Heima er bezt - 01.04.1962, Side 18

Heima er bezt - 01.04.1962, Side 18
sept. 1843. Við skulum nú grípa niður í bréfið og heyra, hvað hann hefur að segja vini sínum: ------Mér líður á flestan hátt vel, guði sé lof, heils- an er sæmileg og vinnan gengur sæmilega, og hvað að- búð og umgengni snertir, þá hef ég ekki áður átt jafn- góðu að fagna oft um dagana. Eg er hér úti bæði af því, að mér þykir fara ólíku betur um mig en í Kaup- mannahöfn, og svo hinu, að nú er fyrir alvöru verið að gera við islandica, — ég er hjá Steenstrup, eins og þú getur nærri, og við sitjum nú í samvinnu, og komi nokkurn tíma svo langt, eitthvað komist út um Is- landsferðina, verður það eftir okkur í sameiningu og undir beggja okkar nafni. Ekki hef ég heldur gleymt félaginu okkar, en landlýsingin verður mikið verk, og undirbúningurinn til að geta skrifað hana að gagni er ótrúlegur. Lakast er, að félagið er ekki fært um að borga mér neitt, sem heita megi viðunanlegt, og það er nú helzt, sem mér baggar — peningaskorturinn — til að geta unnið almennilega. Eg sé brauðin eru að losna, en ég þori samt ekki að láta sækja um neitt að sinni, því ég er dauðhræddur um, að ég verði ekki búinn í vor að því, sem ég þarf að gera hér. — (Hér er kafli felldur úr.) — Þetta held ég verði nú að vera nóg vetr- arlangt. Eg skyldi raunar hafa skrifað þér ögn meira, en í þessu augnabliki fékk ég boð frá Hauch, og má líklega vera hjá honum allt kvöldið. Það er nógu gam- an, þegar maður vill rétta sig upp, að geta fyrirhitt aðra eins menn og Hauch og Ingemann, og vera ætíð boðinn og vel tekinn.--------- Og daginn eftir skrifar hann Páli Melsteð2) vngra svohljóðandi bréf: Sórey, 27. sept. 1843. Elskulegi Páll minn! Þér myndi nú væntanlega ekki þykja neitt undar- legt, þó ég skrifaði þér langt bréf héðan úr róseminni í Sórey, og hugsa með þér, ég hefði ekki haft annað að gjöra. En ég skal nú sýna þér, hvort ég hef ekki haft annað að gjöra, og svo sem til sannindamerkis skrifa ég þér ekki nema nokkur orð, rétt svo þú sjáir ég lifi, og sé ekki öldungis búinn að gleyma þér. Ég lifi hér annars eins og blóm í eggi; — ég er hjá Steen- strup og við erum í samvinnu að fást við islandica, og ætlum nú að bera okkur að koma saman bók um þetta allt, sem dálítið gagn verði í; — og til hvíldar geng ég eða ríð eða keyri um landið og skógana hér í kring, ræ líka stundum á báti um vatnið með kvenfólkið okk- 2) Páll Melseð yngri, sagnfræðingur (f. 13. nóv. 1812, d. 9. febr. 1910), stúdent frá Bessastaðaskóla 1834, lagði stund á laga- nám í Kaupmannahöfn 1833—40. Tók próf í dönskum lögum 1857. Var sýslumaður í ýmsum sýslum og alþingismaður Snæ- fellinga 1859—63. Eftir að Páll lét af sýslumannsembætti, varð hann kennari í sögu við latínuskólann. Hann vann mikið að ritstörfum, einkum um sagnfræði. (Nánar í Islenzkar æviskrár eftir P. E. Ó.) ar, eða geng til Hauchs eða Ingemanns að tala við þá tii fróðleiks og skemmtunar. Mér er mikið þægilegt að vera boðinn og veltekinn hjá þeim báðum, hvenær á degi sem vera skal. Ekki gleymi ég nú samt fyrir þessu félaginu okkar og landlýsingunni, en þar vant- ar ekki mikið á, að ég hafi reist mér hurðarás um öxl, því verkið er bæði mikið sjálft og undirbúningurinn því meiri. Lakast af öllu er, að félagið getur ekki boð- ið mér neitt viðunanlegt hónórar, því mér er ómögu- legt að vinna peningalaus. Sæi ég því nokkurn kost á, eða réttara sagt, sæi ég nokkurn annan færan um að taka við því starfi, seldi ég mér það af höndum. Ég skrifa þér ekki fréttir, því þó ég færi að tína eitt- hvað til myndi seint grynna á þeim, þú mátt til að reyna að fá þér blöðin. Ég sagði Jóhanni Briem eitt- hvað af ferðalagi ensku drottningarinnar, og hef beð- ið hann að láta þig fá það, svo þú getur gengið eftir því. Mundu eftir að senda mér snaraðar rjúpur með póstskipinu í vetur, — ég smakka hér aldrei rjúpu! og adress. allt til Kaupmh. Segðu mér svo líka nógar frétt- ir. Berðu kæra kveðju mína frúnni og konunni þinni, og eins dr. Scheving, þegar þú sérð hann, því ég er hræddur um, ég skrifi honum ekki, og vertu blessað- ur og sæll, vinur! Þinn J. Hallgrímsson. Þeir Hauch og Ingemann, sem Jónas minnist á í bréfunum, voru báðir mjög mikilhæfir menn, sem gott var fyrir Jónas að eiga sálufélag við. Ingemann, sem um þær mundir var forstöðumaður (eða rektor) við akademíið í Sórey, var mikilvirkur rithöfundur og ágætt ljóðskáld. Eftir að lárviðarskáld Dana, Oehlen- schlager, féll frá, varð Ingemann höfuðskáld þeirra. Hauch var náttúrufræðingur og skáld, eins og Jónas, og var lektor í dýrafræði við akademíið. Hann samdi sögur og leikrit, m. a. leikritið Kinnarhvolssystur, sem leikið hefur verið víða hér á landi. Kynni Jónasar við þessa andans snillinga og ljúfmenni hefur án efa orðið honum mikil andleg uppörfun og glætt skáldhneigð hans, enda orti hann meðan hann dvaldist í sveitasæl- unni í Sórey, sum sinna beztu og hugljúfustu Ijóða, svo sem Dalvísur, Sláttuvísur, Ég bið að heilsa, og ef til vill kvæðaflokkinn Annes og eyjar, og sennilega fleira. Einnig má vera, að hann hafi samið gamanbréf- ið alkunna um ferð Englandsdrottningar til Frakklands þetta sumar eða haust í Sórey, því að hann segir í bréf- inu til Páls Melsteðs, 27. sept., að hann hafi sent Jó- hanni Briem1) það, og hefur Jónas þá líklega verið nýbúinn að skrifa það. Nokkru seinna, eða í byrjun marz 1844, sendir hann Konráði Gíslasyni í gaman- i) Jóhann Briem prestur (f. 19. apríl 1801, d. 6. marz 1880), tók stúdentspróf í Danmörku 1820 og lauk guðfræðiprófi við Khafnarháskóla 1826. Var prestur í Danmörku (m. a. í Kou- stedsprestakalli frá 1835—1854). Jóhann orti nokkuð, samdi leik- rit og ritgerðir á dönsku. (Islenzkar æviskrár eftir P. E. Ó.) 126 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.