samt lítt. Hinn 5. júní 1843 skrifar Jónas enn Finni Magnússyni eftirfarandi bréf: Hávelborni, allrahæstvirti herra etatsráð! Nú stendur ekki sem bezt á, ég er krafinn um húsa- leigu fyrir mánuðinn, og þess utan á ég, því miður, ekkert að borða fyrir, J>essa dagana. Hvað myndi nú vera við það að gjöra? Eg hef nú raunar hert upp hug- ann og ráðizt á Rentukammerið, — en meðan grasið er að gróa, deyr kýrin. Nú þarf ég Rangárvallasýslu og Skaftafellssýslurn- ar, til að korna þeim af áður en ég fer. Hitt, sem ég hef, sendi ég yður nú aftur. Með ást og virðingu, J. Hallgrímsson. En þó að skáldið og vísindamaðurinn, Jónas Hall- grímsson, eigi enga skildinga um þessar mundir til þess að greiða með húsaleiguna né kaupa sér mat, rætist þó svo úr bágindum hans, fyrir tilstilli vinar hans, Finns Magnússonar, að skáldið skrimtir af að þessu sinni. Hinn langi og dapurlegi vetur er líka liðinn, og með hækkandi sól hefur listaskáldið góða tekið gleði sína aftur, eins og svo oft áður. Nú hefur Jónas líka ný áform á prjónunum, sem fylla hann bjartsýni og til- hlökkun. Þetta sumar, 1843, hefur svo slápazt, að hann dvelji um slteið hjá vini sínum, danska náttúrufræð- ingnum Japhetus Steenstrup, sem búsettur er í hinum 124 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.